Skessuhorn - 11.05.2005, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 11. MAI 2005
Mfi»unuui
Borgfirskur
Norður-
landameistari
Norðurlandamótið í júdó fór
fram um síðustu helgi í TBR
húsinu í Reykjavík. Alls voru
112 keppendur skráðir til leiks
og fór mótið vel fram að öllu
leyti. Mótið byrjaði á Junior
flokkum 14 til 16 ára þar sem ís-
lensku keppendurnir áttu góðan
dag og eignaðist þjóðin 3 Norð-
urlandameistara og hlaut auk
þess tvenn silfurverðlaun og
þrenn bronsverðlaun. Það voru
þeir Birgir Orn Omarsson í -73
kg, Jón Þór Þórarinsson í -66 kg
og Örn Davíðsson í -81 kg sem
sigruðu sína þyngdarflokka.
I flokkum fullorðinn voru líf-
legar glímur og skemmtilegar.
Alls fengu Islendingar fjóra
Norðurlandameistaratitla, 2
silfurverðlaun og 6 bronsverð-
laun. Borgfirðingurinn Þorvald-
ur Blöndal sigraði opinn flokk
og er því Norðurlandameistari í
júdó. Aðrir Norðurlandameist-
arar hérlendir urðu þau Þor-
móður Ami Jónsson í +100 kg,
Gígja Guðbrandsdóttir í -70 kg
og Vignir Grétar Stefánsson í
-18 kg. MM
Til minnis
Við minnum á IsNord tónlistar-
hátíðina sem fram fer um
næstu helgi í Borgarneskirkju.
Sígild, fjölbreytt og menning-
arleg dagskrá.
Ve?urhorfiAr
Það verbur hægvibri á fimmtu-
dag, skýjab meb köflum og hiti
á bilinu 5 til 12 stig. Vestlæg
átt á föstudag og laugardag
meb dálítilli rigningu hér vest-
antil. Á sunnudag og mánudag
lítur út fyrir norbaustlæga átt
meb skúrum eba jafnvel
slydduéljum og köldu vebri
mibab vib árstíma.
Spijrnincj vihunnar
í libinni viku var spurningin á
vefnum hjá okkur: „Á ríkib ab
yfirtaka skuldir Spalar vegna
Hvalfjarbarganganna?" Tveir
þribju þeirra sem svörubu
sögðu, Já, alveg hiklaust. 5,2%
vissu þab ekki, en 28,9%
sögbu Nei, alls ekki.
„Leggur þú áherslu á
aö versla matvöru í
þinrti heimabyggö"
Svaraöu skýrt og skorinort
og án allra undanbragba
á fréttavefnum:
www.skessuhorn.is
Vestlendirujtyr
viMnnar
Ab þessu
sinni er Vest-
lendíngur vik-
unnar S.
Ragnar Skúla-
son, tónlistar-
kennari á
Akranesi en
hann hefur náb góbum árangri
meb fiblusveit tónlistarskólans
sem heitir Þjóblagasveitin og
er skipub 15 stúlkum. Nýverib
hlaut Þjóblagasveitin styrk
menntamálarábuneytisins fýrir
sérlega kröftuga starfsemi.
Verkalýðsdagurinn í Snæfellsbæ
Á 1. maí, sem haldinn var hátíð-
legur af Verkalýðsfélaginu í Snæ-
fellsbæ og SDS, var hátíðarsam-
koma í félagsheimilinu Klifi. Dag-
skráin hófst með því að nokkrir
leikarar úr Leikfélaginu Grímni í
Stykkishólmi fluttu atriði úr Fiðlar-
anum á þakinu. Þá kom Idolstjarn-
an Davíð Smári og söng nokkur
lög. Sigurður Arnfjörð hélt síðan
ræðu dagsins. Þá sýndu tveir lista-
menn vinnu sýna en það voru þau
Anton Gísli Ingólfsson frá Ólafsvík
sem sýndi margskonar útskurð í tré
og Fjóla Eggertsdóttir sem sýndi
málverk eftir sig. Þá sýndu félagar
úr eldriborgara starfinu vinnu sína
eftir veturinn og kenndi þar margra
grasa. Að lokum var boðið upp á
kaffi og hnallþórur. PSJ
Anton Gísli Ingólfsson sýndi útskoma hluti í tré.
** *m>
Borgarbyggð þarf að kaupa land undir lóðir
Byggingarland sem átti að
endast tíl 2015 nær uppurið
Á einum mánuði hefur verið út-
hlutað fjörutíu lóðum í Borgarnesi
til fjögurra aðila. Að sögn Páls S.
Brynjarssonar bæjarstjóra Borgar-
byggðar eru þar á meðal allar lóðir,
30 talsins í Stöðulsholti sem er ný
gata skammt frá verslun Húsa-
smiðjunnar. Lóðirnar eru ætlaðar
tmdir einbýlis- og parhús. Einnig
hefur verið úthlutað stökum lóðum
í Bjargslandi og megrúnu af lausum
lóðum í Kvíaholti sem er næsta gata
við Stöðulsholt. Enn er eftir að út-
hluta lóðum á nýjum byggingarreit
við Brákarsund en eins og fram hef-
ur komið í Skessuhorni hefur bæj-
arstjórn ákveðið að bjóða þær lóðir
út og verður það gert innan
skamms. Að því svæði frátöldu eru
lausar lóðir í Borgarnesi nú teljandi
á fingrum annarrar handar, að sögn
Páls.
„Það liggur fyrir að við þurfum
að eignast meira byggingarland á
næstunni," segir Páll. „I aðalskipu-
lagi fyrir árin 1997 til 2015 var ekki
gert ráð fýrir að þörf væri á meira
landi fyrir íbúðabyggð þannig að
það er útlit fyrir uppbyggingu sem
er mun meiri en menn óraði fyrir.
Það er gríðarleg eftirspurn eftir í-
búðarhúsnæði og í framhaldi af því
virðast byggingaverktakar vera
farnir að horfa töluvert hingað.
Þetta eru skýr merki um að Borgar-
fjörðurinn sé að komast inn á
þenslusvæði höfuðborgarinnar ef
svo má segja en við sáum vísbend-
ingar um það í fyrra þegar allar lóð-
ir á Hvanneyri gengu út á stuttum
tíma. Núna vonumst við bara til að
þeir aðilar sem hafa fengið úthlutað
lóðum fari að byggja af krafti til að
mæta þeirri þörf sem virðist vera til
staðar." GE
Góðar atvinnuhorfiir fyrir skólafólk
Skólafólk á Vesturlandi þreytir
nú próf en þó eru vafalaust margir
farnir að líta björtum augum til
sumarsins. Flestir námsmenn vilja
eyða hluta þess í vinnu til að safna
sér aur fyrir næsta vetur og er oft
gaman að erfiða undir beru lofti
þegar vel viðrar. Skessuhorn fór á
stúfana og kynnti sér horfumar í at-
vinnumálum sumarsins.
„Unglingar á Vesturlandi þurfa
ekki að kvíða atvinnuleysi þetta
stunarið. Horfumar fyrir ungt fólk
em mjög góðar á Snæfellsnesi og í
Dölunum," samkvæmt upplýsing-
um ffá Guðrúnu Gísladóttur hjá
Svæðisvinnumiðlun Vesturlands:
„Við emm að sjá fram á skemmti-
lega tíma því atvinnuframboðið er
meira núna en það hefur verið
lengi. Almennt er ástandið gott á
þessu svæði en þó örlítið verra á
Akranesi og Borgarnesi. Hér á
Skaganum hefur þó verið nóg að
gera, til dæmis í byggingarvinnu."
Atvinnumarkaðurinn er að glæðast
og telur Guðrún að allir þeir sem
em vel vinnufærir eigi góða von um
atvinnu í sumar enda segir hún á-
standið oft hafa verið verra.
Átak fyrir 17 ára
Á Akranesi ættu allir unglingar
að fá vinnu í sumar. Búið er að
ganga frá ráðningum yfirmanna
Vinnuskólans og eiga 8.-10. bekk-
ingar von á því að finna umsóknar-
eyðublöð í skólum í lok maí en störf
hefjast í byrjun júní. Þar sem 17 ára
unglingum á Akranesi hefur reynst
erfitt að fá sumarvinnu við sitt hæfi
verður nú í annað skipti boðið upp
á svokallaða átaksvinnu fyrir þann
aldurshóp, einstaklinga fædda
1988, og hefst það verkefni í lok
maí. Að sögn Einars Skúlasonar,
æskulýðsfulltrúa, virðast aldurstak-
mörk setja strik í reikninginn hjá
mörgum. Þannig þurfa umsækjend-
ur um störf á Grundartanga og á
leikskólum t.d. að hafa náð 18 ára
aldri til að fá vinnu á þessum stöð-
um. Einar reiknar með 30-40 tmg-
lingum í þessa átaksvinnu sem er
alls átta vikur, en þó geti
lengd vinnutímans farið
eftir hve mikil ásókn verð-
ur í störfin. Átakið er
hugsað til að brúa bilið frá
skólalokum en oft virðist
losna um á vinnumark-
aðnum fýrir þennan ald-
urshóp síðla sumars. I
yngri aldursflokkunum
býst Einar við að þátttak-
an verði svipuð og síðustu
ár og ættu allir að fá eitt-
hvað að gera. Vinnutím-
inn hjá 10. bekkingum er
sjö vikur en hjá þeim
yngri eitthvað styttri.
Verkefnin verða með
svipuðu móti og munu starfsmenn
Vinnuskólans verja starfskröftum
sínum fyrir Akraneskaupstað og
einstaklinga sem óska eftir aðstoð
við umhirðu garða.
Betra ástand
í Borgamesi
Samkvæmt upplýsingum frá
Indriða Jósafatssyni, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa í Borgarbyggð er
ásóknin í störf hjá Vinnuskóla
Borgarbyggðar minni nú í ár en í
fýrra og er það merki um gott at-
vinnuástand á svæðinu. Alls hafa
50 manns sótt um störf hjá Vmnu-
skólanum en í fýrra unnu þar 70
ungmenni. Þá var einnig útibú frá
skólanum á Bifföst en það verður
ekki í sumar vegna lítillar þátttöku.
Segir Indriði þetta vera skýrt
merki um meiri framboð á vinnu
fýrir aldurshópinn þetta sumarið.
Starfsmenn vinnuskólans eru nem-
endur í 8., 9. og 10. bekk og er
vinnutíminn átta vikur.
GG
Lengi von
BORGARFJORÐUR: Síðast-
liðinn þriðjudag heimtu bænd-
ur í uppsveitum Borgarfjarðar 5
kindur í landi Hlíðarenda í
Húsafelli. Þar voru á ferðinni
tveir veturgamlir hrútar frá
Augastöðum ásamt tvílembu frá
Hellubæ og hafði gimbrin und-
an henni nýlega borið einu
lambi. Féð var mjög vel á sig
komið eftir útigönguna í vetur
enda e.t.v. óvíða um betri haga
að ræða en kjarrivaxið land
Húsafells. -mm
Gáfu hjarta-
stuðtæki
SNÆFELLSBÆR: Líkt og
undanfarin ár þá sendi Fisk-
markaður Island hf. ekki jóla-
kort til viðskiptavina sinna um
síðastliðin jól. Þess í stað var
andvirði þeirra ráðstafað til
björgunarsveitanna. Að höfðu
samráði við björgunarsveitirnar
Björgu á Hellissandi og Sæ-
björgu í Olafsvík var ákveðið að
verja þessum fjármunum til
kaupa á hjartastuðtæki til end-
urlífgunar og var tækið afhent
téðum sveitum við sérstaka at-
höfn, í Líkn á Hellissandi,
föstudaginn 6. maí.
Með þessu vill Fiskmarkaður
Islands hf. sýna þakklæti fýrir
hið mikla og fórnfusa starf sem
félagar í björgunarsveitunum
leggja af mörkum til að auka og
tryggja öryggi meðborgara
sinna. Það hefur margoft sýnt
sig á undanförnum árum og
áratugum hversu ómetanlegt
það er að hafa öflugar björgun-
arsveitir þar sem óblíð náttúru-
öflin hafa svo oft og óþyrmilega
minnt á sig. -mm
Díselolían
verður ódýrari
LANDIÐ: Lögbundið gjald á
díselolíu verður lækkað til ára-
móta samkvæmt tillögu fjár-
málaráðherra sem samþykkt var
á ríkisstjórnarfundi um síðustu
helgi. Með því verður díselolía
á dælu 5 krónum ódýrari en ella
hefði orðið frá og með 1. júlí
þegar nýtt olíugjaldskerfi tekur
gildi. Geir Haarde fjármálaráð-
herra lagði til þessa breytingu
og var lagafrumvarp hans um
þetta samþykkt í ríkisstjórninni
og verður það lagt fýrir þingið
næstu daga. Skattalækkunin á
olíu er tímabundin og verður
ný ákvörðun um hvernig eigi að
stilla af bensín og olíuskattana
tekin í haust. Með skattalækk-
uninni á að tryggja að díselolía
verði ódýrari en bensín þegar
nýtt gjaldkerfi tekur gildi en
með því átti að hvetja til dísel-
notkunar frekar en bensíns til
hagsbóta fýrir þjóðarbúið. -mm
Skóli í hálfa öld
BORGARFJÖRÐUR: Laug-
ardaginn 21. maí nk. verða 50
ár liðin frá því að Varmalands-
skóli í Borgarfirði var vígður.
Af því tilefhi er öllum núver-
andi og fýrrverandi nemendum,
kennurum, skólastjórum og
öðru starfsfólki sem hefur haft
viðdvöl í skólanum boðið að
koma og taka þátt í dagskrá og
þiggja veitingar í tilefni dags-
ins. Dagskráin hefst klukkan 14
og fer hún fram í félagsheimil-
inu Þinghamri. Vorsýning skól-
ans verður jafnframt þennan
dag. -mm