Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2004, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 05.05.2004, Blaðsíða 3
§fflgSSUH©ísM MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 2004 3 Century Aluminum Company hefur nú gengið endanlega frá kaupum á öllu hlutafé í Norðuráli hf. á Grundartanga. Þessi viðburður er í senn áhugaverður frá sjónarhóli íslensks atvinnulífs og Century Aluminum vegna efnahagslegs mikilvægis Norðuráls. Century Aluminum býður Norðurál velkomið í hóp álvera sinna. Fyrir í samstæðunni eru 224.000 tonna álver í Hawesville, Kentucky, 170.000 tonna álver í Ravenswood, Vestur-Virginíu og tæpur helmingshlutur í 222.000 tonna álveri í Mt. Holly, Suður-Karolínu. Höfuðstöðvar Century Aluminum eru í Monterey í Kaliforníu. Áliðnaður er orðinn ein öflugasta útflutningsgrein íslensku þjóðarinnar og ný meginstoð atvinnulífsins. Uppbygging Norðuráls er liður í aukinni verðmætasköpun sem felst í því að breyta vatnsafli og jarðhita í margþættan efnahagslegan ávinning. Norðurál hefur skapað íslendingum trausta atvinnu og átt verðugan þátt í að efla búsetu í nágrannasveitarfélögunum. Að mati okkar hjá Century er starfsemi Norðuráls á heimsmælikvarða og eykur mjög á breidd samstæðunnar. Ljóst er að samkeppnishæfni Norðuráls mun verða okkur drjúgur liðsauki í alþjóðlegri samkeppni við önnur háþróuð og vel rekin álfyrirtæki víða í heiminum. Með kaupunum á Norðuráli erum við jafnframt að framfylgja þeirri stefnu að dreifa fjárfestingum okkar víðar og auka fjölbreytni þeirra. Nokkur veigamikil atriði skiptu sköpum um þá ákvörðun okkar að kaupa Norðurál. Þar má nefna þróaða grunngerð íslensks samfélags, stöðugieika í stjórnarfari og efnahagsmálum, góða staðsetningu milli Norður-Ameríku og Evrópu, aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og síðast en ekki síst skilvirka stjórnun á umhverfismálum. Einnig er vert að nefna atfylgi stjórnvalda, sveitarfélaga og verkalýðsfélaga sem hefur reynst framgangi Norðuráls afar mikilvægt. Þessi atriði eru jafnframt forsenda þeirra áforma okkar að leggja fram 23 milljarða króna til þess að framleiðslugeta Norðuráls nái að tvöfaldast árið 2006 og verði þar með 180.000 tonn. Við kunnum að meta þau tengsl sem sameiginlegir hagsmunir skapa og við munum leitast við að efla þau og auðga. Við munum einnig leggja okkur fram um að vera góðir þegnar á íslandi sem við lítum nú á sem heimaland okkar. CenturyALUMiNUM EFLIR almannatengsl / HNOTSKÓGUR

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.