Skessuhorn - 05.05.2004, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 2004
úoessunui^
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Simi: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og ábm:
Blaðamaður:
Augl. og dreifing:
Umbrot:
Prentun:
Skessuhorn ehf 433 5500
Gísli Einorsson 899 4098
Mognús Mognússon 894 8998
íris Arthúrsdóttir 696 7139
Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Prentmet ehf.
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass límanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
433 5500
Dóms-
dagur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Mörgum á ég margt gott að þakka en þessa stundina er
ég þó engum jafn þakklátur og hæstvirtum dómsmálaráð-
herra.
Ef ekki væri fyrir hans tilstilli væri ekki enn hægt að
skrúfa frá útvarpi eða sjónvarpi eða fletta dagblaði öðru
vísi en að þar dynji á manni enn ein fréttin af fjölmiðla-
frumvarpinu svokallaða sem trúlega dregur nafn sitt af því
að nánast ekkert annað hefur verið í fjölmiðlum síðustu
tvær vikurnar eða svo. Allt þangað til hæstvirtur dóms-
málaráðherra stal senunni, aftur og nánast nýbúinn.
Hæstvirtur dómsmálaráðherra er eitt af fyrstu lömbun-
um á þessu vori. Fórnarlamb nánar tiltekið. Reyndar mitt
uppáhalds fórnarlamb sem lent hefur í gini úlfsins sem í
stað sauðargærunnar íklæðist kápu jafnréttislaganna sem
eru ekkert lamb að leika sér við.
I sakleysi sínu varð fórnarlambinu það á að skipa karl í
stað konu í embætti hæstaréttardómara þrátt fyrir það að
jafnréttislögin segji að konan eigi að fá það sem hún vill.
An þess að ég ætli mér að fara að andmæla íslenskum
lögum þá get ég ekki að því gert að vera sammála hæstvirt-
um dómsmálaráðherra varðandi það að einu aðstæðurnar
þar sem eðlilegt er að velja karl umfram konu er á kvenna-
fari. Samt veit ég ekki til þess að neitt sé minnst á það í
umræddum jafnréttislögum.
Hvað sem því líður þá hefur hæstvirtur dómsmálaráð-
herra nú hlotið áfellisdóm í þartilgerðum áfellisdómstóli
og fengið þá einkunn að vera ekki dómbær á dómara. Það
er ég reyndar ekki heldur en þrátt fyrir að ég hafi fúlla
samúð með dómsmálaráðherranum hæstvirta þá neita ég
því ekki að það eru gild rök fyrir því að skipa konur í emb-
ætti dómara fremur en karla. Eg hef nefnilega alltaf séð
fyrir mér að dómstólar væru nokkuð þægileg setgögn og
minnugur þess að vís maður sagði eitthvað á þá leið að til
þess hefði Guð skapað konuna með þennan breiða rass að
hún sæti á honum þá tel ég að dómarastarfið ætti að vera
eitt af þessum hefðbundnu kvennastörfúm.
Gísli Einarsson, áfellisdómari
Stjómendur Grunn-
skóla Hellissands
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni hefur Sveinn Þór
Elínbergsson verið ráðinn
skólastjóri hins nýja sameinaða
Grunnskóla Snæfellsbæjar. Nú
hefur verið gengið frá ráðn-
ingu aðstoðarskólastjóra en
Þorkell Cýrusson, aðstoðar-
skólastjóri Grunnskólans á
Hellissandi var valinn úr hópi
umsækjenda.
Uppahflega var gert ráð fyr-
ir að aðalstjórnunarstöðurnar
yrðu tvær en fyrir skömmu var
samþykkt sú breyting á skipu-
lagi skólamála að deildarstjóri
yngsta stigs grunnskólastigsins
fengi aukið stjórnunarhlutverk
við skólann við hlið skólastjóra
og aðstorðarskólastjóra. í síð-
ustu viku var gengið frá ráðn-
ingu Guðrúnar Onnu Odds-
dóttur í stöðu deildarstjóra
yngsta stigsins sem aðsetur
hefur á Hellissandi.
GE
Umdeild tillaga
samþykkt
Á fundi í bæjarráði Akranes-
kaupstaðar sl. fimmtudag var
m.a. tekið fyrir bréf skipulags-
og umhverfisnefndar, dags.
20.4.2004, varðandi
deiliskipulagsbreytingu Mið-
bæjarreitsins á Akranesi (oft
nefnt Skagaverstún). Skipu-
lags- og umhverfisnefnd telur
ekki efnisleg rök til að verða
við þeim athugasemdum og
mótmælum sem fram hafa
komið að öðru leyti en því að
þjónustubygging með Dal-
braut verði tvær hæðir í stað
fjögurra. Nefndin lagði til við
bæjarstjórn að framkomin til-
laga að breytingu á deiliskipu-
lagi verði samþykkt með fram-
angreindum breydngum. Sam-
þykkti bæjarráð tillöguna. Við
afgreiðslu hennar sat Gunnar
Sigurðsson hjá með vísan til
afstöðu fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í skipulags- og um-
hverfisnefnd.
MM
Rifið í Borgarncsi
Borgarbyggð hefur boðið út
rif á þremur húsum í Borgar-
nesi og verður verkið fram-
kvæmt nú í maí. Húsin sem á að
rífa er gamla sláturhúsið við
Brákarbrú sem síðast gegndi
hlutverki timburgeymslu fyrir
Byggingavörudeild KB, Hafn-
arhúsið í Brákarey og stein-
steypt dæluhús á gamla Skelj-
ungsplaninu við Brákarsund.
Njarðtak ehf átti lægsta til-
boð í rif á húsunum, 3.340 þús-
und. Tvö önnur tilboð bárust í
verkið, frá Borgarverk, 3.992
þúsund og ffá HH Vélaleigu,
4.380 þúsund.
Eins og fram hefúr komið er
einnig gert ráð fyrir að gamla
mjólkursamlagshúsið, við
Skúlagötu, verði rifið en þar var
Byggingavörudeild KB síðast
til húsa. Skiptar skoðanir eru
hinsvegar um það mál en húsið
er teiknað af Guðjóni Samúels-
syni.
Sigurður Páll Harðarson
bæjarverkfræðingur Borgar-
byggðar segir að í deiliskipulagi
sem auglýst verður innan tíðar
sé gert ráð fyrir að húsið hverfi.
Síðan á effir að koma í ljós
hvort athugasemdir verða gerð-
ar við skipulagið. GE
Viðburðaveisla endurtekin
Nú í sumar hyggst Safna-
svæðið á Akranesi endurtaka
röð dagskrárviðburða undir
heitinu Viðburðaveisla 2004.
Dagskránni að þessu sinni er
raðað niður á sjö helgar frá og
með 29. maí til og með 10. júlí.
Fyrstu helgina verður haldið
námskeið í grjóthleðslum þar
sem handtök og verklag við
grjóthleðslu fyrr og nú verða
sýnd. Daginn fyrir sjómanna-
dag verður mikill sjávardagur
þar sem Markaðsráð Akraness
og fyrirtæki tengd vinnslu sjáv-
arfangs kynna starfsemi sína
og slegið verður upp mikilli
sjávarréttaveislu í Kútter Sig-
urfara. Um miðjan júní verður
markaðshelgi og opnun sýn-
ingar á uppstoppuðum dýrum.
Á baráttudegi kvenna, þann
19. júní, verður Kleinumeist-
aramót Islands endurtekið.
Jónsmessuhátíð með ratleik,
gönguferðum og varðeldi
verður helgina eftir Jóns-
messu. 3. júlí opnar Páll Guð-
mundsson frá Húsafelli högg-
myndasýningu í Safnaskálan-
um og síðasti dagskrárliður
Viðburðaveislu verða Irskir
dagar; bæjarhátíð Akurnes-
inga. MM
Háskólar í
Borgarfirði
með sameigin-
lega kynningu
Fösmdaginn 7. maí verða
háskólarnir tveir í Borgar-
firði, Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri og Viðskiptahá-
skólinn á Bifröst með sam-
eiginlega náinskynningu.
Kynningin verður í Hyrnu-
torgi í Borgarnesi milli kl.
16.00-19.00. Þar munu
kynningarstjórar skólanna
veita gestum og gangandi
upplýsingar um þá náms-
möguleika sem í boði eru.
Þetta er í annað sinn sem
skólarnir standa að sameigin-
legri kynningu í Hyrnutorgi,
en hún þótti takast vel í fyrra.
Þessi kynning er liður í sam-
starfi háskólastofnana í Borg-
arfirði. Þar er Snorrastofa
með talin, en upplýsingar urn
starfsemi þar niunu einnig
liggja framnti á kynningunni.
Gervigras í
Búðardal
Á síðasta fundi sveitar-
stjórnar Dalabyggðar var
samþykkt að sækja um styrk
frá KSI til að setja gervigras
á grasvöll við Grunnskólann
í Búðardal. Samkvæmt
heimildum Skessuhorns
verður sótt um styrk til að
byggja svokallaða sparHelli,
þ.e. litla gervigrasvelli, í
flestum þéttbýlisstöðum á
Vesturlandi.
Ályktað
um háskóla
Á 94. fundi hreppsnefndar
Borgarþarðarsveitar var fjall-
að um frumvarp til breytinga
á lögum um búnaðarffæðslu.
I kjölfar urnræðu um málið,
sem var mjög jákvæð, var eft-
irfarandi bókun samþykkt:
„Sveitarstjórn Borgar-
fjarðarsveitar fagnar fram-
komnu frumvarpi um
breytingar á lögum um bún-
aðarffæðslu nr. 57/1999, með
síðari breytingum. Með
ffumvarpinu er enn frekar
varðaður sá vegur að treysta
Hvanneyri í sessi sem mið-
stöð ffæða og rannsókna í ís-
lenskum landbúnaði. Sveit-
arstjóm heitir því að vinna
hér eftir sem hingað til með
Landbúnaðarháskólanum og
landbúnaðarráðuneytinu við
uppbyggingu staðarins
þannig að hann geti með
sónia tekið við þeirri starf-
semi sem honum er ætlað.“