Skessuhorn - 16.03.2005, Blaðsíða 23
23
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2005
Heilsuganga í Búðardal
Nú hefur verið blásið til heilsu-
átaks í Búðardal og mimu Dala-
menn ganga til að byrja með, einu
sinni í víku, í hádeginu á fimmtu-
dögum og verður genginn hringur í
plássinu. Það er skólastjóri grunn-
skólans, Guðrún Halldórsdóttir og
Asgerður Jónsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur sem standa fyrir þessu á-
taki. Ágæt mæting var í þetta fyrsta
skipti og má búast við að fjölgi enn
frekar í hópnum í næstu göngu.
Sjök
Grease á Varmalandi
Nemendur Varmalandsskóla eru
nú að undirbúa árshátíð skólans sem
verður haldin í Þinghamri 17. mars
kl. 20:30. Teknir verða kaflar úr
söngleiknum Grease. Efnið er eins
og allir vita sígilt og fjallar um hvað
vandamál unglinga geta verið marg-
þætt. Hver er vinur minn? Hver er
skotinn í mér og hver er ekki skotin
í mér? Get ég verið eðlilegur eða
verð ég að vera töffari?
Skólastarfið hefur snúist að miklu
leyti um þessa sýningu síðustu tvær
vikur. Krakkamir þurfa að yfirstíga
feimni og sviðshroll og reynir það
vissulega á sjálfsagann. A árshátíð-
inni verður einnig sýndur afrakstur-
inn hjá tónlistarvali skólans en
hljómsveitin sem þar hefur verið við
æfingar stígur á stokk og læmr í sér
heyra. Að loknum skemmtiatriðum
er boðið upp á kaffihlaðborð. Agóði
af skemmtuninrú rennur í ferðasjóð
10. bekkjar skólans. MM
í tilefni fertugs og fimmtugs afmæla okkar bræðra bjóðum við
sveitungum og vinum að gleðjast með okkur í mat og drykk í
Logalandi laugardaginn 26. mars klukkan 18.
Pétur og Jón frá Geirshlíð.
Lofum fermingarbarninu
að velja gjöfina
Fallegu gjafkortin frá Markaðsráði Akraness
eru til sölu í útibúum Landsbanka íslands
og íslandsbanka á Akranesi.
Landsbankinn
Barki ailra landsrranna
ISLAN DSBAN Kl
MARKAÐSRAÐ AKRA
Fáanleg í þremur upphæðum
kr 2.500, 5.000, og 10.000.
Handhafar gjafakortanna geta
notað kortin hjá um
30 verslunar- og
þjónustuaðilum á Akranesi
ótrúlega löng augnhár
lengri, þykkari, stærri!*
nýr
XXL
þykkari + lengri
örtrefja maskarinn
Nýi XXL maskarinn fæst í
Samkaup-Úrval Borgarnesi
MAYBE LLINE
N EW YO RK
MAYBE SHE’S born WITH IT. MAYBE IT’S maybelline.