Skessuhorn - 11.05.2005, Page 11
>ke»unu..:
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005
11
Akranesmeistaramót og loka-
hóf Badmintonfélags Akraness
Akranesmeistaramót Badmint-
onfélags Akraness var haldið
sunnudaginn 8. maí í íþróttahúsinu
við Vesturgötu. Á þessu síðasta
móti tímabilsins er keppt um Akra-
nesmeistaratitil í U-11, U-13, U-
15, U-17 og U-19, en auk þess er
keppt í foreldraflokki sem er alltaf
vinsælt en þar keppa foreldrar
og/eða systkini með börnum sín-
um. Þá einnig er keppt í Trimm-
flokki.
Alls mættu 81 keppandi til leiks
og sáust mörg glæsileg tilþrif i öll-
um flokkum og í flestum flokkum
réðust úrslit eftir jafnar og langar
viðureignir. Úrslit flokka urðu sem
hér segir: í flokki U-11 strákar sigr-
aði Steinn Þorkelsson, Jóhannes
Þorkelsson og U-11 stelpur sigr-
aði Alexandra Stefánsdóttir, Guð-
laugu Sif Hafsteinsdóttur. í U-13
strákar sigraði Eiríkur Henn,
Nökkva Rúnarsson og U-13 stelp-
ur vann Marianna Cabrita með
sigri á Sóleyju Bergsteinsdóttir.
Egill G. Guðlaugsson sigraði Ár-
mann Ö. Bjarnarson í U-15 strákar
og Karitas Eva Jónsdóttir sigraði
Hörpu Jónsdóttir í stúlknaflokki. í
U-17 vann Róbert Þór Henn, Birki
Guðmundarson í piltaflokki og
Una Harðardóttir vann Ólöfu Völu
Schram í telpnaflokki.
Úrslitaleikur U-19 /fullorðnir
varð heldur betur spennandi þar
sem Friðrik Veigar Guðjónsson
sigraði Hólmstein Valdimarsson í
leik sem fór í tvær upphækkanir og
oddalotu. í stúlknaflokki sigraði
Karitas Ósk Ólafsdóttir, Hönnu
Maríu Guðbjartsdóttur. í for-
eldra/systkinaflokki var keppt í
tveimur styrkleikaflokkum og sigr-
uðu systkinin Una og Ragnar
Harðarbörn feðginin Karitas Ó og
Ólaf Óskarsson eftir maraþon-
viðureign í A flokki. í B flokki unnu
systurnar Unnur Rebekka og Elín
Þráinsdætur vinkonurnar Al-
exöndru Stefánsdóttur og
Heiðrúnu Tómasdóttur. Trimm-
flokkurinn var geysilega spenn-
andi en þar sigraði Birgir A. Birgis-
son Pétur Sigurðsson í leik sem
stóð vel á aðra klukkustund.
Að móti loknu var haldið á
Veitingahúsið Barbró þar sem
lokahófið fór fram. Afhent voru
verðlaun fyrir Akranesmótið og
efniiegustu spilarar tímabilsins
útnefndir. í yngri flokkum hlutu
heiðurinn Ragnar Harðarson og
Karitas Eva Jónsdóttir. í eldri
flokki urðu Stefán Jónsson og
Hanna María Guðbjartsdóttir
heiðursins aðnjótandi.
Þá var badmintonspilari ársins
valinn Friðrik Veigar Guðjónsson.
Hið geysivinsæla happadrætti
Akranesmótsins var á sínum stað
auk hinna gómsætu pizza frá Bar-
bró. Badmintonfélagið vill koma á
framfæri þökkum til allra sem stutt
hafa starf félagsins.
Sumarstarf hefst með
Húsmæðraskólasýningu
Á föstudaginn kemur hefst sumar-
starf Safnahúss Borgarfjarðar í
Borgamesi. Sýningin „Húsmæðra-
skólinn á Varmalandi 1946 - 1986 -
I nærmynd Safhahúss,“ verður opn-
uð klukkan 18 í sýningarsal Byggða-
og náttúrugripasafns á 1. hæð.
Meirihluti muna á sýningunni er í
eigu Byggðasafhs Borgarfjarðar en
ýmislegt hefur þó verið fengið að
láni frá fyrrum kennurum og nem-
endum skólans. Snjólaug Guð-
mtmdsdóttir, handverkskona á Brú-
arlandi á Mýrum er aðalhugmynda-
smiður sýningarinnar og segir hún:
„Það er heiðtu fýrir Safhahúsið að
opna þessa sýningu vorið sem Stein-
unn Ingimundardóttir, fyrrverandi
skólastjóri skólans á einmitt stóraf-
mæh.“
Hússtjórnarskólinn á Varmalandi
var óskabam Sambands
borgfirskra kvenna og
var ætíð vel studdur af
þeim samtökum. Hann
var einn af betur búnum
húsmæðraskólum Is-
lands og útskrifaði kon-
ur vel undirbúnar í
hlutverk sitt í daglega
h'finu við að stjóma heimilum á fag-
legan máta. Sýningin stendur út
desember 2005. Sama dag opnar
KafHstofan fyrir sumarið. Hún opn-
ar með sýningu Stefáns Rafhs
myndlistarmanns, sem er Borgfirð-
ingum kunnur fyrir skopmyndir sín-
ar í mánaðarblaðinu Borgfirðingi
hér á ámm áður. Stefán málar
myndir í teiknimyndastil og mun
hann vera með vinnustofu sína í
Kaffistofunni í sumar fýrir gesti og
gangandi. KafHstofan býður upp á
heimabakað og smurt bakkelsi og
getur tekið á móti hópum ef pantað
er með fýrirvara. Sama dag opnar
einnig myndlistarkonan Edda María
Guðbjömsdóttir sýningu á verkum
sínum í sal Listasafns Borgamess á
2. hæð, klukkan 17:00.
Fyrrverandi nemendur og kenn-
arar Húsmæðraskólans á Varma-
landi em sérstaklega boðnir vel-
komnir á opnunina. (fréttatilk.)
Opinn kynningarfundur um breytingar á
aðalskipulagi á svæðinu frá Granastöðum að
Engjaási í Borgarnesi sem og deiliskipulagstillögu
um íbúðabyggð í landi Granastaða, verður
haldinn að Borgarbraut 65 efstu hæð kl. 20.30
fimmtudaginn 12. maí n.k.
I Auk kynningar bæjaryfirvalda á
l skipulagstillögunum munu forsvarsmenn
I Búmanna gera grein fyrir hugmyndum sínum
I um byggingu á íbúðum fyrir eldri borgara í
landi Granastaða.
Allir velkomnir
Þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veita Sigurgeir eða
Gísli í síma 437 1920
Matráð
vantar á Bifröst
Matráð vantar á leikskólann Hraunborg á
Bifröst frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Um er að ræða 100% starf við matreiðslu
og tilheyrandi störf við leikskólann. í skólanum
eru að jafnaði um 55 börn og 15 starfsmenn.
Vinnutími er frá kl 8:00 -16:00 á opnunartíma
leikskólans.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og /
eða mikla reynslu sem nýtist í starfinu.
I Umsóknarfrestur er til 27. maí 2005.
o
I í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru
1 jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
fræðslu- og menningarsviðs
ísíma 437-1224
www.skessuhorn.is