Skessuhorn - 30.06.2004, Blaðsíða 16
<<px
POSTURINN
allur pakkinn
HÁHRAOA INTERNET TIL SjXVAR 06 SVEITA
Þráðlausar netlausnir fyrir heimili og fyrirtæki
'tMax
SÍMI 544 4454
□LVUiBNDlNN
StMI 894 4980
íftwww.spmJs
Lélegt grásleppuvor
Þrír bátar á Akranesi fá rannsóknaleyfi fram til 25. júlí
Grásleppuveiðar frá Akra-
nesi voru endaslepptar í vor og
má nánast segja að hrun hafi
verið í veiðunum miðað við
undanfarin ár. Veiðar hófust 1.
apríl, eins og í fyrra, og gengu
þær vel fyrstu vikuna eða svo.
Eftir það datt botninn alveg úr
veiðiskapnum og gekk það illa
að elstu menn muna ekki ann-
að eins, en þá er vitnað beint til
orða Skarphéðins Arnasonar
sem stundað hefur grásleppu-
veiðar frá Akranesi í áratugi.
Um ástæðuna eru menn ekki
vissir, en nefna þó einhverjir að
hlýrri sjór geti verið ástæða
þess að fiskurinn hagi sér öðru-
vísi en hann er vanur.
Skessuhorn ræddi við Börk
Jónsson grásleppuveiðimann,
en hann lýsir veiðinni í vor
þannig: „Eftir að vika var liðin
af veiðitímabilinu í apríl datt
þetta alveg niður og þróaðist
þannig að flestir hættu um
miðjan maí og drógu net sín á
land. Eftir voru nokkrir smærri
bátar sem hafa verið að reyna
með afar litlum árangri,“ segir
Börkur. Núna síðustu dagana
hefur svo aftur orðið vart við
fallegan rauðmaga og eitthvað
af grásleppu eða við síðasta
stórstraum sem var 21. júní.
„Það er góður fyrirboði,“ segir
Börkur og bætir við að einnig
sé farið að bera á skötusel í net-
unum en hann fylgir gjarnan
grásleppunni eftir og étur
rauðmagann með góðri list.
„Þannig eru ýmsar vísbending-
ar sem segja okkur að gráslepp-
an gæti farið að gefa sig hér við
strendurnar,“ segir Börkur.
Þrír fá
rannsóknaveiðileyfi
Samkvæmt reglugerð á grá-
sleppuvertíðinni að vera lokið
29. júní, eða í gær. Börkur seg-
ir að Smábátafélg Akraness hafi
fyrir um hálfum mánuði skrif-
að ráðuneytinu og sótt um leyfi
til að mega framlengja veiði-
tímabilið þar sem veiðin í vor
hafi hrunið og reynsla sé fyrir
því að grásleppan geti veiðst
lengra fram á sumarið og jafn-
vel fram á haust. „Ráðuneytið
hafnaði þessari ósk okkar og
skrifuðum við því aftur suður
og rökstuddum beiðni okkar ít-
arlegar og óskuðum eftir rann-
sóknaveiðileyfi. I kjölfar þess
veitti ráðuneytið þremur bát-
um slíkt leyfi fyrir tilskildu 100
neta marki og verðum við þrír
að veiðum frá 29. júní og til 25.
Ekki gengið of
nærri æðarfugli
I vor sem leið kom krafa frá
Æðarræktarfélaginu um að
grásleppusjómenn reyndu að
forðast æðarfluglsdráp með
veiðum of nærri friðlýstu varp-
landi. Börkur segir að þeir sjó-
menn hafi gengist inn á þá ósk
æðarbænda að veiða ekki nær
landi en 250 metra þar sem
friðlýst æðarvarp er til staðar.
„Annars held ég að þetta hafi
verið stormur í vatnsglasi. Við
höfum ekki verið að drepa
mikinn æðarfugl í netunum og
mér heyrist á mönnum að þetta
sé undir 10 fuglar á vertíð hjá
hverjum og einum. Eg held að
það hafi drepist 4 fuglar hjá
mér í vor,“ segir Börkur Jóns-
son, grásleppuveiðimaður á
Akranesi að lokum.
MM
júlí, þ.e. ég á
Hörpu annarri,
Gísli S Einars-
son með Skarp-
héðni Arnasyni
fiskilóðs á
Kveldúlfi og Jó-
hannes Eyleifs-
son á Leifi. Við
fáum leyfið gegn
því að skrásetja
nákvæmlega
fjölda og þyngd
hrogna úr grá-
sleppunni og
skrá einnig
þyngd og magn
rauðmagans,"
segir Börkur.
Hann segir veið-
arnar fara fram
frá Hvalsey útaf
Okrum á Mýrum
í norðri og suður
um að suður-
flösinni á Akra-
nesi. Börkur
kveðst bjartsýnn
á þetta viðbótarleyfi og segir að
vel geti verið að grásleppan fari
að finnast þrátt fyrir að þetta
langt sé liðið á sumarið. Að-
spurður segir hann að grá-
sleppuveiðimenn á Akranesi
hafi ágætan samning við
hrognavinnsluna hjá Vigni G
Jóhannssyni á Akranesi. „Við
gætum verið að fá þetta 70-90
þúsund krónur fyrir tunnuna af
góðum hrognum og ef við
veiðum vel næstu vikurnar
bætir það að einhverju leyti
upp lélega vertíð í vor.
Börkur Jónsson við Hörpuna aðra, en báturinn var inni til viðgerða í vélsmiðjunni Steðja sl. mánudag. Harpan varð fyrir
tjóni í sl. viku þegar hún steytti á skeri útaf Mýrum. Börkur gerir nú klárt fyrir veiðar að nýju, einn af þremur skipstjórum á
Akranesi sem fengu sérstakt rannsóknaveiðileyfi.
Frá einum hverfafundinum í Stykkishólmi í síðustu viku.
Vel sóttir hverfafundir í
Stykkishólmi
í síðustu viku stóð Umhverf-
ishópur Stykkishólms fyrir
hverfafundum í Stykkishólmi.
Þeir voru haldnir í þeim til-
gangi að íbúar bæjarins hittust,
gengju um hverfið sitt og
ræddu hvað betur mætti fara
og um möguleg verkefni sem í-
búar gætu sjálfir tekið að sér.
Bænum var skipt í 6 hverfi og
stýrðu meðlimir Umhverfis-
hópsins fundinum á hverjum
stað. Þátttaka var framar von-
um að sögn Menju von Schma-
lensee formanns Umhverfis-
hópsins en alls mættu um 140
íbúar og allir í sólskinsskapi.
Meðal þeirra verkefni sem
skipulögð voru á fundinum var
sláttur lúpínu og skógarkerfils,
úrbætur við leikvelli og leik-
svæði barna, gerð samkomu-
svæða, gerð göngustíga o.fl.
Menja sagði íbúa almennt hafa
tekið vel í að leggja sjálfir fram
vinnu við að fegra og bæta bæ-
inn og sagði hún framtak bæj-
arbúa ánægjulega viðbót við
þá vinnu sem bæjaryfirvöld
standa fyrir. GE