Fréttablaðið - 05.09.2019, Page 34
BÍLAR
Ítalski sportbílaframleið-andinn Ferrari verður ekki vændur um að stök k va snemma á raf bílalestina, en nú er þó kominn fram fyrsti Ferrari-bíllinn með inn-
stungu, það er SF90 Stradale. Það
þýðir þó ekki að hann sé hreinrækt-
aður rafmagnsbíll, heldur með bæði
brunavél og rafmótora. Í leiðinni fer
hér öflugasti fjöldaframleiddi bíll
Ferrari frá upphafi, enda hestöflin
hvorki f leiri né færri en 986. Þau
koma frá 769 hestaf la V8 bensín-
vél og þremur samtals 217 hestafla
rafmagnsmótorum. Einn þeirra er
staðsettur milli vélar og sjálfskipt-
ingar bílsins og sitt hvor mótorinn
er svo á framhjólunum. Það gerir
bílinn fjórhjóladrifinn.
Er 2,5 sekúndur í 100
Ferrari SF90 Stradale er með fjórum
akstursstillingum, eDrive fyrir ein-
göngu akstur á rafmagni, Hybrid
fyrir blöndu beggja, Performance
en þá er brunavélin alltaf í gangi
og Qualify þar sem hámarksafl raf-
magnsmótoranna er nýtt.
Ferrari segir að þeim auka 270
kílóum sem bíllinn þyngist um
með raf hlöðunum og rafmótor-
unum sé meira en mætt með því
aukaaf li sem fæst úr rafmagninu.
Bíllinn er aðeins 2,5 sekúndur í 100
km hraða og hámarkshraðinn er
340 km/klst. Ferrari SF90 Stradale
er sem dæmi 0,4 sekúndum sneggri
í hundraðið en hinn 710 hestaf la
Ferrari F8 Tributo og er þremur
sekúndum sneggri að fara Fiorano
tilraunabraut Ferrari en F8 Tributo.
Rafhlaða SF90 Stradale er ekki ýkja
stór, 7,9 kW, og því dugar hámarks-
afl rafmótoranna ekki lengi, en þó
fyrir heilan hring á f lestum keppn-
isbrautum.
Hægt er að aka bílnum um 25
kílómetra á rafmagninu einu saman
og með því má aka bílnum á allt að
135 km hraða. Söluverð Ferrari SF90
Stradale er 430.000 evrur í Evrópu,
eða 60 milljónir króna.
Fyrsti tengiltvinnbíll
Ferrari er 986 hestöfl
Ferrari SF90 Stradale er með ógnarafl og leit er að bíl sem er sneggri á sprettinum.Mercedes-Benz GLE sem leysti af M-Class jeppann hefur verið á markaði
síðan árið 2016 og nú fær hann
kraftaútgáfu í formi 429 hestaf la
AMG 53 bíls. Hann verður vopnað-
ur 3,0 lítra bensínvél með tveimur
öf lugum forþjöppum og 48V mild-
hybrid kerfi sem færir bílnum
auka 22 hestöf l til skamms tíma.
Bíllinn er því snöggur á sprett-
inum og kemst í 100 km hraða á 5,3
sekúndum. Bíllinn er engu að síður
sparneytinn og uppgefin eyðsla í
blönduðum akstri er 9,4 lítrar á
hverja ekna 100 km. Bíllinn verður
á loftpúðafjöðrun og fær risastóra
400 mm bremsudiska til að hemja
allan kraftinn.
Loftpúðafjöðrun lækkar bílinn
GLE AMG 53 bíllinn stendur 15
mm lægra á vegi en hefðbundinn
GLE-jeppi þegar hann er stilltur á
Sport eða Sport+ akstursstillingu
og lækkar sig sjálfur í hvaða still-
ingu sem er þegar farið er yfir 120
km hraða. Velja má milli sex mis-
munandi gerða álfelga á bílinn,
frá 20 til 22 tommu. Bíllinn er að
auki með 60 mm styttra hjólhaf
en hefðbundinn GLE til að auka á
aksturshæfni hans. Stuðarar bíls-
ins eru öðruvísi en í hinum hefð-
bundna og með stærra loftinntaki
að framan, fjögur púströr eru að
aftan, fótstig bílsins eru úr ryðfríu
stáli og stöguð AMG-framsæti eru
í bílnum.
Mercedes-Benz GLE fær
AMG 53 kraftaútgáfu
Mercedes-Benz AMG GLE 53.
Það skiptir bílaframleiðendur líklega mestu máli að vel gangi að selja bíla þeirra á
stærsta bílamarkaði heims, í Kína.
Það á sem stendur við bílarisann
Volkswagen Group en í júlí jók
fyrirtækið við sölu sína þrátt fyrir
heilmikinn samdrátt almennt í
Kína, bæði í þeim mánuði og und-
anfarið ár. Sala Audi-bíla í júlí jókst
um 6%, sala Volkswagen-bíla um
2%, en sala Skoda-bíla dróst saman
um 16%, en heildaraukningin nam
1,3%. Á meðan féll salan í Kína um
13% svo árangur Volkswagen Group
verður að teljast góður og fyrirtæk-
ið hefur verulega unnið á í markaðs-
hlutdeild að undanförnu í Kína.
Stefnir í 3,8 milljón bíla sölu
Á fyrstu sjö mánuðum ársins hefur
VW Group selt 2,23 milljónir bíla í
Kína og stefnir því í um 3,8 milljón
bíla sölu þar í ár. Í ár stefnir í um
20 milljón bíla heildarsölu í Kína
og því gæti markaðshlutdeild VW
Group orðið um 19%. General Mot-
ors frá Bandaríkjunum hefur á und-
anförnum árum gengið einkar vel
að selja bíla sína í Kína en þó hafa
síðustu mánuðir ekki verið gjöf-
ulir og minnkaði sala GM um 20% í
júlí miðað við sama mánuð í fyrra.
Margir aðrir bílaframleiðendur
hafa horft á samsvarandi samdrátt
að undanförnu.
Volkswagen Group mokselur í Kína
Á meðan sala bíla í Kína minnkaði um 13% jók Volkswagen söluna um 1,3%.
Alls 769 hestafla
V8-bensínvél og þrír
samtals 217 hestafla
rafmagnsmótorar.
Með öllu þessu afli
er bíllinn aðeins 2,5
sekúndur í 100.
RAFHLAÐA SF90 STRADALE
ER EKKI ÝKJA STÓR, 7,9 KW, OG
ÞVÍ DUGAR HÁMARKSAFL
RAFMÓTORANNA EKKI LENGI,
EN ÞÓ FYRIR HEILAN HRING Á
FLESTUM KEPPNISBRAUTUM.
Í ÁR STEFNIR Í UM 20
MILLJÓN BÍLA HEILDARSÖLU Í
KÍNA OG ÞVÍ GÆTI MARKAÐS-
HLUTDEILD VW GROUP ORÐIÐ
UM 19%.
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
6
-1
5
C
4
2
3
B
6
-1
4
8
8
2
3
B
6
-1
3
4
C
2
3
B
6
-1
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K