Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2005, Síða 8

Skessuhorn - 28.09.2005, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 Karlavíffin falla hvert af öðru í hugum margra eru á- kveðin störf eingöngu karla- störf og önnur eingöngu kvennastörf. Má finna dæmi um heilar starfsgreinar þar sem skiptingin er algjör þrátt fyrir að ekkert mæli gegn því að fólk af hinu kyninu sinni þessum til- teknu störfum. En vígi svo- nefhdra karla- eða kvenna- starfa falla hvert af öðru sem betur fer. I Borgarnesi sinnir nú ung kona, Eygló Oskars- dóttir ffá Krossi í Lundar- reykjadal, starfi olíubíl- stjóra. Hún er að vísu ekki eina konan sem sinnir slíku starfi á landinu því vitað er að önnur kona starfar hjá Olíudreifingu og ein ekur olíubíl hjá Skeljungi. Eygló, sem er 25 ára hefur ekið olíubíl í eitt ár, fyrst á höfuðborgarsvæðinu en frá því í vor hefur hún dreift olíu á svæðinu norðan Skarðsheiðar í Borgarfirði fyrir Olíudreifingu. „Eg kann ágædega við þetta starf og það er ekkert í því sem segir mér að það sé ffekar fyrir karla en kon- ur. Mér finnst ekki síst gott að hafa fengið starf sem ég get unnið við hér heima í héraðinu því hér vil ég helst starfa. Olíubílsstjórastarf er lifandi starf þar sem maður hittir marga enda er ég mikið í að dreifa olíu á heimatanka hjá bændum og til verktaka víða um héraðið. Nú svo er sagt að konur aki oft varleg- ar en karlar og því á það í rauninni Eygló undir stýri á olíubílnum. ágætlega við að kona sé olíubíls- stjóri þar sem glannaskapur á af- skaplega illa við þegar um er að ræða akstur olíubíla." Eygló segir að í sumar hafi verið óvenju mikill erill við olíudreifing- una þar sem oh'ugjaldið breyttist 1. júlí og margir hömstruðu af þeim sökum olíu á tanka, tunnur og ker- öld ýmis konar til að eiga sem mestar birgðir áður en þungaskatt- urinn var felldur inn í sjálff olíu- verðið. „Maður var að eins lengi og hægt var alla daga í sumar og varð af þeim sökum víða að afþakka mat og kaffi á mörgum stöðum. Líklega á ég inni heimboð í kaffi sem dygði mér í margra vikna heimsóknir þó ég gerði ekkert annað, ef ég safhaði saman öllum heimboðunum sem ég þurfti að afþakka í sumar,“ segir hún og brosir. Aðspurð segist Eygló vel geta hugsað sér að halda áffam vinnu við olíudreifingu. „- Þetta starf venst ágætlega. I upphafi fannst mér veltingurinn þó óþægi- legur þegar ég keyrði um með hálf- tóman bíl því þá gutlar í tanknum sem veldur hreyfingu á bílnum líkt og bátur sem ruggar. Eg hef alltaf verið ferlega sjóveik og það var ekki laust við að maður fengi vott af sjó- veiki þegar bíllinn var hálftómur, en eins og hjá þeim sem venjast sjó- mennskunni, þá hætti ég fljótt að verða vör við þetta rugg.“ MM Lúðrasveit œskunnar á œfingatónleikum í liðinni viku með Jagúarmönnum. Lúðraþytur á Skaganum um helgúia Landsmót íslenskra skólalúðra- sveita fer ffam á Akrnesi um næstu helgi og verður dagskrá mótsins dreift vítt um bæinn. Landsmótinu verður þannig háttað að krakkar í A- og B- sveitum verður skipað í 4 stórar hljómsveitir sem kallaðar eru gula-, rauða-, græna- og bláa hljómsveitin. Þar fá krakkar sem æfa vanalega í lítilli hljómsveit, tækifæri til þess að spila í stórri. Æfingar fara fram í Grundaskóla, Tónlistarskólanum, Brekkubæjar- skóla og FVA. C- sveitir verða með tónleikaprógram sem þær flytja að mestu leyti á laugardegin- um. Tónleikastaðirnir verða nokkrir. Þar má nefna Safnasvæðið, Húsasmiðjuna, sundlaugina, Akra- torg og við verslanir. Sameiginleg- ar æfingar fara ffam í íþróttahúsinu við Vesturgötu. „Við erum svo heppin að við fáum fagfólk ffá Guildhall School of Music and Drama í London til þess að vera með verkefni í tónlist- armiðlun. Allar hljómsveitir taka þátt í þessu hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna. Hugmyndin er að skapa saman tónlistarstykki sem allir taka þátt í án þess að vera með skrifaðar nót- ur. Lúðrasveit Æskunnar verður með tónleika á Landsmótinu ásamt hinni frábæru hljómsveit Jagúar. Það er nýjung að hljómsveit eins og Jagúar haldi námskeið, kenni krökkunum lögin sín og samtvinni þannig tónlist sína við það sem við erum að fast við. Mun afrakstur af því námskeiði vonandi koma vel ffam um helgina. Það verður mjög spennandi að fylgjast með þessu verkefni og veit ég að hljóðfæra- leikarnarnir eru spenntir. Eftir tónleikana verður svo ball með Jagúar í íþróttahúsinu við Vestur- götu. Þar verður tjúttað eitthvað fram yfir miðnætti enda er mjög erfitt að vera kyrr þegar þessi hljómsveit er annars vegar,“ segir Heiðrún Hámundardóttir stjórn- andi Skólahljómsveitar Akraness í samtali við Skessuhorn. Heiðrún segir að mót af þessu tagi sé nýtt af nálinni og hafi góð þátttaka komið á óvart en búist er við allt að 1000 manns til bæjarfélagsins af þessum sökum.“ MM Konur hvattar til að leggja niður vinnu fslenskar konur er hvattar til að leggja niður vinnu þann 24. októ- ber næstkomandi, en þá verða lið- in 30 ár frá kvennaffídeginum árið 1975. Rósa Erlingsdóttir, verkefh- isstjóri hins nýja kvennaffídags, segir að konur verði ekki hvattar til að leggja niður störf með sama hætti og gert hafi verið fyrir 30 árum heldur sé því beint til kvenna að leggja niður störf ffá klukkan 14:08, en reiknað hafi verið út að þá hafi þær unnið fyrir launum sínum ef fitið sé til munar á atvinnutekjum karla og kvenna. Staðan sé enn þá þannig í dag að konur séu aðeins með 64,15 prósent af tekjum karla. Forsvars- menn kvennaffídagsins hafi spurt sig út ffá þessum upplýsingum hvenær konur væru búnar að vinna fyrir sínum launum miðað við átta klukkustunda vinnudag þannig að þær væru með sambæri- leg laun og karlmenn. Út hafi komið að þær þyrftu að vinna í rúmar fimm klukkustundir og þannig hafi tímasetningin fengist. Þá sé miðað við að konur hefji störf klukkan níu. Boðað hefur verið að kröfuganga fari ffam í Reykjavík sama dag klukkan þrjú og baráttudagskrá verður í miðbæ höfuðborgarinnar frá klukkan fjögur. MM Lopapeysan aftur orðin tískuflík Linda Pétursdóttir ípeysu sem hún prjónaði til eigin nota. Glöggt sést á klæðaburði ungmenna hvað er „móð- ins“ hverju sinni og er hin þjóðlega klassíska lopa- peysa sú flík sem nýtur mestra vinsælda meðal ungmenna sem og hjá al- menningi öllum þessa dag- ana. Ugglaust er þessi nýja tíska mörgum mömmum og ömmum til mikillar á- nægju því hentugri og hlýrri flík er vart hægt að hugsa sér þegar klæðast skal eftir nýjustu tísku hér heima á Fróni. Allar þær konur sem prjónum geta valdið hafa því setið og prjónað undanfarna mán- uði. Ekki er þó um að ræða hina hefðbundnu stóru „gollu“ sem flestnm dettur í hug þegar lopapeysa er nefnd, heldur stuttar, aðsniðnar, renndar peysur með hettu, helst svartar með hvítu munstri eða í öðrum sauðalitum. Blaðamanni Skessuhorns lék for- vitni á að vita hvað hafi verið upp- haf þessarar skemmtilegu tísku og hafði samband við Bryndísi Eiríks- dóttir framkvæmdastjóra Hand- prjónasambands Islands. „Fyrir um 2-3 árum byrjuðu ís- lenskar konur að þæfa ull og í versl- un sambandsins seldust heil ósköp af kembu. Það var svo um síðustu áramót að handavinnukonur skiptu snögglega úr þæfingu yfir í prjóna- skap,“ segir Bryndís. „Það var eins og allt breyttist bara á einni nóttu og allt í einu voru allar konur farn- ar að pjóna úr lopa,“ bætir hún við. Stuttu seinna markaðssetur fyrir- tækið Sportís nýtt snið peysa sem það hafði verið að hanna og prófa í rúmt ár. Bryndís segir að Sportís sé sennilega upphafsaðilinn að þessu nýja sniði sem varð strax vinsælt og hitti hreinlega beint í mark á rétt- um tíma því handavinnukonur voru nýbúnar að draga ffam prjónana á nýjan leik. „Handprjónasambandið hóf svo samstarf við Sportís um ffamleiðslu þessara nýju peysa og er það í fyrsta skipti sem samband- ið tekur að sér að selja fyrir ákveð- ið vörumerki. Salan hefur gengið svo gríðarlega vel að ekki ein ein- asta peysa sem framleidd er stopp- ar í húsi. ístex kynnti fljótlega á eff- ir ekki ósvipaða peysu og nú síðast nýtt prjónablað sem selst eins og heitar lummur,“ bætir hún við. Að- spurð um viðbrögð ferðafólks við þessari alíslensku tísku segir Bryn- dís ferðamenn taka henni vel. „Ferðamenn vilja föt eins og inn- fæddir ganga í og kaupa ffekar vör- una þegar þeir sjá heimamenn ganga í henni. Sala í sumar hefur gengið vel og eru þessar renndu peysur algjört „hitt“ hjá ferða- mönnum þó svo að heilpeysur haldi alltaf velli,“ segir hún að lok- um. Prjónakona á Vesturlandi Fjöldi kvenna á Vesturlandi prjónar fyrir Handprjónasamband Islands. Blaðamaður Skessuhoms kom við hjá Lindu Péturdóttur á Akranesi til að athuga hvað hún hefði á prjónunum þessa stundina. Linda hefur prjónað fyrir Hand- prjónasambandið síðan vorið 1998 og þá yfirleitt lopapeysur. Hún hef- ur svo orðið vör við aukna sölu lopapeysa og segir nóg af verkefh- um að hafa hjá Handprjónasam- bandinu. Linda hefur mikið prjón- að af sérpöntuðum peysum fyrir sambandið en síðustu verkefni hennar hafa verið Istex netpeysur svokallaðar, því uppskriftin að þeirri peysu er birt á vefsíðu Istex www.istex.is. Linda segist prjóna 4- 5 peysur í mánuði og sitji þá helst og prjóni á morgnana og á kvöldin í rólegheitum heima. Fyrir Lindu er prjónaskapurinn aukavinna og aðspurð hvort að henni þyki prjónaskapurinn skemmtilegur svarar hún um hæl; „jú, annars væri ég ekki að þessu.“ BG

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.