Skessuhorn - 12.10.2005, Síða 15
Sl£ÍSS|fii©l£KI
15
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005
' 2.
Blái kraninn
Nýr löndunarkrani hefur verið
tekinn í notkun við Amarstapahöfh
en forveri hans hefur látið af störf-
um fyrir aldurs sakir. Kraninn er
blár og segja gárungamir að það sé í
stíl við allt annað í Snæfellsbæ enda
hljóti íhaldsmeirihlutinn sem verið
hefur við völd um alllangt skeið að
hafa nokkur umhverfisáhrif.
Hvort „bláa höndin“ stýrir Snæ-
fellsbæ skal ósagt látið en það er
allavega blár fingur sem hífir fiskinn
upp á bryggju á Amarstapa.
GE
7 (■ - i
Sveinbjöm Eyjólfsson, oddviti Borgarfjarðarsveitar fœrir hér Aslaugu Ellu Gísladóttur,
leikskólasljóra blóm í tilefii dagsins.
Hulduheimar
opnaðir á Hvanneyri
Ný deild var síðastliðinn
fimmtudag tekin formlega í notkun
við leikskólann Andabæ á Hvann-
eyri. Ibúð í nálægu húsi við leik-
skólann hefur verið breytt og þar
komið fyrir deild fyrir yngstu böm
Andabæjar, þau sem em eins og
tveggja ára gömul. Deildin hefur
verið nefhd Hulduheimar og er þar
pláss fyrir ellefu börn og er þegar
búið að fylla í tíu þeirra. Alls em nú
40 börn í leikskólanum Andabæ.
„Þetta er bráðabirgðahúsnæði
sem við létum breyta í leikskóla-
deild en nú er í undirbúningi að
hanna og smíða nýja leikskóla-
byggingu á Hvanneyri," sagði
Linda B Pálsdóttir sveitarstjóri
Borgarfjarðarsveitar. Hún segir
Hvanneyrarstað mjög vaxandi
þorp og að þar hafi að undanförnu
sest að mikið af ungu fólki. „Við
gerum ráð fyrir að barnafólki
fjölgi enn ffekar á næstu mánuð-
um og ámm enda er fjöldi hús-
bygginga í gangi og í undirbúningi
á staðnum,“ segir Linda.
MM/ Ljóstn: Pétur Davíðsson.
GDsiskvísur kynntu fórðun ogfatatísku 7. áratugarins á lokasýningu þemadaga í
Grundaskóla.
Hippaþema í
Grundaskóla
Síðastliðnar 3 vikur hefur 7.-10.
bekkur Grundaskóla á Akranesi
unnið að verkefhum tengdum 7.
áratugnum sem lauk með glæsilegri
sýningu föstudaginn síðasdiðinn á
sal skólans. Þar vom til sýnis verk-
efni nemendanna sem unnin vom í
tengslum við tónlist og menningu,
förðun og klæðaburð, lifnaðarhætti
og margt annað sem einkenndi
þetta tímabil. A sýningunni stigu
hljómsveitir skólans á stokk og spil-
uðu smelli þessa tíma. Lörðun og
famaður var svo sýndur í glæsilegri
tískusýningu. Einnig var flutt brot
úr söngleiknum Hunangsflugur og
villikettir sem frumsýndur verður
5. nóvember n.k. Að sögn Laufeyj-
ar Karlsdóttur umsjónarkennara er
markmið þemavikunnar að brjóta
upp hefðbundið skólastarf. „Börnin
vom sérstaklega glöð og ánægð
meðan á vinnunni stóð enda
skemmtileg tilbreyting og margt
hægt að læra þó það sé ekki beint úr
bókinni,“ segir Laufey í samtali við
blaðamann Skessuhorns. Hún bæt-
ir við að börnin gátu valið um verk-
efni og fengu flest þeirra að taka
þátt í því verkefhi sem þau völdu
sér. Hluti verkefnanna var liður í
uppsetningu skólans á söngleiknum
sem áður var nefndur, en sögusvið
hans gerist einmitt á Akranesi á
7.áratug síðustu aldar.
Getum við Við höfum flutt
aðstoðað starfsemina í
Þig? eigið húsnæði á Kveldúlfsgötu 23
fl neðri hæð.
Velkomin á nýjan stað!
Fjölritunar- og Kveldúlfsgötu 23-310 Borgarnes
útgáfuþjónustan Sími: 437 2360 Fax: 437 2361 EMAIL: olgeirhelgi@islandia.is
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
Nyjung i
buskapar
Límtré Vírnet framleiðir 3 tegundir af
gjafagrindum sem hver um sig hentar
fyrir ákveðnar aðstœður.
Gjafagrind til notkunar úti eða á taði,
fyrir allt að 30 kindur.
• Létt og meðfœrileg
• Sterk
• Sauðfé brýtur ekki hornin á grindinni
Rúiiugrind fyrir stórgripi.
• Frábœr hönnun
• Mjög einföld í notkun
• Sterk og meðfœrileg
Gjafagrind til notkunar innandyra,
fyrir allt að 70 kindur.
• Þrjár gerðir
• Sterk
• Auðveld í notkun
• Sérstakar slœðigrindur
• Sauðfé brýtur ekki hornin á grindinni
Vpnet
ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR
Borgarbraut 74 310 Borgarnes Sími 530 6000 Fax 530 6069
www.limtrevirnet.is
BG