Skessuhorn - 18.02.2004, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004
otttsjunu,..
Keppni í lestri á Kleppjámsreykjum
Leshestar: Frá vinstri: Systurnar Erna Dögg og Herdís Ásta, Þorsteinn
Bjarki, Svala Kristfríður, Gunnhildur Birna og Hafdis Lind.
Nú er lokið vikulangri keppni
í lestri, sem yngri árgangar skól-
ans á Kleppjárnsreykjum hafa
með sér. 1. og 2. bekkur keppti
við 3. og 4. bekk, en 5. bekkur
keppti við þann 6.1 stuttu máli
sagt höfðu yngri árgangarnir
betur í báðum tilfellum og voru
æði stoltir yfir árangrinum. Þeir
nemendur, sem lásu mest í
hverjum bekk, fengu bók í við-
urkenningarskyni.
Þau eru, Herdís Asta Páls-
dóttir í 1. bekk, Þorsteinn Bjarki
Pétursson í 2. bekk, Gunnhildur
Birna Björnsdóttir í 3. bekk,
Svala Kristfríður Eyjólfsdóttir í
4. bekk, Ema Dögg Pálsdóttir í
5. bekk og Hafdís Lind Haf-
steinsdóttir í 6. bekk.
Keppni í þessum dúr er orðin
árviss í skólanum og einhugur
ríkir meðal kennara og foreldra
um að standa vel við bakið á
bömunum við að Iesa bækur sér
til gagns og ánægju. Leyfilegt er
að lesa fyrir börnin, enda er það
talin ein besta hvatningin og
þjálfunin fyrir lestrarnám og
máltilfinningu.
Bragi Þór Svavarsson, herra Bifröst 2003, krýnir arftaka sinn, Bárð
Örn Gunnarsson. Ungfrú Bifröst 2004, Theodóra Thorlacius, fylgist
spennt með. Myndir: Þorgerður Gunnarsdóttir
Snorrastofa - Fyrirlestur í héraði:
Ferð um fomar slóðir
Þekktur leikstjóri í
Grundaskóla
I Grundaskóla er nú staddur
þekktur breskur leikskóli að
naíhi Tom Royes sem hefur
unnið kynningar fyrir margt
frægt popptónlistarfólk. Tom
þessi sem leikstýrt hefúr m.a.
U2, Blur og Radiohead, er
þessa vikuna að aðstoða hóp
nemenda í 9. og 10. bekk
Grundaskóla sem er að vinna
að gerð tónlistarmyndbanda.
Krakkarnir hafa samið þrjú lög
á tölvur og eru nú að hefja
myndbandagerð við þau. For-
sögu þessa samstarfs Toms og
Grundaskóla má rekja til
Skagameyjarinnar Svönu Gísla-
dóttur sem vinnur ásamt Tom
hjá kvikmyndafyrirtækinu
Blackdog Films. Svana fékk
Tom til að koma á tengslum við
ráðstefnuna Breyttir kennslu-
hættir sem haldin verður í
Nemendur fengu góð ráð um
handrit tónlistarmyndbandanna
frá Tom og Svönu.
Grundaskóla um miðjan næsta
mánuð. A ráðstefnunni munu
svo nemendurnir kynna af-
rakstur myndbandagerðarinnar
og sýna myndböndin þrjú.
Þegar blaðamann bar að garði
voru krakkarnir í handritagerð
og greinilegt að stórfenglegar
hugmyndir voru í fæðingu.
Stórkostleg tilþrif á Bifrovision
Bifrovision var haldin með
pompi og pragt síðastliðið
laugardagskvöld. Var að vanda
mikið lagt í keppnina og þrátt ™
fyrir að tilþrifin vantaði hvergi
þá var í sumum tilfellum jafnvel kj
enn meira Iagt í búninga og
annan umbúnað en í sönginn
sjálfan.
Anna Bergljót Thorarensen var veruiega
„lcy spicy“ og á sjálfsagt heima í
Koooooópavogi!
Sigurvegararnir voru þeir Þorgrímur
Darri Jónsson, Jón Helgi Guðnason og
Bárður Steinn Róbertsson og sungu þeir
sig inn í hug og hjörtu viðstaddra og þótt
víðar væri leitað, eflaust.
Sex í sveit á vetrarhátíð í
Söngsveitin Sex í sveit: Á myndinni eru frá vinstri Karl Jóhann Jó-
hannsson, Gunnar Kristjánsson, Kristján Guðmundsson, Geirmundur
Vilhjálmsson, Kristán Magni Oddsson og sitjandi fyrir framan Friðrik
Vignir Stefánsson, stjórnandi og undirleikari.
Sönghópurinn Sex í sveit frá
Grundarfirði verður með söng-
skemmtun á Vetrarhátíð Reyk-
víkinga sem haldin er nú í
þriðja sinn dagana 19. - 22.
febrúar. Sönghópurinn ásamt
undirleikara og stjórnanda
Friðrik Vigni Stefánssyni mun
koma fram á sérstakri Arbæjar-
hátíð Vetrarhátíðarinnar
sunnudaginn 22. febrúar nk. kl
13.30 og verður hún haldin í
hinu nýja húsi Orkuveitu
Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1. A
efnisskrá verður alþýðutónlist
úr ýmsum áttum, bæði gömul
og ný. Mörg laganna eru alveg
ný á efnisskrá sönghópsins og
verður því um ffumflutning að
ræða á þeim lögum.
Sönghópurinn hefur starfað í
7 ár og haldið tónleika á Snæ-
fellsnesi, Vesturlandi, Reykjavík
og síðast í Reykholtskirkju í
Borgarfirði. Sex í sveit gaf út
geisladiskinn „A lygnu kvöldi“
sumarið 2002 og stefnir að út-
gáfu á nýjum geisladiski síðar á
þessu ári.
Sem fyrr segir eru tónleikar
Sex í sveit í sal Orkuveitu
Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1,
sunnudaginn 22. febrúar kl.
13.30 og er aðgangur ókeypis
og öllum heimill. Tilvalið er að
nota tækifærið til að skoða í
leiðinni hið nýja hús Orkuveit-
unnar. (fréttatilkynning)
Þriðjudaginn 23. febrúar
klukkan 20:30 mun Þorgrímur
Gestsson blaðamaður halda
fyrirlestur sem nefnist: „Ferð
um fornar slóðir.“
Sumarið 2001 ferðaðist Þor-
grímur til Noregs í þeim til-
gangi að feta fornar slóðir sem
segir frá í Islendingasögunum.
1 fyrirlestrinum mun hann segja
ferðasögu sína en í henni fléttar
Þorgrímur saman ferðalýsing-
unt úr fornsögunum, eigin upp-
lifun og segir ffá samskiptum
við þá Norðmenn sem verða á
vegi hans, en fjölmargar munn-
mælasögur lifa enn meðal íbúa
á söguslóðuin í Noregi.
Þorgrímur nálgast viðfangs-
efni sitt sem blaðamaður í leit
að heimildum með fornsögurn-
ar sem nokkurs konar vegvísi
líkt og tíðkaðist meðal margra
erlendra ferðamanna sem sóttu
ísland heim á á 19. öldinni.
Þorgrímur Gestsson er
kunnur útvarpsmaður, blaða-
maður og rithöfundur. Fyrir-
lestur sinn byggir hann á nýút-
kominni bók sinni, Ferð um
Snorri Sturluson.
fornar sögur, sem kom út 2003.
Þorgrímur er einnig höfundur
bókarinnar; Mannlíf við Sund.
Saga Laugarness í Reykjavík frá
landnámi sem gefin var út
1998.
Fyrirlestur Þorgríms hefst
klukkan 20:30 þriðjudaginn 24.
febrúar í húsnæði Snorrastofu í
Reykholti.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Boðið verður upp á kaffi í
hléi.
('fréttatilkynning)