Skessuhorn - 16.03.2005, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2005
Gjafir eru skemmtilegar - en ekki
það sem máli sláptir
Þrjú fermingarbörn í spjalli um ferminguna og fermingarundirbúninginn
Fermingar hefjast á Akranesi á
Pálmasunnudag og áður en yfir Kkur
verða um 90 fermingarböm tekin í
fullorðinna manna tölu í bænum.
Einnig verður sama dag fyrsta ferm-
ing í Borgameskirkju og síðan koll af
koUi fram yfir Hvítasunnu um aUt
Vesturland.
Eftir því sem Skessuhom kemst
næstu kusu tveir einstaklingar úr
fermingarhópnum á Akranesi að
fermast borgaralega en aðrir verða
fermdir í kirkju. Gígja Gylfadóttir,
Helena Másdóttir og Hafþór Ingi
Garðarsson em í þeim hópi, Gígja
fermist 20. mars. Hún segist hafa
velt því nokkuð fyrir sér að fermast
borgaralega en komist að þeirri nið-
urstöðu að gera það ekki. „Eg hafði
alveg fullan stuðning til þess heima
fyrir,“ segir Gígja, „en fannst svo að
ferming í kirkjunni ætti betur við
mig.“ Helena og Hafþór Ingi ferm-
ast 3. apríl næstkomandi og hvoragt
þeirra velti því fyrir sér að hafa ann-
an hátt á. Hafþór Ingi segir þó að
hann og félagar hans hafi spáð svo-
lítið í borgaralegar fermingar. „Þetta
er auðvitað valkostur og það þurfa
ekki allir að fermast á sama hátt, þó
ég hafi aldrei hugsað tun að velja
þessa leið fyrir mig,“ segir hann.
Öll segjast þau orðin nokkuð
spennt, enda hafa þau verið að tmd-
irbúa sig fyrir fermingardaginn í
langan tíma.
Undirbúningurinn
Fermingarffæðslan hófst í haust
og fólst fyrst í stað í því að sóknar-
presturinn, séra Eðvarð Ingólfsson,
kom í skólann og fræddi krakkana
um líf Jesú og starf kirkjunnar. í
þessari fræðslu er notast við sérstaka
bók, Líf með Jesú, sem inniheldur
verkefni og leskafla sem farið er yfir.
Krakkamir segja utanbókarlærdóm
ekki hafa verið mikinn, þó hafi þau
lært trúarjátninguna og fermingar-
bænina, og hafi það ekki verið neitt
sérstaklega erfitt. Annar hluti af
fermingarffæðslunni er mæting í 6
fjölskyldumessur yfir veturinn og
auk þess er ædast til þess að krakk-
amir mæti að minnsta kosti fjóram
sinnum í félagsstarf hjá KFUM og
K. I vetur gengu þau einnig í hús og
söfhuðu tæpum þrjúhundruð þús-
und krónum en peningamir renna
til aðstoðar bágstöddum börnum í
Affíku. Það era hjálparstamtökin
ABC hjálparstarf sem munu nýta
fjármunina dl ffekari uppbyggingar
á því starfi sem þau reka í þágu fá-
tækra bama.
Fræðslan breytti
viðhorfuniim
Gígja, Helena og Hafþór Ingi
segja fermingarffæðsluna hafa verið
skemmtilega og vakið þau til um-
hugsunar um ýmislegt sem þau
höfðu kannski ekki hugsað svo mik-
ið út í áður. „Bókin Líf með Jesú út-
skýrir ýmislegt á nútímalegan hátt
sem hjálpar manni að tengja efiiið
við lífið í dag,“ segir Gígja. „Svo vit-
um við auðvitað meira um Jesú núna
en áður,“ bætir Helena við. Aðspurð
segjast þau öll vera trúuð og þó þau
hafi kannski hafið fermingarundir-
búninginn með það efst í huga að fá
sem flestar og flottastar gjafir hafi
það breyst eftir því sem tíminn leið
og þau gerðu sér betur grein fyrir
því hvert raunveralegt inntak ferm-
ingarinnar er. „Nú tökum við þetta
alvarlega,“ segir Hafþór Ingi og bæt-
ir við „þetta er ekki lengur bara: Jess,
ég fæ pakka! Við eigum öragglega
eftir að tala um gjafirnar þegar ferm-
ingarnar era afstaðnar, gjafir era
skemmtilegar, en ekki það sem
mestu máli skiptir núna. Alls ekki,“
bætir hann við með áherslu.
Myndavélar og húsgögn
á óskalista
Margir era þeirrar skoðunar að
kröfumar sem gerðar era til gjafa,
veislu og allrar umgjarðar um ferm-
inguna séu komnar út í öfgar. Eitt er
víst að fermingarböm era orðin
markhópur auglýsenda sem keppa
um pláss á gjafaborðinu og um ferm-
ingarpeningana. Hverju svara krakk-
amir þessari gagnrýni, er tilstandið í
kringum fermingarnar orðið óhóf-
legt? „Það er mikið um auglýsingar
og svoleiðis," segir Gígja, „en mér
finnst það kannski ekkert óhóflegt.
Maður ræður auðvitað sjálfur hvort
maður tekur eitthvert mark á auglýs-
ingunum svo ég held að þær breyti
ekkert miklu um hvemig maður hef-
tn hlutina.“ Helena og Hafþór Ingi
taka undir þetta sjónarmið, enda séu
gjafimar ekld það sem helst sér rætt
um þegar ferminguna ber á góma,
þó þau geri sér ákveðnar væntingar
þar að lútandi. Þanrúg langar Hel-
enu í ný húsgögn í herbergið sitt,
Gígja segist vel geta hugsað sér að fá
upptökuvél, enda hafi hún mikinn á-
huga á kvikmyndum og stuttmynda-
gerð og Hafþór Inga langar í staf-
ræna myndavél eða flatan tölvuskjá.
Aðspurð telja þau að þetta séu al-
gengir hlutir á óskalistum þeirra sem
eru að fermast.
Gaman að halda
flotta veislu
Gígja, Helena og Hafþór Ingi
hafa lagt ríka áherslu á að það sé ein-
faldlega ekki sannleikanum sam-
kvæmt að fermingarböm hugsi ekki
um annað en að fá dýrar og flottar
gjafir. En hvað er það þá sem skiptir
máli, tnn hvað ræða þau sín á milli?
Eftir andartaks umhugun komast
þau öll að þeirri niðurstöðu að það
séu fötin og veislan sem mest sé rætt
tun. Enda kemur í ljós að þau hafa
öll lagt gjörva hönd á plóg við skipu-
Stór árshátíð í lithim skóla
Arshátíð Andakílsskóla var haldin síðastliðið mánudagskvöld en þar var flutt jjóíbreytt
skemmtidagskrá jýrir fullu húsi. Boðið var upp á dansatriði, söngleikinn Kamival
dýranna, teiknimynd sem nemendur höfðu gert eftir sögunni um hláa Hnöttinn og at-
riði úr Söngvaseiði. Þá var hoðið upp á sýningu af vetrarmyndum o.fl
FERMINGARDAGURINN MINN
Gestabók
Myndir • Skeyti
FÆST í ÖLLUM HELSTU
BÓKAVERSLUNUM LANDSINS
MULALUNDUR
VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • Pósthólf 5137 • 125 Reykjavík
lagningu veislunnar og gera sér á-
kveðnar hugmyndir tnn hvemig hún
á að vera. Hafþór Ingi og firænka
hans sem fermist sama dag ákváðu
að halda sína veislu saman og saman
hafa þau, í samvinnu við fjölskyldur
sínar, tekið allar helstu ákvarðanim-
ar. Sömu sögu er að segja af Helenu
og Gígju. „Eg held að flestir pæh
mest í því að hafa veisluna flotta,“
segir Helena. „Fermingin verður ör-
ugglega hátíðleg og skemmtileg og
við viljum að veislan verði það líka.
Svo er gaman að hitta vini og ætt-
ingja sem maður sér kannski ekki á
hverjum degi,“ segir hún jafhffamt.
Hálf milljón eða meira
Öll halda krakkamir veisluna í sal
úti í bæ, öll bjóða þau um eða yfir
100 manns og öh leggja þau mikið
upp úr skreytingum og umgjörð og
þó að mörgu sé að hyggja segja þau
að í raun hafi tilstandið í kringum
undirbúninginn verið minni en þau
áttu von á. En hvað um kostnað,
hafa þau einhverja hugmynd um
hvað fermingin og allt sem henni
viðkemur kostar? Jú, þau segjast hafa
reiknað út að kosmaðurinn við með-
al veislu fari aldrei undir hálfa millj-
ón króna þegar öllu er til skila hald-
ið. Nema auðvitað í þeim tilvikum
sem krakkar ákveða að halda ekki
stóra veisla og bjóða bara nánustu
ættingjum heim í kaffi. Það er þó víst
næsta fátítt.
Oðruvísi hugmyndir
Gígja, Helena og Hafþór Ingi
telja ólíklegt að fermingin sem at-
höfn komi til með að breyta miklu í
lífi þeirra, það eigi þó eftir að koma
í ljós. En þau era sammála um að
fermingarandirbúningurinn hafi
haft mikil áhrif á skoðanir þeirra,
ekki síst um ferminguna sjálfa og því
sem henni tengist. Hvort þau eigi
eftir að verða kirkjuræknari eftir en
áður segja þau að verði að koma í
ljós, hitt sé víst að þau hafi fundið
betur hvað trúin og líf með Jesú
gengur út á og það verði þeim efst í
huga þegar fermingardagurinn
rennur upp.
ALS
Slökkvi-
liðsæfing í
fjárhúsum
Slökkvilið Snæfellsbæjar fékk
óvenju raunveralegt æfinga-
verkefni í síðustu viku en til stóð
að rífa gömul fjárhús í sveitarfé-
laginu og fengu slökkviliðsmenn
að kveikja í húsunum í þeim til-
gangi að slökkva eldinn að nýju.
GE