Skessuhorn


Skessuhorn - 30.06.2004, Síða 1

Skessuhorn - 30.06.2004, Síða 1
Valdís Þóra ✓ Islandsmeistari Dagana 18.-20. júní fór Is- Iandsmót unglinga í holu- keppni í golfi fram á Stranda- velli á Hellu. Tveir keppend- ur Golfklúbbsins Leynis tóku þátt í mótinu, þau Andrés Már Harðarson og Valdís Þóra Jónsdóttir. -Þessirefni- legu kylfingar í Leyni hafa æft vel í vor og uppskera eftir því. Valdís Þóra sigraði í fyrsta Vaxtalínumóti surnars- ins og varð svo íslandsmeist- ari í holukeppni í flokki stelpna 14-15 ára. MM Léleg grá- sleppuvertíð Ohætt er að segja að grá- sleppuveiðin í vor hafi hrun- ið ef frá er talin þokkaleg veiði fyrstu dagana í apríl. Samkvæmt reglugerð á grá- sleppuvertíðinni að vera lok- ið 29. júní. Þrír grásleppu- bátar á Akranesi hafa þó fengið úthiutað rannsókna- veiðileyfi frá sjávarútvegs- ráðuneytinu sem þýðir að þeir geta stundað veiðar til 25. júlí nk. Börkur Jónsson skipsstjóri á Hörpu II segir líkur til að nú fyrst sé grá- sleppan að koma og fer hann því spenntur til veiða á næstu dögunt enda einn af þremur sem fengu leyfi tii rann- sóknaveiða. Sjá baksíðu. Sr. Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti sýnir gestunum Snorralaug. Krónprinshjónin fræðast um Snorra og Jámblendi Hrun í þjónustu Hákon krónprins Noregs, kona hans Mette Marit og dótt- ir þeirra Ingrid Alexandra eru í heimsókn hér á landi þessa dag- ana og á mánudag fóru þau um Borgarfjarðarhérað. Þau litu fyrst við hjá löndum sínum í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga en verksmiðjan er að meirihluta í eigu norska fyrirtækisins Elkem. Eftir að hafa skoðað sig um innandyra sem utan á Grundartanga héldu norsku gestirnir, ásamt íslensku forsetahjónunum og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntainálaráðherra í Reyk- holt. Þar tóku heimamenn á móti þeim og fræddu um starf- semi í Reykholti allt frá tímum Snorra Sturlusonar til vorra daga. Norsku gestirnir sýndu því sem Reykholt hefur að geyma mikinn áhuga enda komu þau ekki að tómum kof- unum hjá Sr. Geir Waage né öðrum Reykhyltingum nútím- ans. Noro-veirusýkingin sem upp kom í Húsafelli fyrr í sumar og mikið hefur verið til umfjöllun- ar í fjölmiðlum landsins hefúr valdið ferðaþjónustuaðilum í uppsveitum Borgarfjarðar og sérstaklega Húsafelli stjórtjóni í sumar. I venjulegum júnímánuði er ekki óalgengt að 8-10 þúsund gestir heimsæki Húsafell. I ný- liðnum júnímánuði er þessi gestafjöldi einungis brot af þeim fjölda og ljóst að tekjutap er gríðarlegt af þessum sökum. Sambærileg magakveisa hefur verið að gera vart við sig víða um land að undanförnu á vinnu- stöðum, dvalarheimilum og al- mennt þar sem margt fólk kem- ur saman, enda er Noro-veiran bráðsmitandi magakveisa og al- gengasta orsök magaveiki t.d. í Bandaríkjunum. Fyrstu niðurstöður úr vatns- sýnum sem tekin hafa verið í Húsafelli og send erlendis til rannsókna benda til að neyslu- vam í Húsafelli sé algjörlega ó- mengað og því hafa getgátur um að mengað vatn þar sé orsök þess hve margir veiktust, ekki staðist. Sjá umjjöllun á bls. 5.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.