Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.2004, Qupperneq 2

Skessuhorn - 18.02.2004, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004 ju£S9Unu>~ Til minnis Við minnum á dansleik í Félags- heimilinu Klifi í Olafsvik fyrir bæj- arbúa í boði Hótels Ólafsvíkur. Stuðboltarnir í Klakabandinu halda uppi stuðinu. Ókeypis að- gangur - aldurstakmark 18 ár. Minnum ennfremur á allt annað sem er á döfinni áVesturlandi og það er ekki lítið. (2)®© Var hlutur Skaga- manna í Orkuveitunni nýttur til að halda Alfreð út úr liði Reykjavíkurhrepps? Nei, leikurinn var settur á sérstaklega þar sem vitað var að Alfreð var að undirbúa sextugsafmæl- ið sitt, þannig að hann gat ekki verið með. Gís/i' Gíslason bæjarstjóri á Akra- nesi var i liði bæjarfulltrúa sem mætti borgarfulltrúum á Jaðars- bökkum sl. fóstudag eins og sjá má á baksiðu. Akurnesingar eiga hlut- fallslega mest I Orkuveitu Reykja- víkur en þurftu ekki að nýta sér itök sin þar til að hafa áhrif á leik- mannamál heldur beittu alkunnri kænsku við val á leiktima. Veðivrhorfnr Á morgun fimmtudag heldur áfram að rigna og blása en á föstudag á að draga úr vindi en snjóa litið eitt. Á laugardag getum við svo kvatt þorrann og heilsað góu með lítilli ofankomu og sól þegar líður á daginn. Hiti verður á bilinu 0-5 gráðu frost en kaldast verður á kvöldi þorraþræls en þá má búast við 10 gráðu frosti. Sparninj viNnnar I síðustu viku var spurt á fréttavefnum Skessuhorn.is „Ertu bloggari?" 14,1 % svöruðu: „Já - mjög afkasta- mikiir - „Já - en blogga sjaldan" sögðu 20,5%, „Nei - tilhvers" svöruðu 3,1%, „Nei - en ég les blogg annarra sögðu 20,5% og 21,8% sögðu „hvað er þetta blogg???“ I þessari viku er spurt: Eru fermingar úrelt fyrirbrigði? Takið afstöðu á skessuhorn.is VestlencTinjivr viNnnar Eru hjónin Guðrún og Guðlaugur Bergmann á Brekkubæ á Hellnum en þau eiga öðrum fremur heið- urinn af því að nú hyllir undir að Snæfellsnes verði fyrsta samfellda landsvæðið á Norðurhveli jarðar sem umhverfisvænt ferðamanna- svæði. Síðasta steypan í Kolgrafarfirði Síðastliðinn sunnu- dag var lokið við að steypa brúna yfir Koigrafarfjörð. Vinn- an við þennan síð- asta áfanga tók 16 klukkustundir. Alls er brúin 230 metrar en síðan eru veg- fyllingarnar eftir. Samgönguráðherra mætti á staðinn til að fylgjast með framkvæmdum. Mynd: Gunnar Sníkjudýr veldur iðrakveisu á Akranesi Orðið hefur vart við áltveðna iðrasýkingu á Akranesi. Um er að ræða sníkjudýr, Giardia lamblia, sem lifir í maga sjúk- linga og veldur magapest. Nokkrir einstaklingar hafa geinst veikir og vilja sumir kenna vatninu á Akranesi um. Bæði Heilbrigðiseftírlit Vestur- lands og Orkuveita Reykjavíltur taka reglulega sýni úr vatninu og hefur ekkert í þeirra niðurstöð- um bent tíl annars en að vatnið á Akranesi sé í góðu lagi. Þetta sníkjudýr berst mjög auðveld- lega á milli manna og hefur ver- ið bent á að ef það væri í vatninu væru flestir ef ekki allir Skaga- menn með hastarlegan niður- gang. Líklegast er því að smitaður einstaklingur hafi borið smit á milli fólks. Reynir Þorsteinsson heilsugæslulæknir á Akranesi sagði í samtali við Skessuhorn að undanfarin ár kæmu reglulega upp tilvik sem þetta bæði á Akranesi og annars staðar á landinu. Eins og áður sagði berst sýkillinn mjög greiðlega á milli manna og er því öllum sem greinast ráðlagt að halda sig heima við þar til þeir verða hressir. I þessu tilviki gildir al- menna reglan að þeir sem eru með iðrakveisu leiti til læknis, hugi vel að hreinlætinu og séu sem minnst innan um annað fólk. Umhverfisstofnun og sótt- varnarlæknir auk heimamanna eru nú að meta hvort grípa þurfi til einhverra frekari aðgerða. Enn sem komið er þykir ekki á- stæða til þess en málið er í ná- kvæmri skoðun. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér nánar einkennin er bent á heimasíðu landlæknis- embættisins og slá þar inn leitar- orðið giardia. -háp Náttúrufræðistofiiun á Hvanneyri? Fulltrúar þéttbýlissveitarfé- laga á Vesturlandi og fulltrúi SSV áttu fund með þingmönn- um Norð-vesturkjördæmis þann 16. febrúar sl. A fundin- um var m.a fjallað um flutning ríkisstofnana á Vesturland en hreyft hefur verið við þeirri hugmynd að flytja Náttúru- fræðistofnun Islands til Hvanneyrar til viðbótar þeim stofnunum landbúnaðarins sem áður hefur verið fjallað um. A fundinum var mest rætt um byggðamál og hlutverk Byggðastofnunar, verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga, tekjustofna sveitarfélaga og sameiningarmál. Einnig var talsvert rætt um aukinn kostnað sveitarfélaga af ýmsum verkefn- um vegna breyttra leikreglna ríkisins. A önnur mál var drep- ið stuttlega, en niðurstaðan var sú að fundurinn hefði verið afar gagnlegur að vanda. -háp Það fór betur en á horfðist þegar tveir ungir ökumenn ráku bíla sína saman á Skagabrautinni sl. föstudag. Að sögn lögreglunnar á Akranesi ætlaði annar ökumaðurinn að reyna framúrakstur en misreiknaði sig með þeim afleiðingum að hann skall á hinni bifreiðinni með þeim afleið- ingum að þær hentust báðar inn í garð og önnur þeirra endaði ferð sfna á húsveggnum. Það þykir mesta mildi að enginn meiðsl urðu á fólki. -háp Borgfirð- ingahátíð Síðastliðinn vetur var haldin Borgfirðingagleði á skemmti- staðnum Broadway í Reykjavík þar sem boðið var upp á fjöl- breytta dagskrá og dansleik á eftir. Þessi uppákoma þótti takast það vel að ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn föstudaginn 5. mars n.k. Dag- skrá hátíðarinnar er í smíðum en þar verður tjaldað til mörgu af því besta sem býðst af borg- firskri menningu í dag og er ljóst að af nógu er að taka. Það er hljómsveitin Stuð- bandalagið sem hefur veg og vanda af skipulagningu hátíð- arinnar. GE Utlit íýrir rekstrarhalla Samkvæmt bráðabirgða- uppgjöri fyrir síðasta rekstrar- ár Fjölbrautaskólans Vestur- lands þá er u.þ.b. fjögurra milljóna króna halli á rekstri skólans. Þetta kom fram hjá Herði Helgasyni skólameist- ara á fundi skólanefndar sem haldinn var 11. febrúar sl. Einnig kom fram að enn er ekki Ijóst hvort skólinn hefúr fengið allt það rekstrarfé ffá ríkinu sem honum bar að fá á sl. ári. -háp Dregst á langinn Urskurður Skipulagsstofn- unnar urn Hellisheiðarvirkjun var á loka metrunum þegar Skessuhom var búið til prent- unar. Eins og áður hefur ver- ið greint ffá bárust fjórar at- hugasemdir við framkvæmd- ina auk lögbundinna um- sagna. Að sögn Jakobs Gunn- arssonar sérfræðings hjá Skipulagsstofnun er hinu lög- formlega ferli ekki lokið. Nú fer í hönd eins mánaðar kæra- ffestur og ef kærur berast hef- ur umhverfisráðherra 8 vikur til þess að svara þeim. Norð- urál hefur enn ekki tekið formlega ákvörðun um hvort af stækkun verði. Ragnar Guðmundsson ffamkvæmda- stjóri fjármálasviðs Norðuráls segir að þeir séu á síðustu metrunum í að klára þeirra vinnu. „Það hefúr enn ekkert koinið upp sem ýtir okkur út af borðinu. Enn er þó ekki allt komið fram þannig að á- kvörðun okkar gæti dregist eitthvað," sagði Ragnar en gert var ráð fyrir að ákvörðun lægi fyrir um næstu mánaða- mót. Það er því enn ekki komið á hreint hvort af Norðuráls- stækkun verður eður ei en víst er þó að málið þokast áleiðis. -háp Hótel Hamar Akvörðim hefur verið tekin um að fyrsta golfhótel Iands- ins muni rísa við golfvöllinn á Harnri (við Borgarnes) fyrir vorið 2005. Það er Hjörtur Árnason vert í Shellstöðinni í Borgarnesi sem vinnur að undirbúningi hótelbygging- arinnar en í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 40 manna hóteli sem reist verður í nágrenni golfskálans. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.