Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.2004, Side 12

Skessuhorn - 18.02.2004, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 2004 jAtaautnj... Tölvuþjónustan fær úthlutað lóð undir nýtt húsnæði Esjubrautin í andlitslyítmgu Grunnurinn að velgengni hér heima en vaxtarmöguleikarnir sunnan ganga Tölvuþjónustan á Akranesi fékk nú nýverið úthlutað lóð- inni við Esjubraut 49. Aður hafði þeirri lóð verið skipt nið- ur í tvo hluta og hefur þeim nú báðum verið úthlutað. Vignir G Jónsson ehf. fékk þann hluta sem er nær Þjóðbrautinni en Tölvuþjónustan, eins og áður sagði þann hluta sem liggur með Smiðjuvöllum, þar sem bragginn stendur. Vignir G. Jónsson sótti einnig um lóðina við Esjubraut 49 'en bæjarráð úthlutaði Tölvuþjónustunni lóðinni eins og áður sagði. Skessuhorn hitti þá bræður Eirík og Alexander Eiríkssyni, en þeir voru meðal stofnenda Tölvuþjónustunnar árið 1991 og er Tölvuþjónustan í hópi þeirra fyrirtækja í tölvugeiran- um sem er með hvað elsta kennitölu. Að sögn þeirra Ei- ríks og Alexanders er ætlunin að reisa nýtt húsnæði fyrir starfsemina og skapa þar með rými fyrir fyrirtækið til að vaxa og eflast enn frekar en átta manns starfa nú hjá Tölvuþjón- ustunni. Þeir eru bjartsýnir fyrir hönd þessa svæðis og telja að fyrirtæki hér séu að styrkjast og dafna. Bætt þjónusta Húsnæðið sem um ræðir er 360 m2 einingahús frá Smell- inn á einni hæð. Aform Tölvu- þjónustunnar eru að byggja tvö slík hús á lóðinni, annað fyrir þá sjálfa en hitt sem verslunar og skrifstofuhúsnæði og er nú verið að leita eftir samstarfsað- ila um byggingu þess. Með nýju húsnæði vinnst margt, hægt verður að bæta við starfsfólki, verslunin sjálf verð- ur betri og einnig mun þar verða fullkomin hýsingarsalur fyrir netþjóna. Hýsingarþjón- usta er einmitt sá þáttur sem hefur aukist hvað mest hjá Tölvuþjónustunni. „Það eru mörg fyrirtæki sem vilja losna við að hafa netþjóna í sínu hús- næði sem bæði taka pláss og oft- ar en ekki þarf að leggja útí mikla vinnu við loftkælingu á þeim herbergjum þar sem netþjóna eru geymdir. Með hýsingu spara fyrirtækin sér bæði pláss og vinnu. Hér sjáum við um afritunartöku og alla þjónustu við búnaðinn. Segja má að sú ljósleiðaratenging til Reykjavíkur sem við lögðum í samstarfi við LínuNet hafi gert okkur þetta mögulegt,“ sagði Eiríkur. Vöxtur í gegnum göngum „Við höfum þá trú að upplýs- ingafyrirtæki geti vaxið og dafn- að þrátt fyrir að það sé ekki í Reykjavík. I okkar huga eru göngin tækifæri og í dag er staðan sú að við erum með eitt stöðugildi sem er nánast ein- göngu að vinna í Reykjavík. Þar erum við að þjóna traustum stofnunum og fyrirtækjum eins og Seðlabankanum, Orkuveitu Reykjavíkur, Jarðborunum ehf og Biskupsstofu svo eitthvað sé nefnt. Grunnurinn af starfsem- inni okkar er þó þau fjölmörgu fyrirtæki á Akranesi og næsta nágrenni sem við höfum þjónustað í gegnum árin, en vöxtur fyrirtækisins er í gegnum göngin," sagði Alexander. Aætlanir Tölvuþjónustunnar gera ráð fyrir að flutt verði inn í nýtt húsnæði næsta haust. Lóð- ina fær fyrirtækið byggingar- hæfa 1. apríl n.k. og munu byggingarframkvæmdir hefjast þá í kjölfarið. -háp Esjubraut 49 í dag. Líklegt er að margir fagni því að bragginn hverfi og þessi lóð verði nýtt undir annað en geymstupiáss fyrir misfagra muni. Töivumynd af húsunum tveimur sem Tölvuþjónustan hyggst byggja á Esjubraut 49. Fyrirtækið mun sjálft flytja í húsið vinstramegin, nær Smiðjuvöllum. }jó imstiui ug Jýsi i igu i i w ■ l-'jónustuauglýsingar l}j ón ustuuugJýsingui , Parft pú aö gefa út bœkling, dreifibréf, ársskýrslu eða heila bók? Sinnum útgáfuþjónustu fyrir fyrirtæki og félagasamtök Gerum föst verðtilboð í hönnun, umbrot, prentun, textagerð og umsjón slíkra verkefna íó/uáiJoyjóJjjónmta t ()dil Skessuhorn ehf Sími 437-1677 ■ BBBI FYRIRTÆKI - HEIMILI SUMARHÚS Þetta fyrirtæki er vaktað ! NÆTURSÍMI 690 3900, «903901,6903902 Einangrunargler Öryggisgler Speglar Tvöföld líming - 5 ára ábyrgð Gæðavottað frá RB Fljót og góð þjónusta Sendum á staðinn 4 ~— GLER ” ÖLUN Ægisbraut 30 • Akranesi • Sími 431 2028 • Fax 431 3828 Öryggismiðstöð Vesturlands 864 5507 Hársnyrtistofa Hyrnutorgi Borgarnesi sími 4371125 SJOVA JDALMENNAR Borgarbraut 61,310 Borgarnesi. S: 437 1040 Amerískir bílar Get útvegað flestar gerðir Amerískra bifreiða frá Canada bæði nýrra nýlegra og þá lítið notaðra. Innflutningsaðilinn er með 30 ára reynslu í innflutningi bifreiða. Afhendingarfrestur er 1-2 mánuðir. Hafið samband. Gústi í sima 892-4324 MÁLA BÆINN KAllÐAN, EÐA í HVAÐA LIT SEM R1VILT Alhliba málningaverktaki BKYINifÓUFUK Ó. EINARSSON CSM: 894 7134 llejmasmL 435 1447 undi II - Lundarreykjadal -311 Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.