Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2005, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 11.05.2005, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 18. tbl. 8. árg. 11. maí 2005 - Kr. 300 í lausasölu AUtum boltann Með Skessuhorni í dag fylgir 12 síðna sérblað um öll fremstu knatt- spyrnuliðin á Vesturlandi. Víst er að það er spennandi knattspyrnusumar ffamundan. Biðröð eftir bens- ínstöðvalóð- um Tvær umsóknir um lóðir undir bensín- og olíuafgreiðslu í Olafsvík liggja fyrir hjá bæjarstjórn Snæfells- bæjar. Fram til þessa hefur verið ein bensínstöð í bænum og var hún rekin sameiginlega af Shell, Esso og Olís þar til fyrir þremur vikum. Sem kunn- ugt er er olíufélögunum ekki lengur heimilt að standa saman að rekstri bensínstöðva og var slíkur rekstur á Snæfellsnesi því stokkaður upp. Skelj- ungur rekur í dag stöðina í Olafsvík, Esso er á Hellissandi og Grundarfirði en Olís í Stykkishólmi. Olís og Esso hafa sótt um lóðir undir bensínafgreiðslu í Olafsvík og fyrr í vetur barst sams konar umsókn frá Atlantsolíu. Verði allar þessar um- sóknir samþykktar verða fjórar bens- ínsstöðvar í ellefu hxmdruð manna plássi. Það ætti því enginn að þurfa að vera bensínlaus í Olafsvík í framtíð- ixmi. GE *''»**'* 4V Raftamir, Bifhjólafélag Borgarfjaríar, héldu burr-dag hátíðlegan sl. laugardag og buðu vélhjólamönnum af öllu landinu í heimsókn í Borgames þar sem burraó var saman fram eftir degi. Þráttjýrir kulda voru um 80 ghesifákar mœttir. A myndinni er Magnús Þorkelsson, betur þekktur sem sparijóðsgjaldkeri, nýbúinn að leggja VTX1300 Hondu sinni og stiginn afbaki. Aðdáun annarra leynir sér ekki á vélfáki Magnúsar. Ljósm. MM Akraneshöllin - fjölnota íþróttahús verður tekin í notkun í mars 2006 Stærsta einstaka framkvæmd Akraneskaupstaðar til þessa Segja má að síðasdiðinn föstu- dagur hafi verið stór dagur í sögu í- þrótta í sjálfúm íþróttabænum Akranesi. Þá skrifaði Gísh Gíslason bæjarstjóri, fyrir hönd Akranes- kaupstaðar, undir verksamning við Sveinbjörn Sigurðsson ehf. um byggingu Akraneshallarinnar, nýs fjölnota íþróttahúss á Jaðarsbökk- um. Húsið verður 110 metra langt og 77,5 metra breitt, með knatt- spymuvelli (105x68 m) og 100 m hlaupabraut ásamt stökkgryfju. Einnig verða áhorfendastæði og inntaksrými í húsinu. Gert er ráð fyrir að lágmarksstærð á innra rými hússins verði 111 x 79 m. Gengið var til samninga við verktakann á grundvelli ffávikstílboðs þar sem gert er ráð fyrir öflugra burðarvirki, þaks og sökkla vegna hugsanlegrar einangrunar hússins síðar meir. Þessu til viðbótar var ákveðið að breyta gervigrasi skv. fyrstu útboðs- gögnum og var farið í dýrari gras- gerð sem tahn er þola betur álag. Af þessu leiðir að kostnað- ur við húsið verður alls 375 milljónir króna og er því um að ræða stærsta einstaka verksamn- ing sem sveitarfélagið hefur gert í einu lagi til þessa. I ávarpi Gísla Gíslasonar, bæj- arstjóra við þetta tækifæri kom ffam að stefnt verður að því að húsið verði fullklárað 15. mars árið 2006, „en sá fyrirvari er gerður að stálið í húsið berist til landsins í tæka tíð og veður á bygg- ingartímanum verði hagstætt," sagði Gísli. Samhliða undirritun verksamningsins var gengið frá viljayfirlýsingu við Sveinbjörn Sig- urðsson ehf. um stækkun áhorf- endastúkunnar við knattspymuvöll- inn en undir henni er gert ráð fyrir hreinlætisaðstöðu og sölubás sem nýtast mun íþróttamannvirkjrmum. Stefnt er að því að samkomulag á grundvelli viljayfirlýsingarinnar liggi fyrir í þessum mánuði og ffamkvæmdum við stækkun stúkunnar ljúki eigi síðar en í apríl á næsta ári. Þá verða áhorfendasæti við Akranesvöll fyrir 1000 manns. I ávarpi marma við undirritun verksamningsins kom ffam almenn ánægja með ffamkvæmdimar sem ffamundan em. „Hér verður um byltingu að ræða fyrir allt íþrótta- starf á Akranesi og vonandi endur- vakningu ffjálsíþrótta í bænum. Við sköpum okkur möguleika m.a. á að halda landsmót Ungmennafélaga og ýmis önnur tældfæri skap- ast,“ sagði Guðmundur Páll Jónsson, formaður bæjarráðs. Hann sagði jafhffamt að við- ræður stæðu yfir við golf- klúbbinn Leyni um aðkomu bæjarins að uppbyggingu þar og einnig væri í ákveðnum far- vegi að bæta aðstöðu við sund- laugina á Jaðarsbökkum. Gunnar Sigurðsson, bæjarfull- trúi sjálfstæðismanna og for- ystumaður í íþróttahreyfingunni til áratuga, óskaði íbúum til hamingju með þessa ákvörðun um byggingu Akraneshallarinnar og sagði daginn þann stærsta í sögu íþrótta á Akra- nesi. Sturlaugur Sturlaugsson, for- maður IA fagnaði þessari ffam- kvæmd einnig og sagði hann húsið góða gjöf á 60 ára afmæli IA sem einmitt ber upp á næsta ár. ^ MM Súpukjöt 1/2 frampartur Tilboö 12- 15. maí Grillborgarar - ■ 4stk rn/brauði Bautab. - uAWABUnm afsláttur á kassa Vcti) áaur 1599 kr/kt) Samkaup |ún/al Lambalæri Gourmet villikryddað r ’S Tillratafí 1250 r \ liWsvert 692 30% 30% afsláttur á kassa L Vtrð áður 1785 kr/kg afsláttur á kassa L Vcrð áður 989 kr/kg Lambagrillkótilettur þurrkr. Grillpylsur Hafnarfjöraur • Njarðvik • ísafjöröur • Akureyri • Dalvik • Siglufjörður • Ólafsfjörður • Húsavík • Egilsstaðir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós • Skagaströnd • Bolungarvik

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.