Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2004, Page 16

Skessuhorn - 05.05.2004, Page 16
 POSTURINN allur pakkinn Háhraða internet til sjávar og sveita Þráðlausar netlausnir fyrir heimili og fyrirtæki SÍMI 544 4 M /AtójQLVUlSNDIHH ÍA ____SlMI 894 4980_ www.spm.is Grandi og HB sameinast í HB - Granda hf fyrirtækisins hafa aðsetur. Undan- skildir eru þó yfir- menn uppsjávar- fiskdeildar og starfsmanna- og umhverfismála, auk fjárreiðu- stjóra, en þeir munu hafa aðsetur á skrifstofu fyrir- tækisins á Akra- Stjórnir Granda hf. og Har- aldar Böðvarssonar hf. hafa á- kveðið að sameina fyrirtækin. Samþykktir Granda hf. gilda um hið sameinaða félag að öðru leyti en því að að nafn félagsins breyt- ist í HB Grandi hf. og telst Grandi hf. vera yfirtökufélag. Samruninn miðast við 1. janúar 2004 og tekur hið nýja félag við öllum rekstri, eignum, skuldum, réttindum og skyldum Haraldar Böðvarssonar hf. ffá þeim tíma. Breytingin er gerð til að ein- falda og hagræða í rekstri fyrir- tækjanna. Eins og kunnugt er keypti Grandi hf. 100% hlutafjár Haraldar Böðvarssonar hf. fyrir 7.800 milljónir króna. Vegna kaupanna var stofnað til skulda samtals að fjárhæð um 3.000 milljónir króna, en 4.800 millj- ónir króna voru greiddar með reiðufé Granda. Þar af fengust 985 milljónir króna við sölu á þeim tæplega 10% af eigin hlut- um félagsins, sem heimamenn á Akranesi keyptu. Annað reiðufé fékkst að mestu við sölu á eign- arhlutum Granda hf. í öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum. Sturlaugur forstjóri Nýtt skipurit tekur gildi frá og með 1. maí. Forstjóri HB Granda hf. verður Sturlaugur Sturlaugsson frá HB og aðstoð- arforstjóri verður Kristján Þ. Davíðsson frá Granda. Yfir- menn fjármála, útgerðar, land- vinnslu og veiða og vinnslu upp- sjávarfisks verða sömu menn og áður stýrðu þessum deildum hjá Granda hf. Haraldur Sturlaugs- son fráfarandi framkvæmdastjóri HB hf verður yfirmaður starfs- manna- og umhverfismála og Eggert B. Guðmundsson yfir- maður markaðsmála. Nýr fjár- reiðustjóri er Bergþór Guð- mundsson, sem gengt hefur starfi fjármálastjóra Haraldar Böðvarssonar hf. mörg undan- farin ár. Höfuðstöðvar og aðal- skrifstofa HB Granda hf. verða í Reykjavík og þar mun yfirstjórn Sérhæfð vinnsla Heildaraflaheimildir félagsins í bomfisktegundum á fiskveiði- árinu sem er að líða eru tæp 56.000 tonn og að teknu tilliti til kvótastöðu í upphafi og lok árs, kvótaleigu og tegundatilfærslu er áædað að heildarbotnfiskafli ársins 2004 verði rúm 60.000 tonn. Karfi er áætlaður um 56% af afla, ufsi um 14%, þorskur um 14% og ýsa um 7%. Áædað er að úthlutaður kvótí félagsins af uppsjávartegundum verði sam- tals um 177.000 tonn á árinu. Rekstur skipa HB Granda hf., sem eru samtals 12 talsins, 5 frystiskip, 4 ísfiskskip og 3 upp- sjávarveiðiskip, hefur þegar ver- ið samræmdur. Vinnsla fiskiðjuveranna í Reykjavík og á Akranesi verður sérhæfð á þann hátt að í Reykja- vík verður unninn karfi og ufsi en á Akranesi þorskur og ýsa. Gert er ráð fyrir að í Reykjavík verði árlega unnið úr um 20.000 tonnum af hráefhi og á Akranesi úr um 10.000 tonnum. Bæði fiskiðjuverin munu leggja aukna áherslu á vinnslu ferskra afurða og keypt hefur verið ný sérhæfð vinnslulína fyrir ferskar afurðir sem sett verður upp á Akranesi í maímánuði. Oll frysting upp- sjávarfisks og loðnuhrogna verð- ur á Akranesi. Heildarfjöldi starfa HB Granda hf. verður um 600. A bls 8 og 9 er ítarlegt viðtal við nýráðinn forstjóra HB - Granda, Sturlaug Sturlaugsson. Sportbill að utan - 7 manna ættarmót að innan Corolla Verso er byltingarkenndur 7 manna fjölskyldubíll. í honum má finna Toyota-Full Flat 7 kerfið þar sem með einu handtaki má breyta Corolla Verso úr 2ja manna flutningavagni í 7 manna fjölskyldubíl. Corolla Verso er búinn 1,8 lítra WT-i vél sem skilar 129 hestöflum við 6.000 snúninga. Hann er búinn VSC stöðugleikakerfi, 9 loftpúðum sem hlífa öllum farðegum bílsins, ABS hemlakerfi með BA. Corolla Verso er fáanlegur með hefðbundinni beinskiptingu eða rafstýrðri beinskiptingu og kostar frá kr. 2.229.000. Corolla Verso. Hversu Verso viltu vera? www.toyota.is Opið á Nýbýlaveginum lau. 12-16 og sun. 13-16. TODAY TOMORROW TOYOTA Sjaldan hefur einn bíll boðið upp á jafn marga möguleika með jafn einföldum hætti. Með einu handtaki breytirðu Corolla Verso úr 2 manna flutningavagni í 7 manna fjölskyldubíl. Hvert sæti er sjálfstæð eining sem leggst alveg niður svo gólfflöturinn verður rennisléttur og jafn. Þetta þýðir að þú getur á einu augnabliki lagað innra rými bílsins algjörlega eftir þörfum hverju sinni. Aksturinn er léttur og lipur, hönnunin glæsilega rennileg og bíllinn hlaðinn öllum þeim hágæða- og öryggisþáttum sem kröfuharðir ökumenn ganga að sem vísum. Easy Flat-7*

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.