Fréttablaðið - 05.09.2019, Page 42
ÉG HELD HENNI
FINNIST ORÐIÐ
HUNDLEIÐINLEGT AÐ SJÁ SIG,
SAGÐIST EINMITT VERA KOMIN
MEÐ NÓG AF ÞVÍ FYRIR SÝNING-
UNA Á ÞRIÐJUDAGINN.
Hlynur Pálmason, sem er bæði hand-ritshöf undur og leikstjóri myndar-innar, vakti mikla athygli í Danmörku
fyrir mynd sína Vetrarbræður á síð-
asta ári. Sú frumraun Hlyns vann
til níu verðlauna á dönsku kvik-
myndaverðlaunahátíðinni en þrátt
fyrir þessi frábæru viðbrögð ytra
ákvað Hlynur að koma heim eftir
12 ára dvöl í Danmörku. Hlynur
flutti ásamt fjölskyldu sinni á æsku-
stöðvarnar á Höfn í Hornafirði þar
sem fjölskyldan hefur komið sér
fyrir í gamalli spennistöð, Stekka-
kletti. Í kvikmyndinni er það ein-
mitt húsið sem aðalsögupersónan
er að gera upp.
Sorg og þráhyggja
Kvikmyndin fjallar um Ingimund
lögreglustjóra sem Ingvar E. Sig-
urðsson túlkar af sinni alkunnu
snilld. Stjórinn hefur verið í starfs-
leyfi frá því að eiginkona hans lést
óvænt af slysförum. Ingimundur
einbeitir sér í sorginni að því að
byggja hús fyrir dóttur sína og
afastelpu allt þar til athygli hans
beinist að manni sem hann grunar
að hafi átt í ástarsambandi við konu
hans. Fljótlega breytist grunur Ingi-
mundar í þráhyggju og leiðir hann
til róttækra gjörða sem óhjákvæmi-
lega bitna einnig á þeim sem standa
honum næst.
Í Háskólabíó með ömmu og afa
Kvikmyndin var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í vor og
hlaut mikið lof gagnrýnenda. Jafn-
framt hefur hún verið valin sem
framlag Íslands til Kvikmyndaverð-
launa Norðurlandaráðs sem afhent
verða í október. Hlynur segir það
hafa verið sérstaka tilfinningu að
sýna myndina loks á Íslandi eftir að
hafa fylgt henni fyrst erlendis.
„Þetta var æðislegt kvöld í alla
staði og tilf inningin vissulega
sérstök og allt önnur en að sýna
myndina erlendis, svo mikið per-
sónulegri. Ég fór oft í Háskólabíó
sem krakki því amma og afi bjuggu
í Vesturbænum og fóru með mig í
sund í Vesturbæjarlauginni og bíó í
Háskólabíói. Hópurinn sem vann að
myndinni er þéttur og það má eig-
inlega segja að hver frumsýning sé
eins konar „reunion“. Til að mynda
þegar við frumsýndum í Cannes
vorum við um 30 manns, leikmynd,
hljóð, kokkurinn og fleiri,“ útskýrir
Hlynur.
Dóttirin í veigamiklu hlutverki
Ellefu ára gömul dóttir Hlyns,
Ída Mekkín, fer með veigamikið
hlutverk í myndinni. „Hún leikur
Sölku, barnabarn Ingimundar og
demantinn í augum hans. Þeirra
samband er eitt það mikilvægasta
í myndinni. Á milli þeirra eru góðu
stundirnar.“
Hlynur segir það hafa legið bein-
ast við að fá dótturina til að túlka
Sölku enda séu skilin á milli vinnu
og fjölskyldu ekki mjög afgerandi
í hans tilfelli. „Ég hef alltaf unnið
mjög náið með fjölskyldu og vinum
og dóttir mín hefur bardúsað
heilmikið með mér; setið fyrir á
myndum og leikið svo þetta var
mjög náttúrulegt fyrir hana. Henni
finnst þetta gaman og hún nýtur sín
í kreatívu samstarfi hópa.“
Aðspurður hvernig henni hafi
svo fundist að sjá sig á hvíta tjald-
inu svarar Hlynur hreinskilinn: „Ég
held henni finnist orðið hundleiðin-
legt að sjá sig, sagðist einmitt vera
komin með nóg af því fyrir sýning-
una á þriðjudaginn.“
Fleiri klukkustundir í
sólarhringnum í Hornafirði
Fram undan eru svo fleiri sýningar
og vinnuferðir til útlanda en hugur
Hlyns stefnir augljóslega heim á
Hornafjörð þar sem fjölskyldan
hefur komið sér fyrir en bæði
Hlynur og Hildur eiginkona hans
ólust þar upp. „Við búum aðeins
fyrir utan Höfn þar sem við erum
með hænur og dóttir okkar er virk í
hestamennskunni. Þar verður mér
mikið úr verki enda virðast f leiri
klukkustundir í sólarhringnum
þar. Nú þegar við erum komin
með þrjú börn finnum við fyrir því
hversu mikið frelsið er og tempóið
allt annað.“
Næstu verkefni Hlyns eru jafn-
framt tengd Austfjörðum, bæði
hefur hann gert samning við sveit-
arfélagið um að gera bústað fyrir
lista- og kvikmyndagerðarfólk í
gömlu spennistöðinni og hefjast
handa við næstu kvikmynd en
innblásturinn að henni fékk hann
úr ljóði Matthíasar Jochumssonar;
Volaða land. bjork@frettabladid.is
Persónulegra
að frumsýna
heima
Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur var
frumsýnd á þriðjudagskvöldið fyrir fullu
húsi í Háskólabíói en hún er frumraun
Hlyns Pálmasonar á móðurmálinu.
Hlynur ásamt Ingvari E. Sigurðssyni og dóttur sinni Ídu Mekkin Hlynsdóttur sem fara með hlutverk í myndinni.
Leikararnir Nína Dögg Filippusdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Gísli Örn
Garðarsson skemmtu sér vel á hátíðarfrumsýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Emilíana Torrini, Andri Snær Magnason, Frú Vigdís Finnbogadóttir og Mar-
grét Sjöfn Torp. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sverrir Þór
Sverrisson,
Sveppi, hér
ásamt Birni
Thors.
Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, ásamt unnustu sinni, Snæfríði Ingvars-
dóttur leikkonu, sem jafnframt er dóttir leikarans Ingvars E. Sigurðssonar.
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
6
-2
4
9
4
2
3
B
6
-2
3
5
8
2
3
B
6
-2
2
1
C
2
3
B
6
-2
0
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K