Skessuhorn - 18.02.2004, Page 7
jtttsaunu.-. 5
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004
7
Snæfellsnes í fararbroddi
Fyrsta landsvæðið á Norðurhveli jarðar
sem fær umhverfisvottun Green Globe
Frá afhengingu skýrslunnar í Iðnó í gær. F.v.: Guðbjörg Gunnarsdóttir,
þjóðgarðsvörður Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls, Óli Jón Gunnarsson,
bæjarstjóri Stykkishólms, Hildibrandur Hildibrandsson oddviti Helga-
fellssveitar, Eyþór Björnsson bæjarstjóri Grundarfjarðar, Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra, Magnús Oddsson ferðamálastjóri, Guð-
bjartur Gunnarsson, oddviti Eyja og Miklholtshrepps og Kristinn Jón-
asson bæjarstjóri Snæfellsbæjar.
I gær afhentu sveitarstjórnir á
Snæfellsnesi Sturlu Böðvarssyni,
samgönguráðherra skýrsluna
„Stefha í sjálfbærri þróun um-
hverfis- og samfélagsmála á Snæ-
fellsnesi til ársins 2015“ Stefnu-
mótunin er liður í undirbúningi
að vottun Green Globe 21 á
Snæfellsnesi sem sjálfbæru sam-
félagi með megináherslu á ferða-
þjónustu. Hún er byggð á skýslu
Samgönguráðuneytisins sem ber
heitið: Islensk ferðaþjónusta -
framtíðarsýn. Sveitarfélögin á
Snæfellsnesi eru þau íyrstu sem
vitað er að hafi mótað sér fram-
tíðarstefnu samkvæmt henni, en
þar er megináherslan lögð á sjálf-
bæra þróun. Þegar kemur að því
að Green Globe votti Snæfells-
nes sem umhverfisvænt ferða-
þjónustusvæði verður það í fýrsta
sinn sem heil sveitarfélög og heilt
landsvæði, á norðurhveli jarðar
fá vottun af þessu tagi. Stefnt er
að því að það verði næstkomandi
haust.
Sveitarfélögin sem að verkefn-
inu koma eru Snæfellsbær,
Grundaríjörður, Stykkishólmur,
Helgafellssveit og Eyja og
Miklaholtshreppur.
GREEN GLOBE 21 eru al-
þjóðleg samtök sem votta um-
hverfisstjórnun fyrirtækja og
stofnana innan ferðaþjónustunn-
ar. Þau njóta alþjóðlegrar viður-
kenningar og hafa nú vottað eða
vinna að undirbúningi á vottun
fýrirtækja í yfir fimmtíu löndum.
Formlegur undirbúningur að
vottun Snæfellsness hófst þann
15 september á síðasta ári. Verk-
efnisstjórn er í höndurn Guðrún-
ar og Guðlaugs Bergmann ffá
Leiðarljósi ehf. á Hellnum og
Stefáns Gíslasonar ffá Umís ehf.
í Borgarnesi.
Gerð var úttekt á stöðu sveit-
arfélaganna í helstu málaflokk-
um sem snúa að viðmiðum
GREEN GLOBE 21. f fram-
haldi af úttektinni var unnin
rúmlega 30 síðna skýrsla um
þann þátt verkefnisins. Frum-
skýrslan var unnin á ensku, en
þýðing yfir á íslensku er í undir-
búningi.
Ymsar áhugaverðar niðurstöð-
ur komu fram í skýrslunni, m.a.
að:
Sú þjóð sem gistir flestar
gistinætur á Snæfelisnesi (tölur
frá 2002) eru íslendingar sem
gista yfir 15.000 gistinætur, á
meðan Þjóðverjar sem koma
næst á eftir eru einungis með
rúmlega 5.500 gistinætur af
þeim rúmlega 38.000 gistinótt-
um sem skráðar eru hjá hótelum
og gistiheimilum. Samkvæmt
tölum frá þremur stærstu sveit-
arfélögunum skila þau inn til
endurvinnslu um 950.000
drykkjarumbúðum (plast, ál,
gler). Þá má nefna að áætlað er
að rúmlega 100.000 ferðamenn
hafi komið til Snæfellsness árið
2002.
Strax í upphafi undirbúnings-
ferilsins ákvað samgönguráðu-
neytið að styðja verkefni í sam-
ræmi við ferðamálastefiiu stjórn-
valda og hefur það styrkt það
bæði með fjármagni og aðgagni
að hverskonar upplýsingum.
I ræðu sinni við afhendingu
skýrslunnar sagði Kristinn Jón-
asson bæjarstjóri Snæfellsbæjar
m.a.: „Eg lít svo á að með þessu
verkefni sé á margan hátt verið
að brjóta blað. I fyrsta lagi tel ég
að sveitarstjórnirnar á Snæfells-
nesi hafi sýnt mikla framsækni
þegar þær ákváðu að leita eftir
vottun frá GREEN GLOBE 21.
Jafnframt vil ég sérstaklega
þakka samgönguráðherra fýrir
að hafa stutt við bakið á okkur til
að geta látið þetta verkefni verða
að veruleika. Ég tel að þar og
með skýrslu sinni um framtíðar-
sýn íslenskrar ferðaþjónustu hafi
hann lagt grunninn að því að
horft sé lengra inn í framtíðina
þegar unnið er að skipulagsmál-
um ferðaþjónustunnar í heild
sinni hér á landi.“
Þá sagðist Kristinn líta svo á
að sveitarfélögin hefðu yfirstigið
gamlar samkeppniserjur með því
að sameinast um þetta verkefni,
sem væntanlega gæti orðið
grunnur að stjórnsýslulegri sam-
einingu þeirra.
Væntanleg vottun Snæfells-
ness hefur vakið umtalsverða at-
hygli erlendis og m.a. segir Guð-
laugur Bergmann að forsvars-
menn Green Globe bindi vonir
við að Island geti orðið fýrsta
landið sem fær vottun samtak-
anna. GE
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIB0RGARNESI
KVELDULFSGATA 6, Borgarnesi
íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi, 124 ferm. og
bflskúr 24 ferm. Forstofa
flísalögð. Stigi og
stigapallur parketiagður,
skápur á stigapalli. Hol,
gangur og stofa
parketlagt. Eldhús
parketlagt, viðarinnr., nýlegar borðplötur og tæki. Baðherb.
flísalagt, sturta. Fjögur herbergi, þrjú parketlögð en eitt
teppalagt. Búr, þvottahús og geymsla. Ibúð í góðu ástandi
inni sem úti.
Verð: 12.500.000
\ ' j
fflBEi
Allar nánori upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 437 1 700, 860 2181, fax 437 1017,
netfang: lit@isholf.is veffang: simnet.is/lit
Fyrirlestur í héraði:
„Ferð um fornar
slóðir“
Þriðjudaginn 24. febrúar klukkan 20:30 mun
Þorgrímur Gestsson blaðamaður halda fyrirlestur
sem nefnist: „Ferð um fornar slóðir” í húsnæði
Snorrastofu í Reykholti.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Boðið verður upp á kaffi í hléi.
Húsnæði til leigu
Fasteignir ríkissjóðs vilja leigja neðangreint húsnœði:
Skrifstofuhúsnæði að Bjarnarbraut 8, Borgarnesi ð 3tÍSt í fur til Má 1197 ngum t rik.is,
Um er að ræða rými á 1. hæð, alls 86 fm a meðtalinni hlutdeild í sameign. Rýmið ski tvær skrifstofur og rannsóknastofu sem he sjálfstæðar dyr út á bílastæði. Húsnæðið et sýnis eftir nánara samkomulagi við Sigurc Einarsson hjá Veiðimálastofnun í síma 437 Óskað er eftir skriflegu tilboði með upplýsi um bjóðanda og leigufjárhæð. Tilboð beris Fasteignum ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík eða í netfang: snaevar@fast fyrir 8. mars nk.
Bókhald - ráðgjöf
endurskoðun
Höfum opnað nýja bókahalds-, ráðgjafar-
og endurskoðunarskrifstofu að
Kirkjubraut 54-56 á Akranesi.
• Þarftu að bœta reksturinn?
• Ertu með álitlega viðskiptahugmynd?
• Er bókhaldið vandamál?
Bókhald og uppgjör
Almenn rekstrarráðgjöf, svo sem markaðsráðgjöf,
fjármálaráðgjöf og endurskipulagning fyrirtækja. Gerð
. viðskiptaáætlana og fleira.
1 Endurskoðun og ársreikningagerð
| Ýmis tengd þjónusta við fyrirtæki og frumkvöðla.
I Verið velkomin að leita upplýsinga um
þjónustu og verð í símum 894-8998
(Magnús) og 898-9255 (Konráð).
Guðbjörg Ólafsdóttir, skrifstofutæknir
Konráð Konráðsson, lögg. endurskoðandi
Magnús Magnússon, rekstrarfræðingur
im.
M2-ráðgjöf ehf
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
sími 433 5500 - fax 433 5501 - m2@m2.is