Skessuhorn - 12.10.2005, Side 1
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
nettö
alltaf gott - alltaf ódýrt
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
40. tbi. 8. árg. 12. október 2005 - Kr. 300 í lausasölu
Flestir
andvígir
sameiningu
sveitarfélaga
Niðurstaðan í sameiningarkosning-
um um fækkun og stækkun sveitarfé-
laga varð sú að íbúar höfnuðu tillög-
unum í 15 tilfellum af 16 í kosningum
sl. laugardag. Tillaga um sameiningu
sveitarfélaga á Snæfellsnesi var felld í
öllum fimm sveitarfélögunum sem
um ræðir. Hinsvegar var tillaga um
sameiningu í Dölum og Reykhóla-
sveit samþykkt í tveimur sveitarfélög-
um af þremur og verður af þeim sök-
um kosið aftur í Reykhólasveit innan
sex vikna og líklega 5. nóvember.
Tillaga um sameiningu Saurbæjar-
hrepps, Reykhólahrepps og Dala-
byggðar var samþykkt í Dalabyggð og
Saurbæjarhreppi en felld í Reykhóla-
hreppi. I Saurbæjarhreppi var 61 á
kjörskrá. 42 kusu eða 68,85%. Já
sögðu 21. Nei sögðu 17. Auðir og ó-
gildir seðlar voru 4.1 Reykhólahreppi
voru 195 á kjörskrá. 122 kusu eða
62,56%. Já sögðu 38. Nei sögðu 84. í
Dalabyggð var 481 á kjörskrá. 267
kusu eða 55,5%. Já sögðu 163. Nei
sögðu 97. Auðir og ógildir seðlar voru
7.
Rétt upp úr miðnætti á laugardags-
kvöld var ljóst að íbúar í öllum sveit-
arfélögunum fimm á Snæfellsnesi
höfðu hafnað sameiningu. Sveitarfé-
lögin sem um er að ræða eru Helga-
fellssveit, Eyja- og Miklaholtshrepp-
ur, Stykkishólmsbær, Grundarfjarðar-
bær og Snæfellsbær. 43,3% íbúa í
Eyja- og Miklaholtshreppi voru sam-
þykkir sameiningu en 56,7% andvígir.
I Snæfellsbæ voru 20,6% samþykkir
en 79,4% andvígir. I Grundarfirði
voru 14,5% samþykkir en 85,5% and-
vígir. I Helgafellssveit voru 24,2%
samþykkir en 75,8% andvígir og í
Stykkishólmi voru 3 5 % samþykkir en
65% andvígir. Kjörsókn var á bilinu
55-85%, mest í Helgafellssveit.
MM
ATLANTSOLIA
Disel ‘Faxabraut 9.
Eins og alþjóð veitfór Sauðamessa fram í Borgamesi um liðna helgi. Gríðarlegt fjölmenni lagði afþeim sökum leið sína í Borgames.
Ljósm. ÞÞ. Sjd hls. 12 og 13.
Vaxtarsamningur við
Vesturland í burðarliðnum
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra hefur
ákveðið að gengið verði til samn-
inga um gerð svokallaðs vaxtar-
samnings fýrir Vesmrland. Samn-
ingurinn er annarsvegar milli rík-
isins og hinsvegar Samtaka sveit-
arfélaga á Vesmrlandi og fyrir-
tækja í landshlutanum. Vaxta-
samningar (growth agreement)
era nýlegt hugtak í umræðunni
um byggðamál á Islandi. Hins
vegar eru vaxtasamningar vel
þekkt fyrirbæri í byggðastefnu
ýmissa annarra þjóða. Kjaminn í
vaxtasamningum er að þeir era
samkomulag sveitarfélaga og ann-
arra aðila á viðkomandi svæði um
uppbyggingu þeirra atvinnugreina
sem era öflugar eða eiga sér bjarta
framtíð. Því tengist klasahugtakið
með beinum hætti í vaxtarsamn-
inga af því tagi sem hér um ræðir.
Klasar era skilgreindir sem hópur
fyrirtækja, þjónusmaðila, stofnana
og tengdra aðila á sama landssvæði
og á ákveðnu sviði sem keppa hver
við annan, en hafa eimiig með sér
náið samstarf. I hverjum klasa er
starfandi ákveðinn fjöldi fyrirtækja
og þeim tengjast menntastofnanir,
rannsóknarstofnanir og fleiri
hagsmunaaðilar. Saman mynda
þessir aðilar þétt samstarfsnet og
sameiginlegur ávinningur svæðis-
ins er mikill.
Nú þegar hafa sambærilegir
vaxtarsamningar verið gerðir á
öðram landssvæðum, m.a. í Eyja-
firði, og á Vestfjörðum. Valgerður
Sverrisdóttir, ráðherra sagði í sam-
tali við Skessuhorn að stefnt sé að
því að unnið verði hratt að hinum
nýja vaxtarsamningi fyrir Vesmr-
land þannig að vinnunni ljúki þeg-
ar á þessu ári. „Innan tíðar mun
verða skipuð verkefhisstjórn sem
vinna mtm að undirbúningi verk-
efnisins. Hana munu skipa fulltrú-
ar sveitarfélaga á Vesturlandi auk
starfsmanns frá ráðuneytinu.
Verkefnisstjórnin skilar skýrslu þar
sem mótuð verður stefna um efh-
istök samningsins, áhersluatriði
heimamanna og svo framvegis.
Þegar skýrsla verkefnisstjórnar
liggur fyrir verður skipuð stjórn
þar sem sveitarfélög og vonandi
fulltrúar atvinnulífsins munu eiga
sæti,“ sagði Valgerður. Hún segir
að ffamlag ríkisins til vaxtarsamn-
inga af þessu tagi sé í hlutfalli við
framlag heimamanna; sveitarfé-
laga og fyrirtækja sem þátt vilja
taka í verkefninu. „Við höfum
góða reynslu af vaxtarsamningi
sem þessum t.d. á Eyjafjarðasvæð-
inu. Heimamenn þar tóku vel í
verkefnið og lögðu vel í það sem
þýðir m.a. að mótframlag ríkisins
er milljónatugir á þeim áram sem
samningurinn gildir, “ segir Val-
gerður. Hún segir að undirbún-
ingsvinna sem Samtök sveitarfé-
laga á Vesmrlandi hafi þegar lagt í
greiði fyrir vaxtarsamningsgerð-
inni nú. „Heimamenn á Vesmr-
landi hafa unnið góðan undirbún-
ing og vafalítið mun sú vinna flýta
fyrir afgreiðslu málsins," segir ráð-
herra að lokum.
Olafur Sveinsson, forstöðu-
maður SSV þróunar og ráðgjafar
fagnar því að nú hilli undir gerð
vaxtarsamnings fyrir Vesmrland.
„Arangur af þessari vinnu stendur
og fellur með þátttöku og frarn-
kvæði heimamanna; fyrirtækja,
sveitarfélaga og stofnana. Þessir
aðilar verða að vera virkir frá upp-
hafi. Ef við fáum ekki framlag
heimamanna til verkefnisins er
málið dautt,“ segir Olafur. Hann
tekur undir þau orð Valgerðar að
greiningarvinna og undirbúning-
ur sem ffarn hafi farið hjá atvinnu-
ráðgjöfum SSV flýti fyrir verkefh-
inu. Þar sé búið að vinna skýrslu
um þau áhersluatriði sem heima-
menn ætm að setja á oddinn. Um
ffamhald málsins hér heima fyrir
segir Olafur að líklega verði boð-
að til kynningarfundar í nóvem-
ber þar sem fyrirtækjum og stofn-
unum verður kynnt út á hvað
vaxtarsamningurinn gangi en í
næsm viku verður málið kynnt
sveitarstjórnum. „Þá er gert ráð
fyrir að skrifað verði undir viljayf-
irlýsingu við ráðuneytið á aðal-
fundi SSV sem ffam fer 28. októ-
ber nk,“ sagði Ólafur.
MM
Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjörður • Húsavík • ísafjörður • Neskaupsstaður • Njarðvík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd
Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 13. -16. okt. eða á meðan birgðir endast.