Skessuhorn


Skessuhorn - 30.06.2004, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 30.06.2004, Blaðsíða 7
SSESSUHÖEi MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI 2004 7 Séð yfir drentagnakerfið frá rotþrónni. Fremstur á myndinni er Karvei Lindberg Karveisson pípulagningarmeistari. Rotþró til fyrirmyndar Ný gistiálma við Gistiheim- ilið Brekkubæ á Hellnum verður tekin í notkun í þessari viku. Um er að ræða tíu her- bergja viðbót, auk þess sem bætt verður við nýrri setustofu og þvottahúsi. Samhliða stækkuninni var komið íýrir nýjum rotþróm, bæði fýrir við- bygginguna og eins íyrir eldri hluta gistiheimilsins. Allar pípulagnir hafa verið unnar af PK pípulögnum á Akranesi, undir stjórn Karvels Lindberg Karvelssonar pípulagninga- meistara. Karvel segir að íyrir þremur árum hafi verið settar nýjar reglur um frágang á rotþróm. Markmið þeirra sé að tryggja að það vatn sem frá þeim skil- ast sé hreint. „Menn eru víða að setja niður þrær án þess að njóta faglegrar aðstoðar, en slík vinnubrögð leiða oft fljót- lega til vandamála“ segir Kar- vel. „Niðursetning og frágang- ur á rotþróm er nokkuð flókið ferli og ef þær eiga að starfa rétt þarf að vanda til verksins. Þrærnar sem settar eru niður á Brekkubæ eru framleiddar af Borgarplasti og við fýlgjum leiðbeiningum þeirra eftir út í ystu æsar. Drenlögnin ein sem frá þrónum kemur nær yfir 250 fermetra svæði og greinist í átta rásir. Með þessu er ekki einungis verið að tryggja fullt niðurbrot frárennslisins, held- ur einnig það að vatnið sem á endanum kemur frá gistiheim- ilinu og fer út í umhverfið verði algerlega hreint." Karvel segir þetta eina stærstu frárennslislögn sem hann hefur lagt við gististað í dreifbýli og að það hafi verið skemmtileg áskorun að takast á við svona stórt verkefni. „Frá- rennsliskerfið á Brekkubæ er það umhverfisvænasta sem hægt er að setja upp í dag,“ GE strákar ÞeirAnton Freyr Arnarson (t.v.) og Agnar Daði Kristinsson, níu ára kappar í Borgarnesi, létu hendur standa fram úr ermum á dögunum en þá gengu þeir í hús og söfnuðu flöskum en ágóðinn rennur til þeirra Torfa Lárusar og Ingu Bjarkar Bjarnadóttur, sem bæði hafa þurft að glfma við erfið veikindi. Uppskera þeirra félaga var góð en þeir söfnuðu tæplega sex þúsund krónum. Dugnaðarforkar þar á ferð. Mynd: GE Gengið og sungið á Skessuhomi Laugardaginn 10. júlí n.k. mun Ferðafélag Islands standa fýrir göngu, fræðslu og söng- ferð á Skessuhorn í Borgarfirði. A leiðinni munu ýmsir göngugarpar ausa úr fróðleiks- brunni sínum og þegar tindi Skessuhornsins er náð mun Ingimar Einarsson harmon- ikkuleikari leika fýrir fjölda- söng en hann verður einnig far- arstjóri í ferðinni. Gangan hefs kl. 9.00 á hæð- inni ofan við bæinn Efri-Hrepp í Skorradal hvar göngugarpar munu safnast saman en reikna má með að ferðin taki 8-10 klst. Ferðin er ekld fýrir óvana. VIÐBURÐ AVEISL A Á AKRANESI Laugardaginn 3. júlí n.k. opnar Páll Guðmundsson á Húsafelli höggmyndasýningu í Safnaskálanum við Safnasvæðið á Akranesi. Sýning Páls stendur til 15. september. Safnasvæðið á Akranesi Sínti 431 5566 - Fax 431 5567 - Veffang: www.museum.is Netfang: museum@museum.is www.skessuhorn.is 989 Vinir Hallarinnar & Bylgjan kynna LOPAPEYSAN 2004 ínröKiAirí® Mwm k mimimííii t/i < o P st p si r SEMENTSSKEMMA INNISVÆÐI ÚTISVÆÐI - VEITINGATJÖLD , N 2 tn > / /---------- S GAMLA /akraborgarbryggjan IRSKIR DAGAR Akranesi 9.-1 l. júlí, 2004 Hafnarsvæðinu Svæðið opnar kl. 23:15 opið til 03:00 Aldurstakmark 18 óra Miðaverð 2.000 kr. TRVCCINCA- MIÐSTÖÐIN HF - #.<•*» mnl i reynk'. í SAMSTARFI VIÐ U Landsbankinn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.