Skessuhorn - 28.09.2005, Blaðsíða 5
Ný störf vegna stækkunar Norðuráls
Liðsmenn óskast
í öflugt og vaxandi lið!
Vegna stækkunar álvers Norðuráls á Grundartanga óskar fyrirtækið að ráða starfsfólk til margvíslegra starfa.
Bæði er um að ræða framtíðarstörf og störf til skemmri tíma. í flestum tilvikum er gert ráð fyrir að nýir starfsmenn hefji störf
í desember n.k. en nokkur störf iðnaðarmanna eru laus nú þegar.
Þau störf sem um er að ræða eru:
• Framleiðslustörf í ker- og steypuskálum. Unnið er á tvískiptum 12 tíma vöktum (dag- og næturvaktir).
• Framleiðslustörfí skautsmiðju. Unnið á tvískiptum 8,5 tíma vöktum (morgun- og kvöldvaktir).
• Rafvirkjar. Annars vegar tvískiptar 12 tíma vaktir (dag- og næturvaktir) og hins vegar dagvinnustörf.
• Vélvirkjar. Annars vegar tvískiptar 12 tíma vaktir (dag- og næturvaktir) og hins vegar dagvinnustörf.
• Bifvélavirkjar. Um er að ræða dagvinnustörf
Æskilegt er að umsækjendur séu búsettir á Vesturlandi en skipulegar ferðir eru til og frá Akranesi og Borgamesi.
Hjá Norðuráli eru laun að hluta árangurstengd og fyrirtækið greiðir aukið framlag í séreignasjóð.
Umsóknir berist til Norðuráls fyrir 4. október næstkomandi. Hægt er að sækja um á vef fyrirtækisins www.norduraI.is
eða með því að senda umsóknir á netfangið umsokn@nordurai.is. Þeir sem hafa á síðustu þremur mánuðum sent inn
umsóknir til Norðuráls þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar.
Nánari uppiýsingar um störfín má fínna á heimasíðu Norðuráls www.nordural.is.
Norðurál leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi eiginleika starfsmanna sinna: Jákvætt viðhorf, lipurð í samskiptum,frumkvœði,
fagmennsku, sveigjanleika og vilja til að axla nýja ábyrgð. Starfsþjálfun og þróun skipa veigamikinn sess innan fyrirtœkisins
Ahersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna til starfa.
NORÐURAL
CenturyALUMiNUM
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001