Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2004, Qupperneq 7

Skessuhorn - 05.05.2004, Qupperneq 7
^ssunu^ MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 2004 7 Ný kvensjúkdóma- og fæðingadeild við SHA Stórbætt aðstaða fyrir mikilvæga starfsemi Jón Kristjánsson og Birgitta Guðnadóttir klippa á strenginn. Ný kvensjúkdóma- og fæð- ingadeild við Sjúkrahús Akra- ness var tekin í notkun föstudag- inn 30. apríl sl. Það var heil- brigðisráðherra, Jón Kristjáns- son sem opnaði deildina form- lega þegar hann, ásamt Birgittu Guðnadóttur fyrsta barninu sem fæddist á Sjúkrahúsinu á Akra- nesi fyrir 52 árum síðan, klipptu saman á naflastreng í stað hefð- bundins borða. Strengur þessi var að vísu aðeins haganlega gerð eftirlíking úr pappa af þeirn nafnlastrengjum sem í ffamtíð- inni verða klipptir á hinni nýju fæðingardeild. Bætt þjónusta og betri aðstaða Deildin er til húsa á 2. hæð sjúkrahússins á þeim stað sem áður hýsti skurðdeild. I máli Guðjóns Brjánssonar fram- kvæmdastjóra SHA kom m.a. ffam að það hafi verið vanda- samt úrlausnarefhi að umbreyta gömlu húsnæði svo það mætti svara vaxandi kröfum um að- búnað og öryggi. Sagði hann að þrengsli hefðu verið mikil fyrir fæðinga- og kvensjúkdóma- þjónustu allt fram- kvæmdatímabilið en svo brigði nú við að fæðingum fjölgaði sem aldrei fyrr og kvensjúkdómaaðgerð- um einnig þannig að eftirvæntingin eftir opnun nýrrar deildar væri mikil og stundin kærkomin. Guþjón sagði að nú væri verið að betrumbæta þjónustu og starfs- aðstöðu kvennadeildarinnar tíl muna. Gjafasjóður Sigurðar Nýja deildin er vel búin og á henni má jaffivel sjá það nýstár- legasta á þessu sviði; nýjungar í búnaði sem ekki hefur sést fyrr á Islandi, t.d. nýtt fæðingarrúm, sérsmíðað fæðingarkar og ýms- an tækjabúnað. Bæði rúm og vatnslaug eru fjármögnuð úr gjafasjóði Sigurðar R Pétursson- ar heitins, en hann gaf andvirði íbúðar sinnar á Akranesi til fæð- ingardeildarinnar og í þágu ný- fæddra barna. Sigurður lést haustið 2001. Auk Guðjóns tóku ýmsir fleiri tíl máls, gjafir voru færðar og hlý orð mælt í garð stofnunarinnar og starfseminnar þar. Fyrsta bamið fætt Að vígsluathöfn lokinni var gesmm boðið að skoða bygging- una og þiggja kaffiveitíngar. Meðan gestir fengu að skoða hina nýju deild fæddist síðasta barnið á eldri fæðingardeildinni. Það var síðan sl. mánudag sem fyrsta barnið fæddist á nýju fæð- ingarstofunni þegar Helga R Höskuldsdóttir ljósmóðir, og starfsaldursforseti starfandi ljós- mæðra á SHA, tók á móti litlum dreng þeirra Þórdísar Jónsdótt- ur og Erps Snæs Haukssonar. Þar með var deildin að fullu komin í notkun. MM Það er ekki amalegt að koma í heiminn á nýju fæðingardeildinni á Akra- nesi þegar einhver þeirra tekur á móti manni. Hér eru flestar Ijósmæður SHA saman komnar á vfgsludaginn. Góð og persónuleg þjónusta þeirra og annars starfsfólks fæðingardeildar SHA hefur spurst víða, enda velja sífellt fleiri konur Akranes og koma þær víða að af landinu. Útbobá skólaakstri Borgarbyggb auglýsir eftir tilboöum í skólaakstur meb nemendur viö Grunnskólann í Borgarnesi. Um er að ræða 4 akstursleiðir með nemendur af Mýrum (ein leiðin skiptist í tvo hluta) áætlað samtals um 316 km á dag og 1 akstursleiö innan Borgarness sem er um 13 km á dag. Hægt er að bjóða eina akstursleið eða fleiri en eina. Verkib er bobib út til fjögurra ára, þab er skólaárin 2004 - 2005, 2005 - 2006, 2006 - 2007 og 2007 - 2008. Útboðsgögn fást á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, Borgarnesi gegn 2.000 kr. greiðslu. Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 föstudaginn 4. júní 2004 á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar þar sem þau verða opnuö í viðurvist þeirra sem þess óska. Bœjarritari Borgarbyggbar BORGARBYGGÐ Stykkishólmsbœr Verkfræð ingur tæknifræð ingur arkitekt Laust er starf tæknimanns/ byggingarfulltrúa hjá Stykkishólmsbæ Starfssvið er yfírstjórn tæknisviðs og áhaldahúss, verklegar framkvæmdir Stykkishólmsbæjar og stofnana hans, viðhald mannvirkja o.fl. Umsjón með skipulags- og byggingamálum, jafnframt störfum byggingarfulltrúa. Upplýsingar gefur Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í síma 438-1700. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Stykkishólmsbæjar, Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi fyrir 17. maí n.k. í Stykkishólmi ertu hjá “góðufólki” með góða grunn-, leik- og tónlistarskóla, mjög góð íþróttaaðstaða, sjúkrahús og heilsugæslustöð. „Láttu Hólminn heilla þig“ Bæjarstjóri SPARISJOÐUR MYRASYSLU - hornsteinn íhéraði nnissút Skráning hjá þjónustufulltrúum

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.