Skessuhorn - 18.02.2004, Side 5
^&usunu..
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004
5
AJIÚSD
Kirkjubraut 14 - 300 Akranes
Sími 431 5500 - Fax 431 5511
Konudagurinn 22. fgbrúar
Bjóðið elskunni, systurinni, mömmunni eða
vinkonunni út að borða í rómantísku umhverfi
Bjóðum upp á þriggja rétta máltíð:
• Marineraðan humar á ristuðu brauði íforrétt,
• Hunangsgljáð lambafile í aðalrétt og
• Tiramishu tertu og kaffi í eftirrétt.
Verð aðeins kr. 2.460.- pr. mann
--------mA----------------------
Bjóðið þeim upp á ÞOltllAHLADlíOltl)
hlaðið krœsingum
á aðeins kr. 2.100 . ” pr.mann
MOTEL . ",
Qisti- og veitingastaður
Sími 437 2345 - Fax 437 2344 - motel@centrum.is
Auglýsing um breytingu a
deiliskipulagi
^ framhaldsskólalóbar vib
Grundargötu í Grundarfiröi
Með vísan í 1. málsgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst eftir athugasemdum við breytingu á giídandi deiliskipulagi framhaldsskólalóðar
við Grundargötu í Grundarfirði.
Svæðið sem tillagan tekur til;
Tillagan tekur til svæðis sem liggur frá Grundargötu milli lóða nr. 42 og 50 að Sæbóli
milli lóða nr. 11 og 25. Skipulagssvæðið er í landi Grundarfjarðarbæjar.
Breytingin felst í eftirfarandi;
Gildandi deiliskipulag nær yfir 6.265 fm svæði milli lóða nr. 42 og 50 við Grundargötu.
Þar var gert ráð fyrir 5.890 fm lóð fyrir framhaldsskóla og tengda starfsemi. Austan við
lóðina var gert ráð fyrir göngustíg en grænu svæði vestan við hana. I nýrri
deiliskipulagstillögu er gert ráð fyrir að svæðið stækki til norðurs að Sæbóli. Svæðið
er nú 9.216 fm og lóð fyrir framhaldsskóla og tengda starfsemi stækkar jafnframt í
8.722 fm. Göngustígur austan lóðarinnar helst óbreyttur en græna svæðið nær nú að
Sæbóli.
Deiliskipulag Framhaldsskóðalóðar við Grundargötu sem áður var samþykkt, fellur
úr gildi.
Deiliskipulagssvæðið er 9.216 fm að stærð og gerir ráð fyrir lóð fyrir framhaldsskóla
og starfsemi tengda honum. Framhaldsskólinn verður staðsettur við Grundargötu, sem
er stofnvegur.
Pósthús er vestan lóðarinnar en austan hennar eru veitingastaður og íbúð með verslun
á jarðhæð. Við norðurhluta svæðisins, við Sæból, er íbúðarbyggð. Skv. fomleifaskráningu
sem unnin var sumarið 1998 eru engar fornminjar á svæðinu.
Uppdráttur ásamt greinargerð með frekari upplýsingum liggja frammi á bæjarskrifstofu
Grundarfjarðar, Grundargötu 30, á skrifstofutíma, frá og með 25. febrúar til 24. mars
2004.
• Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillöguna.
Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera skriflegar og berast á bæjarskrifstofu
Gmndarfjarðar, Grundargötu 30, eigi síðar en 7. apríl 2004.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna innan tilskilins frests, teljast vera samþykkir
henni.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn Grundarfirði