Skessuhorn - 12.10.2005, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTOBER 2005
jáCSSUIU/k.
Gæludýrabíllinn
er kominn af staö'*
eö hágæöa hunda
m
Erum einnig með fóður fyrir önnur
gæludýr: Fugla, fiska og nagdýr.
IVfikið úrval af öðrum gæludýravörum.
Nánari upplýsingar og sérpantanir
í síma 848-4649
Getum einnig tekið að okkur
verkefni í sambandi við gæludýr og landbúnað.
Byggingaverkamenn
Smidir
*
Oskum eftir að ráða öfluga starfsmenn
í hópinn við framkvæmdir
á Miðbæjarreit Akranesi.
Upplýsingar gefur Lárus í síma 893 8360
Húsbygg ehf - www.husbyggehf.is.
HOSBYGO
Atvinna
AT
I
Smiðir og byggingaverkamenn óskast
til starfa nú þegar hjá Sólfelli ehf
Borgamesi.
Upplýsingar veitir Sigurður
Guðmundsson á skrifstofu Sólfells eða
í síma 861 3355.
ehf
^ Brákarbraut 27 y
f N
Ferðaþjónusta
á Vesturlandi
all sanses - upplWðu altt
Ef þú rekur ferðaþjónustu áVesturlandi
og hefur áhuga á að bæta afkomu þína
ættir þú að slást í okkar hóp.
Við erum hress og bjartsýn og vinnum að því
að styrkjaVesturland sem úrvals valkost fyrir innlenda
og erlenda ferðmenn.
Hafðu sainband við Þórdísi G. Arthursdóttir,
verkefnisstjóra í síma 895 1783 eða á
tga(« simnet.is fyrir 1. nóvember.
Smurstöð við hlið efiialaugar?
Sótt hefur verið um leyfi til að
flytja rekstur smurstöðvarinnar í
Borgarnesi frá Essóplaninu við
Borgarbraut um set og í Borgar-
braut 55 þar sem Fjölritunarþjón-
ustan var síðast til húsa. Deildar
meiningar eru um hvort leyfa skuli
rekstur smurstöðvar á þessum stað
en í sama húsi er fyrir efnalaug og
hárgreiðslustofa.
Að sögn Páls Brynjarssonar bæj-
arstjóra er erfitt að sjá hvort það
samrýmist skipulags- og bygging-
arlögum að heimila þennan rekstur
á þessum stað. Því ákvað bæjarráð
að fara þá leið að vísa málinu til
Skipulagsstofnunar með beiðni um
flýtimeðferð og er umsagnar að
vænta nú í vikunni.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhomi ætlar Brúarland ehf. að
byggja háhýsi á lóðinni þar sem
smurstöðin er nú og er það ástæða
íyrirhugaðra flutninga. GE
Skólalóð lagfærð
Þessa dagana er verii ai leggja lokahönd á endurbietur skólalóðar grunnskólans í Ólafsvík. Framkviemdir hófust á síöasta ári og þá
var komiðfyrir nokkrum leiktakjum en nú er verið a$ bæta við og þegaryfir líkur á lóöin að vera til mikillar prýSi ogfyrirmyndar
í alla staSi. GE
Hætta Landmælingar
samkeppnisrekstri?
Landmælingar Islands munu ur Magnús Jóhannesson ráðuneyt- lands fyrir nær helmingi minni árs-
hætta öllum samkeppnisrekstri ef isstjóri Umhverfisráðuneytisins greiðslur en Landmælingar hafa
ffumvarp sem verður lagt fram á staðfest í samtölum við fjölmiðla fengið síðustu ár. Tilboði
Alþingi verður að lögum. Sam- undanfarna daga. Fyrir nokkrum Loftmynda hefur ekki verið svarað
kvæmt frumvarpinu yrði helsta dögum barst ráðuneytinu tilboð ffá og fyrirhugað ffumvarp er heldur
hlutverk Landmælinga að halda Loftmyndum sem buðust til þess að ekki svar við tilboðinu.
gagnafrumritun til haga. Þetta hef- taka við rekstri Landmælinga Is- HJ
Sjö sækja um fjölbýlishúsalóð við
Sólmundarhöíða
Sjö umsóknir bárust um lóð und-
ir fjölbýlishús á Sólmundarhöfða á
Akranesi en frestur til að sækja um
rann út 30. september sl. Sam-
kvæmt gildandi deiliskipulagi er
gert ráð fyrir einni lóð undir fjöl-
býlishús á Sólmundarhöfða. Bæjar-
ráð fór yfir umsóknirnar á fundi
sínum sl. fimmtudag. Samþykkt
var að fela sviðsstjóra tækni- og
umhverfissviðs að taka saman
helstu upplýsingar úr þeim gögnum
sem fýrir liggja, en í framhaldi þess
mun bæjarráð kynna málið bæjar-
fulltrúum og öðrum sem að því
koma. Að því loknu verður ákvörð-
tm tekin um endanlega afgreiðslu
málsins.
Umsóknir bárust ffá Garðbæ ehf.
og Fasteignamiðlun Vesturlands,
IAVj Laugamesi fasteignafélagi, Sig-
urjóni Skúlasyni ehf., Stafna á milH
ehf., Sveinbymi Sigurðssyni ehf. og
Trésmiðjunni Akri ehf. MM
Brottviloiing Guðrúnar Jónu úr sveit-
arstjóm Dalabyggðar stóðst eldd lög
Félagsmálaráðuneytið hefur fellt
úr gildi ákvörðun sveitarstjórnar
Dalabyggðar ffá því 19. apríl um
brottvikningu Guðrúnar Jónu
Gunnarsdóttur úr stjórninni. Guð-
rún Jóna kærði samþykkt sem gerð
var á sveitarstjórnarfundi í Dala-
byggð og krafðist þess að hún yrði
felld úr gildi. Það var Þorsteinn
Jónsson, oddviti Dalabyggðar sem
lagði á fundinum ffam svohljóðandi
tillögu:
„Með vísan til þess, að sveitar-
stjórnarmaðurinn Guðrún Jóna
Gunnarsdóttdr hefur flutt úr sveit-
arfélaginu um stundarsakir til að
stunda nám og störf í Reykjavík, er
ákveðið með vísan til svéitarstjórn-
arlaga, að hún skuli „víkja úr sveit-
arstjórn, þar til hún tekur aftur bú-
setu í sveitarfélaginu", sbr. 4. mgr.
24. gr. sveitarstjórnarlaga og skal
varamaður hennar taka sæti í sveit-
arstjórn í samræmi við niðurlag 24.
gr. laganna.“
Tillagan var samþykkt með fimm
atkvæðum gegn tveimur. I kjölfarið
óskaði Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
eftir að gera grein fyrir atkvæði sínu
á þennan veg: „Með þessari at-
kvæðagreiðslu er ljóst að sveitar-
stjómarmenn em ekki starfi sínu
vaxnir og ljóst að hér er viðhaft gróft
einelti.“ Hún mótmælti þessari á-
kvörðun og taldi hana ólöglega og
lögleysu og taldi það vera verk sveit-
arstjómarmanna að kynna sér málin
áður en svo stór ákvörðun væri tek-
in. Snæbjörg Bjartmarsdóttir óskaði
eftir að eftirfarandi yrði fært til bók-
ar: „Það sem ég vil kalla 5 manna
meirihluta sveitarstjórnar Dala-
byggðar, hefur ítrekað reynt að bola
Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur
burt, nánast ffá síðustu kosningum.
Má því kallast fáránlegt af viðkom-
andi að notfæra sér þá aðstöðu
hennar að þurfa að vinna fyrir sér
annars staðar, eins og raunar fjöl-
margir Dalamenn gera, athuga-
semdalaust til að koma henni burt úr
sveitarstjóm þegar annað dugði ekki
til. Lg mótmæli þessu harðlega og
ég er sannfærð um að svona mál
hefði ekki komið upp ef um mann af
S-lista hefði verið að ræða. Þetta er í
versta falli gróft einelti og í besta
falli alvarlegt manngreinarálit.“
I niðurstöðu ráðuneytisins segir
að Guðrún uppfylli kjörgengisskil-
yrði þar sem hún sé íslenskur ríkis-
borgari, eldri en 18 ára, eigi lög-
heimili í sveitarfélaginu og hafi ekki
verið svipt lögræði. Ekki sé hægt að
víkja henni úr sveitarstjórn á þeim
forsendum að hún hafi misst kjör-
gengi.
Þorsteinn Jónsson oddviti Dala-
byggðar vildi ekki tjá sig um úr-
skurðinn þegar Skessuhorn leitaði
til hans að morgni þriðjudags þar
sem hann hafði ekki lesið hann.
Ekki náðist heldur í Guðrúnu Jónu
Gunnarsdóttur við vinnslu fféttar-
innar. HJ