Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2005, Síða 23

Skessuhorn - 28.09.2005, Síða 23
SiSjess'<jS©12í; MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 23 / Allir í brids f Logalandi Fjörugt og sívaxandi félagsstarf Bridsfélags Borgarfjarðar hefst mánudaginn 3. október nk. Þá mun fyrsta spilamennska nýs starfsárs hefjast með eins kvölds tvímenn- ingi í Logalandi. Að sögn Jóns Eyj- ólfssonar formanns félagsins, býst hann við nokkrum nýjum félögum að spilaborðinu og mun féiagið að- stoða þá sem melda sig inn án makkers að „para þá samarí'. „Það eru allir velkomnir til okkar; Borg- firðingar, Borgnesingar og lengra að komnir meðan húsrúm leyfir og plássið ergott og andinn verður ör- ugglega léttur og skemmtilegur sem fyrr, “ segir Jón á Kópa. MM Hópleikur UMFG-getrauna Um liðna helgi hófst Hópieikur UMFG - getrauna í Grundarfirði, sem er getraunaleikur um enska boltann og er alveg óháður sölu- kerfi íslenskra getrauna. Hann er þannig að það eru myndaðir hópar sem tippa á úrslit leikja á getrauna- seðli hverrar helgar þ.e. á laugar- dögum. Hver hópur samanstendur af tveimur einstaklingum sem gefa sínum hóp nafn og tippa á 6 tví- tryggða leiki og 7 einfalda. Stig á- kvarðast affjölda réttra leikja á get- raunaseðlinum t.d. 6 leikir réttir eru 6 stig. Þessi keppni mun standa fram til loka enska boltans sem á- kvarðast af getraunaseðli íslenskra getrauna. Keppnin hófst nú um helgina þann 24. sept. og voru 11 lið þegar búin að skrá sig og tóku þátt. En fyrir þá sem vilja vera með er haegt að skrá sig fyrir næsta get- raunadag. UMFG - getraunir eru í Sögumiðstöðinni á laugardags- morgnum frá kl. 10-12:30. Af grundarfjordur.is Stefnt að því að verja Æskusund- mótsbikarinn Síðastliðin 20 ár hefur farið fram sundkeppni milli ungmennafélaga á Vesturlandi og Norðvesturlandi í aldursflokkum 14 ára ogyngri, sem nefnt hefur verið Æskusundmót. Upphaflega var keppnin á milli Ungmennasambands Vestur- og Austur Húnvetninga (USVH og USAH) og Ungmennasambands Borgarfjarðar. Fljótlega hætti USAH þátttöku og Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) og Héraðs- samband Snæfells- og Hnappa- dalssýslu (HSH) bættust við í stað- inn. A síðasta ári fór Æskusund- mótið fram í Borgarnesi og UMSB bar sigur úr bítum eftir 9 ára hlé. Byggist sigurinn á því að UMSB var með keþþendur í öllum greinum og gerði fá sund ógild. I byrjun október fer keppnin fram á Hvammstanga. Það er að myndast góður kjarni sundfólks í Borgarnesi, en enn vantar stráka 13 -14 áraog 10 ára og yngri sem æfa sund. Hvetjum við allt ungt sundfólk I Borgarfirði til að mæta á æfingar í Borgarnesi og hjálpa til við að standa vörð um sig- urinn frá síðasta ári og halda far- andbikarnum heima í héraði. Æf- ingar eru mánudaga til fimmtudaga kl: 17:00 fyrir 5. bekk og eldri. Sjáumst hress í sundi! Guðmundur Arason, Formaður Sunddeildar Skallagríms. Sundskólinn hefur störf Næstkomandi sunnudag mun vetrarstarf Sundskólans á Akra- nesi hefjast af fullum krafti. Litlir sundgarpar bíða þess því með eftirvæntinu að komast í laugina og hefja leikinn. Hátt í 100 börn eru skráð til leiks en þátttakend- um hefur fjölgað stöðugt síðan skólinn var stofnaður fyrir 15 árum síðan. Það eru börn fædd á árunum 2000-2005 sem nú taka þátt og er þeim raðað í hópa eftir aldri og þörfum hvers og eins. í vetur verða starfræktir 3 fimm ára hópar, 2 fjögurra ára hópar, 1 þriggja ára, einn tveggja ára og einn eins árs hópur og svo einn ungbarnahópur. Ragnheiður Run- ólfsdóttir, umsjónarmaður Sund- skólans segir í samtali við blaða- mann að æfingar í vatni séu góð- ur undirbúningur fyrir almenna samhæfingu hreyfingar og þroska barns, líkamlega og félagslega. Stór þáttur í þroska og uppeldi Meginmarkmið ungbarna- sundsins er að venja barnið við svo því líði vel í vatninu. Hjá eins árs hópunum eru allar æfingar leikjatengdar og ætlaðar til að örva hreyfiþroska. Með hærri aldri verða æfingar og þrautir í auknum mæli tengdar málfræði og stærð- fræði til örvunar námsþroska og getu til þrautalausnar. „Við reyn- um að búa til ævintýraheim í Hressar og massaðar golfsystur af Skaga kringum námið, til dæmis með tónlist og miklum söng, sem hefur alltaf jákvæð á- hrif,“ segir Ragn- heiður. „Orðum og nöfnum er að jafnaði breytt og líkt við hluti úr líf- inu og náttúrunni eins og t.d. að synda í gengum hring er eins og að fara inní helli, skriðsund er eins og flugvélasund og þess háttar,“ bætir hún við. Ragnheiður segir að fyrst séu undirstöðuatriði skriðsunds og baksunds kennd því sú hreyfing tengist skrið- hreyfingu barn- anna sem er þeim eðlislæg. Frá tíma í ungbarnasundi. Byrjað er að kenna bringusund í kringum fimm ára aldurinn og þá á seinni hluta námskeiðsins. „Umhverfisreglum sundstaðar- ins er fylgt fast eftir til að barnið læri þær og virði sem fyrst. Einnig er mikil áhersla lögð á að barnið læri sjálfsbjörg eins fljótt og auðið er svo að ef þau detta í laug syndi þau beint að næsta bakka,“ segir Ragnheiður og bætir við að eðli- lega séu sum börn vatnshræddari en önnur og tekur það þau aðeins lengri tíma að venjast vatninu. Engin tenging er þar við sund- getu. „Ég var til að mynda mjög vatnshrædd sem barn,“ segir hún sposk. „Miklum aga er haldið á Golf er íþrótt sem hefur notið sívaxandi vinsælda hér á landi síðustu ár. Samt sem áður er það svo að ímyndin sem margir hafa af golfspilurum er að þeir séu fólk sem yfirleitt er komið af léttasta skeiði, gjarnan karlar. En þannig er það nú alls ekki. Á Akranesi búa hressar systur, þær Friðmey og Valdís Þóra Jónsdætur og eru þær miklir golfarar, en Valdís hef- ur náð mjög góðum árangri og er m.a. meðlimur í landsliðinu. Blaðamaður Skessuhorns rétt náði í skottið á þeim systrum áður en Valdís rauk út til Noregs til að keppa á Norðurlandamótinu í golfi. Við mæltum okkur mót í Fjölbrautaskóla Vesturlands en þar stunda þær systur nám. Frið- mey er á þriðja ári á félagsfræða- braut en Valdís er á fyrsta ári á náttúrufræðibraut. Þær systur hafa stundað golf í nokkuð langan tíma en fóru ekki að taka þátt af alvöru fyrr en fyrir um fjórum árum. Ástæðan fyrir þessum golfáhuga er líklega sú, segja þær, að nokkurn vegin öll fjölskyldan stundar golf. Það lá því beinast við að þær færu einnig í þetta. Reyndar höfðu þær hafið glæsilegan fótboltaferil með ÍA en hann varð að víkja fyrir golfinu. Mörgum finnst golfið róleg í- þrótt en þær segja þetta mjög krefjandi og engan barnaleik. lofti varðandi samskipti sund- garpanna og kennara því per- sónuleg og góð samskipti eru lyk- ilatriði í góðu starfi. Kátína og leik- ur eru okkar einkunnarorð," bætir hún við að lokum. Haustnám- skeiði sundskólans lýkur svo með jólasprelli og sýningu rétt fyrir jól, fyrir fjölskyldu og vini. BG „Það er ekkert auðvelt að bera þetta 4-7 kíló kannski 6-7 kílómetra í Systurnar Friðmey og Valdís Þóra Jónsdætur. einni keppni," segir Val- dís og rekur ofan í blaðamann þær fullyrð- ingar að golf sé í raun- inni skítlétt. Við nánari rannsóknir kom hins- vegar í Ijós að meðal- golfpoki er um 10 kíló að þyngd. „En við erum náttúrulega svo „hel- massaðar," fullyrðir Val- dís og blaðamaður þor- ir ekki annað en að við- urkenna það. „Ég hef nú minnkað muninn í sumar sko,“ svarar Friðmey þegar þær voru spurðar hvort að mikill munur væri á milli systranna í styrkleika, en Val- dís hefur eins og áður sagði náð mjög góðum árangri í íþróttinni. Ástæðan fyrir þessu telja þær systur þó vera þá að Friðmey tók vinnu framyfir í fyrrasumar, en hún hefur eins og systir hennar unnið í versluninni á golfvellinum í sumar en Valdís á vellinum. Helstu verk- efnin þar eru að hreinsa sand- gryfjurnar og almennt viðhald á vellinum. Eins og í öðrum íþróttum er keppnin hörð en systurnar segja mun betri móral á milli stelpna en stráka sem spila golf. Strákarnir eigi það frekar til að láta keppnina fara með sig en á milli stelpnanna sé mun meiri vinskapur. Þegar systurnar voru spurðar hvort þær ættu eitthvað líf fyrir utan golfið er Valdís fljót að svara „nei, ekki á sumrin". Þar á bæ gengur dagur- inn greinilega bara út á að spila golf daginn út og inn. Enda hefur Valdís þurft að fórna ýmsu til að ná þeim árangri sem hún hefur nú náð. Hún segir tímasetningar á golfmótum yfirleitt stangast á við aðrar skemmtanir, svo sem írska daga og fleira í þeim dúr. Til dæmis missti hún af busavígsl- unni sinni vegna þess að hún var að keppa í golfi. Þrátt fyrir að margir hafi skotið á þær einhverjum skotum fyrir að hafa þennan gríðaráhuga á golfi og þurfa að fórna ýmsu lítur út fyrir að þessar hressu systur séu ekkert á leiðinni að hætta. Að minnsta kosti var það auðsótt mál að fá þær upp á golfvöll í mynda- töku; „við erum hvort sem er að fara þangað,“ var svarið og kom svo sem ekki á óvart. ÞGB J > f * %

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.