Skessuhorn - 30.06.2004, Blaðsíða 6
'reiMny ai/nmnar
Umsjón: Iris Arthúrsdóttir.
Skerið banana og jarðarber í
litla bita og blandið saman við
helminginn af rjómanum og
látið á milli botnanna. Hinn
helmingurinn af rjómanum er
settur ofan á kökuna og hún er
síðan skreytt með jarðarberj-
um og bræddu súkkulaði.
HÚSRAÐ
Möndlur og hnetur verða stökkar
og gómsætar ef maður ristar þær
aðeins á heitri pönnu.
6__________________________MIÐVIKUDAGUR 30. TÚNÍ 2004 __________ggESS'QggQERl
J ónsmessuradeikur
Sumarterta
Sæt og góð terta sem bráðn-
ar í munni, tilvalin með
sunnudagskaffinu.
Marengs:
4 eggjahvítnr
200 gr sykur
100 gr suðusúkkulaði
100 gr mjúkar döðlur
1-2 bananar
2 askja jarðarber
1/21 rjómi
Þeytið eggjahvítur og sykur
vel saman. Saxið súkkulaðið
og döðlurnar og blandið var-
lega saman við deigið. Setjið í
tvö form klædd bökunarpapp-
ír. Bakið við 120 gr hita í 45-
60 mín. Þeytið rjómann.
Sannarlega glæsilegir.
Fombílar í heimsókn
Um fjórtán félagar úr Forn-
bílaklúbbi Islands heimsóttu
Akranes sl. laugardag og sýndu
fáka sína á Sajnasvæðinu. Marga
af eldri bílunum vantaði í hóp-
inn þar sem illa viðraði í Reykja-
vík þegar fara átti af stað þaðan.
Engu að síður voru margir at-
hyglisverðir bílar saman komnir
á sýningunni. I lok ágúst er von
á félögum í Fornbílaklúbbnum
aftur en 28. þess mánaðar er
gert ráð fýrir að þeir haldi sýn-
ingu á Akratorgi og munu öku-
menn þá m.a. búa sig upp sjálfir
í takt við aldur bílsins og klæða-
burð á þeim tíma sem viðkom-
andi mótorfákur litu fýrst dags-
ins ljós.
MM
staða tóku þátt í
árlegum Jóns-
messsuratleik sem
tómstunda- og
forvarnarfulltrúi
Akraneskaupstað-
ar stóð fýrir sl.
laugardag. Sigur-
vegarar voru eins
og á síðasta ári
starfsfólk bæjar-
skrifstofunnar en
það fór í gegnum
hinar ýmsu þrautir
á tímanum 1:00,25 sem var 25
mínútum skemmri tími en
næsta lið á eftir þurfti til að
leysa þrautirnar. I öðru sæti var
sveit Landsbanka Islands og í
því þriðja Leikskólinn Garða-
sel. Ratleikurinn barst um þver-
an og endilangan Skipaskaga frá
Breið og upp í Garðalund.
Sveit bæjarskriftofunnar sigraði í keppninni annað árið í röð. F. v. Guðmundur Þor-
valdsson, Ásdís Gunnarsdóttir, Hrafnkell Proppé, Helga Gunnarsdóttir og Þorvaldur
Vestmann.
Einnig voru veitt verðlaun fýrir
frumlegustu andlitsmálunina en
ein stöðin í keppninni fólst í að
mála liðsliti á andlit hvors ann-
ars. Verðlaun fýrir frumlegustu
andlitsmálunina hlaut lið Land-
mælinga Islands sem jafhframt
hafnaði í fjórða sæti í keppn-
inni.
MM
Orgeltónar í Reykholtsldrkju
I sumar verða þrennir þriðju-
dagstónleikar við orgelið í Reyk-
holtskirkju. Þriðjudaginn 6. júlí
kl. 20:30 leikur á orgelið Kári
Þormar organisti Áskirkju í
Reykjavík verk eftir C. Franck, F.
Peeters, Messiaen, Mendelsson
og L. Vierne, 10. ágúst sest Bjöm
Steinar Sólbergsson organisti á
Akureyri við hljóðfærið og
lokatónleikarnir verða 17. ágúst
með þeim Herði Askelssyni org-
anista við Hallgrímskirkju í
Reykjavík og Ingu Rós Ingólfs-
dóttur sellóleikara.
Þetta er þriðja sumarið sem
Félag íslenskra organleikara
styður við endurgerð og upp-
semingu þessa söguríka orgels,
sem eitt sinn hljómaði í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, með því að
leggja ffam krafta sína endur-
gjaldslaust og rennur aðgangs-
eyrir óskiptur í orgelsjóð.
Kári Þormar lagði stund á org-
elleik hjá Herði Áskelssyni og pí-
anóleik hjá Jónasi Ingimundar-
syni. Eftir nám hér heima fór
hann í ffamhaldsnám til Þýska-
lands og nam kirkjutónlist við
Robert Schuman Hochschule í
Dússeldorf undir handleiðslu
Hans Dieter Möller. Þaðan lauk
hannA-Kirkjutónlistarprófi
haustið 1998 með l.einkunn.
Hann hlaut styrk úr minning-
arsjóði Karls Sighvatssonar árið
1997.
Kári hefur haldið fjölda ein-
leikstónleika, bæði hér á landi og
erlendis, þar á meðal á skandin-
avískri menningarhátíð í Essen
og alþjóðlegri tónleikaröð í
Múhlhausen í Þýskalandi. Hann
hefur einnig verið virkur með-
leikari með einsöngvurum og
kórum. GE
Afmælishátíð Islenska
jámblendifélagsins
Um þessar mundir á íslenska
járnblendifélagið á Grundar-
tanga 25 ára starfsafmæli, en
haldin var vígsluathöfh á Grund-
artanga í tengslum við aðalfund
félagsins þ. 26. júní 1979. Þar
lagði þáverandi forsætisráðherra,
Ólafur Jóhannesson, hornstein
að járnblendiverksmiðjunni, og
iðnaðarráðherra, Hjörleifur
Guttormsson, flutti ávarp og lýsti
verksmiðjuna formlega tekna í
notkun. Islenska járnblendifélag-
ið hf. var aftur á móti stofnað
hinn 28. apríl 1975, en rekstur
verksmiðjunnar hófst ekki fýrr en
vorið 1979 með gangsetningu
fýrsta bræðsluofnsins.
Starfsmannafélagið (STJA) var
stofhað 4. apríl 1979 og á því 25
ára afmæli.
I tilefni af þessum tímamótum
verður haldin hátíð að Þórisstöð-
um í Svínadal laugardaginn 3. júlí
nk. Hátíðin hefst strax kl. 09:00
og lýkur ekki fýrr en að loknum
dansleik um kvöldið. Þórisstaðir
er jörð í eigu STJA, þar sem fé-
lagsmenn hafa af miklum dugn-
aði á undanfömum ámm komið
upp myndarlegri aðstöðu til úti-
vistar og tómstunda af ýmsum
tagi fýrir sig og fjölskyldur sínar.
Einnig hafa starfsmannafélög
víða um land nýtt sér þessa að-
stöðu í vaxandi mæli.
Hátíðin er ætluð starfsmönn-
um Ij sem og fýrirtækja á Gmnd-
artanga í eigu Ij, að hluta eða al-
veg, ásamt fjölskyldum og fjölda
boðsgesta, en meðal þeirra em
fýrrverandi starfsmenn Ij, sem
komnir em á eftirlaun, stjóm, ná-
grannar og helsm viðskipta-
menn.
GE
Átta lið vinnu-
SkipulagsstDfnun
Rafskautaverksmiðja á
Katanesi í Hvalfjarðar-
strandahreppi Hvalfirði
Mat á umhverfisáhrifum
- athugun SKipulagsstofnunar
Kapla hf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
matsskýrslu um rafskautaverksmiðju á Katanesi í
Hvalfjarðarstrandarhreppi í Hvalfirði.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á
umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá
25. júní - 6. ágúst 2004 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni
Akraness, á skrifstofum Hvalfjarðarstrandarhrepps og
Skilmannahrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu
HRV: Samsteypunnar www.hrv.is
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og
berast eigi síðar en 6. ágúst 2004 til Skipulagsstofnunar,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr.
106/2000.
Skipulagsstofnun
Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina
sína geta sent hana inn ásamt Ijósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða
stærri), fullu nafini, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhorn.is