Skessuhorn - 11.05.2005, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005
5
Ljóðið sjálft er ekkert annað en tónlist
Rætt við Skúla Ragnar Skúlason, hljómsveitarstjóra
5. Rngnar Skúlason, stjómandi Pjóólaga-
sveitar Tónlistarskólans á Akranesi.
Nýlega var tilkynnt um styrki úr
tónlistarsjóði Menntamálaráðu-
neytis. Meðal styrkþega var Þjóð-
lagasveit Tónlistarskólans á Akra-
nesi en styrkinn hlaut sveitin fyrir
nýjtmgar í tónlistarkennslu og tón-
leikaflutningi og er óhætt að segja
að kraftmikil starfsemi sveitarinnar
hafi þar með hlotið opinbera viður-
kenningu.
Skúli Ragnar Skúlason, tónlistar-
kennari hóf fyrir 8 árum þróunar-
verkefni sem miðar að því að sam-
eina tónlistarflutning, þá helst
þjóðlagatónhst, og texta. Þjóðlaga-
sveitin er hópttr 15 stúlkna sem all-
ar leggja stund á fiðlunám við Tón-
listarskólann. Þær eru á aldrinum
11 til 18 ára og hefur núverandi
hópur starfað saman í þrjú ár. Tón-
listin sem þær spila er skosk eða írsk
þjóðlagatónlist sem er tvinnað sam-
an við texta og úr verður sýning
frekar en hefðbundnir tónleikar.
Það má segja að þetta sé leikhús-
sýning í tónleikaformi. „Eg er í
raun að reyna að gera samanburð á
tónlistarformi og ljóðaformi því
ljóðið sjálft er ekkert annað en tón-
list. Það er strax komin hugmynd
hjá mér að næstu sýningu sem
tengist afmælisárinu", segir Skúli
Ragnar, en Tónlistarskólinn á
Akranesi fagnar 50 ára afmæli á
þessu ári.
Nemendumir fá víðtæka reynslu
því þeir fýlgja ákveðnu verki frá
fýrstu hugmynd til framkomu á
sviði. „Þetta er svo góður skóli fýr-
ir upprennandi tónlistarmenn því
þeir hafa komið fram á sviði í
mörgum leikhúsum landsins við
ýmsa atburði og komið fram í sjón-
varpi. Svo er þetta mikið samvinnu-
verkefni sem reynir á liðsheild
ffemur en margt annað.“
Mikil upplifun
Skúli Ragnar segir verkefnið
mjög gefandi: „Þetta er mikil vinna
því það þarf að skrifa handrit og út-
setningar og allt ffá grunni. En
Góð þjónusta en
vond aðstaða
Viðskiptavinir heilsugæslustöðv-
arinnar í Borgamesi em almennt á-
nægðir með þjónustu stofnunarinn-
ar samkvæmt niðurstöðum úr miss-
erisverkefni sem nokkrir nemendur
Viðskiptaháskólans á Bifföst unnu í
samráði við heilsugæslustöðina.
Verkefnið hafði það að markmiði að
kanna viðhorf viðskiptavina og
starfsmanna til þjónustuþátta stöðv-
arinnar og leggja ffam hugmyndir af
úrbótum gerðist þess þörf.
Hluti verkefnisins var við-
horfskönnun sem lögð var fýrir 550
viðskiptavini heilsugæslunnar síð-
asta sumar. Meðal annars var spurt
hvort viðskiptavinum þótti þeir fá
nægan tíma með heimilislæknin-
um, hvort auðvelt væri að segja
hinum frá viðkomandi vandamál-
um, hvort trúnaðar væri gætt varð-
andi sjúkraskrár, ffæðslu um við-
komandi sjúkdóma o.fl. Einnig var
spurt um gæði þjónustu varðandi
mæðravernd, ungbarnaeftirlit og
skólahjúkrun svo fátt eitt sé neftit. I
öllum tilfellum gaf meirihluti svar-
enda einstaka þjónustuþáttum góða
einkunn en og var hlutfall þeirra
sem gáfu hæstu einkunn ffá 40 -
80%. Einstaka þjónustu ættir fengu
hæstu einkunn. I flestum tilfellum
var hlutfall þeirra sem gaf lægstu
einkunn ffá 0 - 4%.
Niðurstaða skýrsluhöfúnda er að
viðhorf viðskiptavina til þjónustu
heilsugæslustöðvarinnar sé almennt
jákvætt. Elinsvegar er tekið ffam í
skýrslu nemendanna að húsnæði og
aðstöðu stofunarinnar sé mjög
ábótavant og segir þar m.a. að hús-
næðið haldi hvorki vatni né vindi.
Þá kemur ffam að aðstaða fýrir fatl-
aða sé ekki til staðar. Þá segir m.a. í
niðurstöðum skýrslunnar: „Þrátt
fýrir þessar efnislegu kringumstæð-
ur sem starfsmenn starfa við er allt
viðmót þeirra og viðhorf gagnvart
viðskiptavimnn mjög jákvætt. Það
virðist vera ríkjandi hjá starfsfólki að
sinna þeim verkefnum sem krefjast
athygh þeirra hvort sem þau heyra
tmdir þeirra starfssvið eða ekki.“ Þá
kemur ffam að síðasdiðin sjö ár hafi
staðið tdl að gera breytingar á hús-
næði heilsugæslustöðvarinnar og að
á þessu tímabili hafi allar meirihátt-
ar ffamkvæmdir legið niðri en hins-
vegar hillir nú undir einhverjar end-
urbætur á aðstöðu stöðvarinnar.
Misserisverkefnið var unnið af Á-
gústu Einarsdóttur, Guðfinni Stef-
ánssyni, Heiðdísi Hermannsdóttur,
Kristjönu Guðlaugsdóttir, Leifi
Runólfssyni og Olgu Kristrúnu Ing-
ólfsdóttur. GE
þetta er svo skemmtilegur hópur af
einbeittum stelpum að þetta er
búið að vera ffábært í alla staði.“
Alls hefur Þjóðlagasveitin gefið
út tvo geisladiska og sett upp þrjár
sýningar og var sú síðasta sem ber
nafhið „I takt við lífið - Vertu þú
sjálfur,“ til dæmis sýnd í Borgar-
leikhúsinu fýrir fullu húsi. „Við
þurftum að bæta við stólum inn á
sviðið, þetta var alveg hreint ffá-
bært kvöld og upplifun sem maður
gleymir aldrei." Skúli Ragnar segir
mikið ffamundan hjá sveitinni því
auk þess að vera eftirsótt á ýmsar
uppákomur innanlands er förinni
heitið til Kaupmannahaftiar í sept-
ember. Munu stúlkurnar einnig
koma ffam á Þjóðlagahátíðinni á
Siglufirði. Nóg er að undirbúa fýr-
ir svona ferðir en segir Skúli þau fá
mikinn smðning ffá foreldrafélag-
inu, undirleikurum, öðrum að-
standendum og núna komi til
styrkur úr tónlistarsjóði. Þjóðlaga-
veitin frá Akranesi hefur því aldeil-
is fengið byr trndir báða vængi og
er spennandi að fýlgjast með næsta
verkefhi stúlknanna.
GG
Metaðsókn að Bifröst
Aldrei hefur starfsólk Við-
skiptaháskólans á Bifföst tekið við
jafn mörgum umsóknum um nám
og fýrir næsta vetur. Skráningu
lýkur ekki fýrr en 10. júní en nú
þegar liggur ljóst fýrir að um-
sóknafjöldi tvöfaldast ffá síðasta
ári. Runólfur Agústsson, rektor
segir nokkrar ástæður fýrir þess-
um miklu vinsældum skólans:
„Við skerum okkur úr að því leyti
að kennsluaðferðir við þennan
skóla eru öðruvísi en annarstaðar.
Hér er lögð áhersla á 10 manna
verkefhahópa í stað hinna dæmi-
gerðu fýrirlestra og skapar það
persónulegri kennslu og stuðlar
að betra sambandi milli nemenda
og kennara." Svo virðist sem
nemendur setji staðsetningu skól-
ans ekki fýrir sig og telur Runólf-
ur nemendurna líta á hana sem
plús. Um helmingur nemenda er
fjölskyldufólk.
Undanfarið hefur nemendum
fjölgað mest í ffamhaldsnámi en
skólinn býður til dæmis upp á nám
í Evrópufræðum. Vinsældir skól-
ans má því rekja til nýstárlegrar
kennslustefhu og aukins náms-
framboðs auk fjölskylduvænnar
staðsetningar. Besta auglýsingin
er þó oft gott umtal: „Við fáum
einfaldlega mikinn meðbyr úr
samfélaginu. Við höfum undan-
farið fengið gott umtal og verið
mikið í umræðunni,“ segir Run-
ólfur. Þó að sífellt fleiri séu að
sækja um nám mun nemendum á
næsta vetri aðeins fjölga lítillega
sökum nýrrar félagsvísinda- og
hagfræðideildar. Núna eru um
470 nemendur skráðir í nám við
skólann. Þó að metið sé að falla í
umsóknafjölda hvetur þó Runólf-
ur alla sem áhuga hafa á Bifröst til
að sækja um: „Við leitumst effir
fjölbreytni í nemandahópi okkar
og hvetjum við alla til að senda
umsókn, maður fær nú ekki inni
nema sækja um.“
GG
Vorhátíð Snæfellsbæjar
Senn líður að fýrstu bæjar- og
héraðshátíðunum á Vesturlandi
þetta sumarið en allt í allt verða
þær um 10 í sumar. Dagana 20. -
22. maí næstkomandi verður há-
tíðin Vor undir jökli haldin í Snæ-
fellsbæ og fer hún ffarn vítt og
breitt um sveitarfélagið. Sem fýrr
er stefnt á heilbrigða útivist,
skemmtilegar uppákomur fýrir
alla fjölskylduna, söng,
Eurovisionhóf, dansleik og tón-
leika, góðan mat og fullt af menn-
ingu. I tilkynningu frá undirbún-
ingsaðilum segir m.a. „Við bjóð-
um upp á allt það besta sem Snæ-
fellsbær hefur að bjóða. Tilboð á
gistingu verða hjá flestum gisti-
stöðum í bæjarfélaginu. Dagskráin
hefst eftir hádegi á föstudeginum
og stendur alla helgina og þar
finna allir eitthvað við sitt hæfi.“
Þetta er í þriðja skipti sem
ferðaþjónustuaðilar í Snæfellsbæ
leggja í þetta samstillta átak til að
vekja athygli á kostum bæjarfé-
lagsins og er slík samvinna í ferða-
þjónustunni til fýrirmyndar. Allir
sem vilja njóta fjölskylduvænnar
helgar í fallegu og afslöppuðu um-
hverfi eru hvattir til að vera helg-
ina 20. - 22. maí í Snæfellsbæ, þar
sem Jökulinn ber við loft. Dag-
skráin verður nánar kynnt í næsta
blaði.
MM
LaNDSLÖG - LÖGFRÆÐISTOFA
opnar á Akranesi
Landslög - lögfræðistofa mun þann 17. maí næstkomandi opna alhliða
lögfræðistofu að Kirkjubraut 28 á Akranesi. Samhliða því tekur
skrifstofan við rekstri lögfræðistofu Tryggva Bjarnasonar, hdlv
sem hann hefur rekið þar.
Lögmenn Landslaga - lögfræðistofu eru nú átta talsins. Eigendur
stofunnar eru hæstaréttarlögmennirnir Garðar Garðarsson, Jóhannes Karl
Sveinsson, Jón Sveinsson, Viðar Lúðvíksson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Fulltrúar þeirra eru héraðsdómslögmennirnir Eiríkur Jónsson, Grímur
Sigurðsson og ívar Pálsson. Landslög - lögfræðistofa er í dag með tvær
starfsstöðvar, aðra í Hafnarhvoli, Tryggvagötu 11 í Reykjavík og
hina að Hafnargötu 31 í Keflavík. Lögfræðistofan á Akranesi verður
því þriðja starfsstöð fyrirtækisins.
Landslög - lögfræðistofa veitir hvers konar lögfræðilega þjónustu og
hafa lögmenn hennar víðtæka reynslu á mörgum sviðum lögfræðinnar,
svo sem á sviði fyrirtækjaráðgjafar, þjónustu við sveitarfélög og opinberar
stofnanir, stjómsýsluréttar, félagaréttar, skaðabótaréttar, vátryggingaréttar,
verktakaréttar, málflutnings og samningagerðar.
Þá sérhæfir skrifstofan sig í uppgjömm slysamála einstaklinga, skiptum
dánarbúa og innheimtu skuldamála svo nokkuð sé nefnt.
Við bjóðum nýja viðskiptavini á öllu Vesturlandi velkomna.
U 1
LANDSLÖG - LÖGFRÆÐISTOFA
Kirkjubraut 28
300 Akranes
LAN D S LO G
LÖGFRÆÐISTOFA
sími 4311944
www.landslog.is