Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2005, Síða 11

Skessuhorn - 28.09.2005, Síða 11
^sunuo MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 11 Hópurinn viS rœtur Akrafjalls á leið á Háahnjúk. Ljósm: DÞ Frændur vorir Danir í heimsókn Fjörutíu og fjórir nemendur frá Lindvedskole á Jótlandi komu og heimsóttu 10. bekk Brekkubæjar- skóla ásamt fjórum kennurum sín- um þann 19. september. Höfðu nemendur Brekkubæjarskóla og Lindvedskole þá verið í samskipt- um í nokkrar vikur í gegnum tölvu- póst og MSN. Danski hópurinn fór beint í Bláa lónið eftir flugið og kynnti sér síðan jarðffæði í sýning- arhúsinu í Svartsengi. Um kvöldið var tekið á móti Dönunum með pizzuveislu og tilheyrandi eftir- væntingu á sal skólans. Effir langan dag fóru dönsku krakkarnir heim með gestgjöfum sínum. Daginn eftir sýndi 10. bekkur gestum sínum skólann; kíkt var í bekkjarstofur, íþróttahús og aðra aðstöðu.Gísli bæjarstjóri bauð þeim síðan upp á bæjarskrifstofur þar sem hann fræddi þá um Akra- nes; sögu bæjarins og atvinnulíf. Eftir það var stefnan tekin á Safna- svæðið á Görðum þar sem nem- endur nældu sér í enn meiri ffóð- leik af ýmsu tagi. Eftir hádegi klifu íslensku og dönsku krakkarnir Háahnjúk og sigurvíman leyndi sér ekki. Síðasta daginn fór fram lands- leikur Island - Danmörk á gervi- grasvelhnum. Mikil og góð stemn- ing skapaðist hjá leikmönnum og á- horfendum, sem hvötm liðsmenn sína af miklu kappi. Leikurinn fór 5-4 fyrir Danmörku en íslenska lið- ið tók ósigrinum íþróttamannslega eins og þeirra var von og vísa. Fengu þeir þó uppreisn æm er þeir sigraðu Dani í reiptogi, íþrótt sem Dönunum var með öllu ókunn. Eftir hádegi var farið í ratleik, þar sem helstu staðir og mannvirki Akraness voru lögð undir. Níu blönduð lið Dana og Islendinga tóku þátt í leiknum. Það tók aðeins eina klukkustund að ljúka við allar stöðvar. Að ratleik loknum fóra all- ir í danskennslu hjá Jóhönnu dans- kennara sem kenndi dönsku nem- endunum á nokkrum mínútum dans ársins og svokallaðan skipti- dans sem vakti mikla kátínu. Um kvöldið var síðan 250 manna dans- leikur haldinn í Brekkubæjarskóla þar sem ungmenni frá grannskól- um Akraness ásamt I.indvedskole dönsuðu undan sér skóna við til- heyrandi tónlist. Dansleikurinn fór hið besta ffam og allir skemmtu sér vel enda era ungmennin okkar til fyrirmyndar í alla staði. Morgunin eftir kvöddu Danir ís- lenska vini sína; mátti þá sjá tár blika á hvörmum. Huggun harmi gegn er að krakkarnir í 10. bekk munu væntanlega hitta danska vini sína í maí á næsta ári. Dagný Þorsteinsdóttir, Brekkubæjarskóla Fjörleg dagskrá FEBAN Nóg var um að vera í aðstöðu Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni síðastliðinn föstudag þeg- ar blaðamaður Skessuhorns leit þar við. Þar hafði hópur spilaglaðra fé- lagsmanna nýstaðið upp ffá spilum og var að næla sér í kafHsopa og köku. Venjan er sú að félagsmenn FEBAN komi saman og taki í spil á mánudögum 'og föstudögum, þá aðallega bridge en einnig félagsvist. Kátt var yfir öllum og vel var tekið á móti þessum óvænta gesti sem veifaði myndavél í allar áttir. Sprækir félagar FEBAN láta heldur ekki við spilamennskuna eina sitja. Dagskrá vetrarins er hreinlega sneisafull af samkomum ýmisskon- ar og engin ástæða fyrir félagsmenn að sitja með hendur í skauti. Rétt eins og hjá ungu fólki verður heils- an efld með markvissum æfingum við allra hæfi. Þar má nefna jógaæf- ingar, boccia, vatnsleikfimi og línu- dans. Röddum verður svo stillt saman á kóræfingum tvisvar í viku. Stefnt er að því að halda 2 dansleiki fýrir áramót þar sem svifið verður um gólf ffam á rauða nótt. Af þessu má glöggt sjá að dagskrá FEBAN er fjölbreytt, lífleg og skemmtileg. Félagslífið þar er í fullum blóma og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. BG LOKSINS LOKSINS stóra stundin er að renna upp Opnum nýja og glæsilega verslun aó Kirkjubraut 2 (áður e«rfa/ Roxy) laugardaginn l.Oktober Fatnaóur og undirfatnaóur á konur á öllum aldri og í öllum stæróum Vmis opnunartilboð Verið velkomin Límtré Vírnet framleiðir 3 tegundir af gjafagrindum sem hver um sig hentar fyrir ákveðnar aðstœður. Gjafagrínd til notkunar úti eða á taði, fyrír allt að 30 kindur. • Létt og meðfœrileg • Sterk • Sauðfé brýtur ekki hornin á grindinni Rúllugrind fyrir stórgripi. • Frábœr hönnun • Mjög einföld í notkun • Sterk og meðfœrileg Gjafagrind til notkunar innandyra, fyrir allt að 70 kindur. • Þrjár gerðir • Sterk • Auðveld í notkun • Sérstakar slœðigrindur • Sauðfé brýfur ekki hornin á grindinni límef ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR Borgarbraut 74 310 Borgarnes Sími 530 6000 Fax 530 6069 www.limtrevirnet.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.