Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2004, Qupperneq 2

Skessuhorn - 05.05.2004, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 2004 jntaaijtiu.- Til minnis Vi5 minnum á dagskrána „Cráttu ekki góða mamma" kl 15:00 í félags- heimilinu Klifi, Ólafsvík Kynning á verkum og lífs- hlaupi Jóhanns Jónssonar skálds frá Ólafsvík. Erindi flytja Egill Þórðarson, Ey- steinn Þorvaldsson pró- fessor og Óskar Guð- mundsson rithöfundur, einnig verða flutt lög eftir Jón Leifs við Ijóð Jóhanns. Við minnum enn fremur á fjölda annarra viðburða sem kynntir eru undir liðn- um á döfinni og samnefnd- um stað á vef Skessuhorns, skessuhorn.is. Þar geta þeir sem vilja koma áhugaverð- um viðburðum á framfæri skráð þá sjálfir, án endur- gjalds. Vecfyrhorfnr Það er búið að vera ansi kalt á okkur Vestlendinga undanfarna daga en nú verður bót á. Helgin á að vera björt og hlý. Sólin tekur reyndar smá hvíld á laugardag en skín skært á föstudag og sunnudag. Cóða helgi. SpMrninj viHMrmetr I síbustu viku var spurt „Trúir þú á drauga?" Flestir töldu sig hafa orðið þeirra varir eða 39,7% þeirra sem svöruðu. 23,8% svörðuðu „Já, en aldrei séð þá eða heyrt." Jafn hátt hlutfall sagðist ekki hafa orðið þeirra vart." 6,3% svöruðu: „Nei, ég held ekki og jafn marg- ir kváðust ekki vita neitt um málið. I þessari viku er spurt: Eru sumarfrí í framhaldsskólum í mátulegri lengd? Takib afstöbu á www.skessuhorn.is Vestlencjinípvr viK^nnar Er Eva Karen Þórðardóttir leiðbeinandi í Kleppjárns- reykjaskóla. Hún hefur þjálfað hina fótafimu nem- endur Kleppjárnsreykja- skóla sem náðu frábærum árangri á íslandsmeistara- mótinu í samkvæmisdöns- um um helgina eins og fram kemur á bls 6. Enn beðið eftir úrskurði um Klifhraunsveg Tíu ár eru síðan Útnesvegur um Ktifraun var úrskurðarður í umhverfis- mat, fyrra sinn. Enn hefur eklá verið gefinn út úrskurður á vegum Skipulags- stofnunar varðandi vegagerð á Utnesvegi á Snæfellsnesi. Mat á umhverfisáhrifum fór fram á síðasta ári og í febrúar rann út ffestur skipulagsstofnunar til að kveða upp sinn úrskurð. Hólm- fríður Sigurðardóttir sviðsstjóri umhverfissviðs hjá Skipulags- stofhun segir að tafir hafi orðið þar sem tímaffekt hafi verið að afla gagna. „Það hafa verið tölu- verð samskipti milli fram- kvæmdaðila og okkar og síðan umsagnaraðila og þetta ferli hef- ur verið tímaffekt. Úrskurðar er hinsvegar að vænta nú í vik- unni.“ Hólmfríður bætir við að það sé að verða regla fremur en und- antekning að farið sé yfir ædað- an úrskurðarffest. „Með síðustu lagabreytingu var svigrúmið aukið og það hefur ítrekað þurft á því að halda,“ segir Hólmfríð- ur. Saga undirbúnings vegagerð- ar á útnesvegi ffá Gröf að Arnar- stapa er orðin býsna löng en tíu ár munu vera síðan framkvæmd- in var fyrst á vegaáætlun. Þá var vegagerðin úrskurðuð í um- hverfismat og var það fyrsta vegaframlcvæmdin sem fékk þann úrskurð samkvæmt löguin um mat á umhverfisáhrifum. Vegarstæðið sem Vegagerðin lagði þá til var nokkru neðar í landinu en núverandi vegstæði og var m.a. tekið tillit til snjó- flóðahættu við val á nýrri leið. I ffamhaldi af úrskurði skipulags- stjóra fór þáverandi umhverfis- ráðherra fram á að gerð yrði at- hugun á snjóflóðahættu á svæð- inu. Sú athugun leiddi í Ijós að núverandi vegstæði er á hættu- svæði. Með hliðsjón af því mót- mælti bæjarstjórn Snæfellsbæjar því að umrædd framkvæmd var úrskurðuð í umhverfismat öðru sinni árið 2002. Vísaði bæjar- stjórn meðal annars til þess að athuganir á gróðurfari og dýra- lífi á svæðinu hefðu þegar farið fram. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar kærði úrskurð skipulagsstjóra tíl Umhverfisráðuneytis en kærunni var hafnað. Fjórar leiðir koma til greina nú en sú leið sem Vegagerðin leggur áherslu á er á svipuðum slóðum og sú sem upphaflega var úrskurðuð til að sæta mati á umhverfisáhrifum, fýrir tíu árum síðan. GE Skemmdarvargar valda miklu tjóni Á þessum lyftara voru allir hjólbarðarnir skornir og sömu meðhöndlun fengu vörubíll og grafa sem stóðu á sama stað. Aðfararnótt sl. laugardags voru unnin skemmdarverk á dekkjum vinnuvéla sem stóðu við Sandblástur Sigurjóns við Höfðasel á Akranesi. Að sögn Sigurjóns Runólfssonar eiganda fyrirtækisins er þetta í þriðja skiptið á jafnmörgum árum sem hann verður fýrir barðinu á ó- prúttnum náungum af þessu tagi. Um verulegt tjón er að ræða því hjólbarðar af því tagi sem hér voru eyðilagðir kosta hver um sig yfir 100 þúsund krónur stykkið enda um að ræða gröfu-, lyftara- og vöru- bílahjólbarða. Aætlar Sigurjón að tjón hans gæti numið 1,5 milljón króna og er ekki komið í ljós hvort tryggingafélag hans bætir skaðann. Þar við bætist tjón vegna vinnutaps, en allar þessar vélar hafa verið notaðar við verkefni sem fyrirtækið hef- ur í sorpmóttöku Gámu. Lög- reglan fer með rannsókn máls- ins og er kallað eftir upplýsing- um um hugsanleg vitni, en eyðileggingin átti sér stað milli klukkan 20 á föstudagskvöld til 8 á laugardagsmorgni. MM Kúnum á Hvanneyri var hleypt út úr gamla fjósinu á staðnum síðastliðinn fimmtudag í fyrsta sinn í síðasta sinn eins og Guðmundur Hallgríms- son ráðsmaður komst að orði. Sem kunnugt er stendur yfir bygging nýs fjóss fyrir Landbúnaðar- háskóiann á Hvanneyri og verður það tekið í notkun í sumar. Hvann- eyrarkusurnar þurftu því að fara aftur inn í gamla fjósið eftir að hafa leikið lausum hala um holt og móa part úr degi. Mynd: GE ■ ■ • Grábrókar- veita Orkuveita Reykjavíkur á- formar að fara í umfangs- miklar vatnsveitufram- kvæmdir í Borgarbyggð eins og fram hefur komið í Skessuhorni. Fyrirhugað er að leggja kaldavatnsveitu úr Grábrókarhrauni í Borgarnes og sumarbústaðasvæði og bæi á þessari leið. Þessa dag- ana er verið að afla tilskilinna leyfa og ræða við landeigend- ur en samkvæmt heimildum Skessuhorns er reiknað með að framkvæmdir hefjist á þessu ári og að þeim ljúki næsta sumar. Aætlað er að heildarkostnaður við verltið verði á fjórða hundrað millj- ónir króna. GE Veiðihom Nú munu fjölmargir veiði- áhugamenn í hópi lesenda Skessuhorns fá eitthvað við sitt hæfi en í næstu viku hefúr göngu sína nýr þáttur í blað- inu sem fjallar um veiðar í vestlenskum ám og vötnum. I ljósi þess að á Vesturlandi eru margar af helstu veiðiám landsins hefur verið samið við Gunnar Bender, blaðamann og veiðimann með meiru um að skrifa um lax- og silungs- veiði á Vesturlandi í hverri viloi í allt sumar. Gunnar er án efa þekktasti blaðamaður landsins á þessu sviði í dag og verður þessi dálkur væntan- lega kærkoinin lesning fyrir á- hugamenn uin veiðiskap. Þá verður einnig fastur dálkur í blaðinu í sumar á veg- um golfklúbbsins Leynis á Akranesi. KB,is slær ígegn Mikil uinræða hefur verið um skammstöfunina KB ffá því sameinað fyrirtæki Kaup- þings og Búnaðarbankans tók hana upp um áramót. Ljóst er að skammstöfunin hefur valdið nokkrum rugl- ingi og samkvæmt heimild- um Skessuhorns er ekki óal- gengt að hringt sé í Kaupfé- lag Borgfirðinga í tengslum við bankaviðskipti og jafnvel haft samband við KB banka til aða kaupa fóðurbæti eða flösusjampó. Þá hefur aðsókn að vef Kaupfélags Borgfirð- inga, kb.is rokið upp úr öllu valdi en vefurinn mun vera sá vinsælasti á Vesturlandi í dag. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns voru 5000 heimsóknir á vefinn á síðustu þremur vikum. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.