Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 1
Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nett' alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 2. tbl. 9. árg. 11. janúar 2006 - Kr. 300 í lausasölu Þann 4. janúar fœddistfyrsti Vestlendingur ársins á Sjúkrahúsi Akraness. Það var lítið stúlkubam, 3120 gr. og 50 cm. Foreldramir eru Dagný Osk Halldórsdóttir frá Magnússkógum í Dölum og G. Reynir Georgsson frá Akranesi. Hinn stolti stóri bróðir heitir Halldór og er 6 ára. Helga Höskuldsdóttir tók á móti stúlkunni og reyndar Halldóri einnig á sínum tíma. Svo skemmtilega vildi til að stúlkan fieddist á afmælisdegi langafa síns ífóðurætt, Valdimars, fjölskyldunni til mikillar ánægju. Ljósm: BG Sparisjóður Mýrasýslu opnar útibú á Akranesi Tekur jafnframt yfir umboð Tryggingamiðstöðvarinnar á Akranesi og í Borgarnesi Hefur ekki áhrif á samskiptin Páll Brynjarsson bæjarstjóri í Borgarbyggð telur að deilur þær sem sprottið bafa milli sveitarfé- laga á Vesturlandi vegna nýskip- an lögreglumála komi ekki til með að hafa áhrif á firamtíðar- samsldptd sveitarfélaganna. Sem kunnugt er ákvað dómsmálaráð- herra á dögunum að lögreglu- stjóraembættið á Akranesi verði svokallað lykilembætti en áður hafði verið stefht að því að emb- ættið í Borgamesi sinnti því hlut- verki. „Samstarf milli sveitarfé- laga á Vesturlandi hefur verið með ágætum undanfarin ár og þó að í þessu máli hafa hlaupið snurða á þráðinn vona ég og tel að það komi ekki til með að spilla fyrir samskiptum sveitarfélag- anna í framtíðmni. Sveitarstjórn- ir á báðum stöðum hafa haldið sínum sjónarmiðum fram þó auðvitað megi alltaf deila um að- ferðir," segir Páll. Sameiningarnefhd sveitarfé- laga í Borgarfirði, sem skipuð er fulltrúum sveitarfélaganna Borg- arbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeins- staðarhrepps, hefur bæst í hóp þeirra sem ályktað hafa um mál- ið. Hún mótmælir eindregið ákvörðun ráðherra og bendir meðal annars á að á sínum tíma hafi verið færð mjög fagleg rök fyrir vali Borgamess. „Það skýtur því skökku við þegar dómsmála- ráðherra gerir það nú að tillögu sinni, efrir samráð við sveitar- stjórnarmenn, að embættið verði á Akranesi. Það er Ijóst að ein- hver önnur rök, sem nefhdinni hefur yfirsést, ráða ákvörðun ráðherra," segir í álykmn nefhd- arinnar og krefst hún þess að dómsmálaráðherra endurskoði tillögu sína. Itarlegar er fjallað um málið á síðu 11 og m.a. rætt við sýslu- mennina í Borgarnesi og á Akra- nesi. HJ ATLANTSOLIA Dísel «Faxabraut 9. Sparisjóður Mýrasýslu hefur samið við Tryggingamiðstöðina hf. um rekstur umboða TM í Borgar- nesi og á Akranesi. Jafhframt hefur sparisjóðurinn ákveðið að opna úti- bú á Akranesi á næstu vikum og sameina það umboðsskrifstofu Tryggingamiðstöðvarinnar. Stefán Sveinbjörnsson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá Sparisjóði Mýra- sýslu sagði í samtali við Skessuhorn að staðið hafi til í nokkurn tíma að SPM opnaði útibú á Akranesi og yki þannig þjónustu sína við íbúa og fyrirtæki á svæðinu. „Þegar ljóst varð að breytingar yrðu gerðar á umboðum TM bæði á Akranesi og í Borgarnesi gengum við til við- ræðna við TM um að taka við um- boðunum enda hafa sparisjóðir víða mikið samstarf við Tryggingamið- stöðina. I Borgarnesi verður um- boð TM í aðalstöðvum sparisjóðs- ins við Digranesgötu en á Akranesi verður umboð TM og útibú SPM við Stillholt, á sama stað og um- boðsskrifstofa TM hefur verið til margra ára.“ Stefán segist búast við að samrekstur sem þessi muni leiða til hagræðingar og breiðrar þjón- ustu og segist vænta góðs samstarfs við Akurnesinga. Utibúið á Akra- nesi verður opnað á allra næstu vik- um. Eins og greint var frá í ffétt Skessuhorns fyrir nokkru var starfs- manni TM á Akranesi sagt upp störfum síðla liðins árs og var hon- um gert að hætta fyrirvaralaust. Var ástæðan sögð sú að breyta ætti skrifstofunni í umboðsskrifstofu. í kjölfarið var skrifstofunni á Akra- nesi lokað þar sem enginn starfs- maður var tiltækur til þess að hlaupa í skarðið. Samkvæmt heim- ildum Skessuhorns hefur nokkur fjöldi Akurnesingar í kjölfar lokun- ar skrifstofunnar horfið úr viðskipt- um við TM og verður því ögrandi verkefni sparisjóðsmanna að endur- heimta fyrri markaðshlutdeild í tryggingageiranum á staðnum. Að sögn Stefáns eru margir tugir Ak- urnesinga í viðskiptum við Spari- sjóð Mýrasýslu í dag þrátt fyrir að þar sé ekki útibú og segist hann vænta góðra viðbragða almennings og fyrirtækja við aukinni þjónustu sparisjóðsins við Akurnesinga. MM Hjálmur hættur Knattspymumaðurinn Hjálmur Dór Hjálmsson og Knattspyrnu- félag IA hafa gert starfslokasamn- ing vegna þrálátra meiðsla Hjálms. Vegna meiðslanna var Hjálmur frá keppni allt síðasta sumar. Samningurinn var gerður að frumkvæði leikmannsins. Meiðslin eru af þeim toga að ekki þyldr líklegt að hann verði leikfær á næstunni. Hjálmur Dór, sem er einungis 23 ára, hefur á undan- fömum áram verið talinn einn efnilegasti leikmaðiu Skagamanna og því slæmt að missa hann úr leikmannahópi félagsins. Á þeim fimm áram sem hann spilaði með Skagamönnum í efetu deild lék hann 52 leiki og skoraði í þeim tvö mörk og varð íslandsmeistari með félaginu árið 2001 og bikarmeist- ari árið 2003. Sama ár varð hann einnig deildarbikarmeistari. Auk þessara titla vann Hjámur fjölda titla með yngri flokkum félagsins. HJ Engin fíknieftii á Kvíabryggju Fangaverðir, tölvusérfræðingur og lögregla með fíkniefhahund ffamkvæmdu ítarlega leit í öllum fangaklefum á Kvíabryggju í síð- usm viku. Um nokkurt skeið hafa fangar á Kvíabryggju haldið úti spjallsíðu á netinu og var leitin framkvæmd til þess að ganga úr skugga um að fangar væra ekki nettengdir eða með farsíma innan veggja fangelsisins. Valtýr Sig- urðsson forstjóri Fangelsismála- stofhunar segir að engin fíkniefhi hafi fhndist og engir símar né önnur fjarskiptatækni. „Þrátt fyrir að okkur líld ekki allt sem á þess- ari síðu kemur fram munum við ekki hafa frekari afskipti af henni þar sem ekki er hægt að hefta mál- frelsi fanganna á meðan upplýs- ingar berast frá þeim með lög- mæmm hætti,“ segir Valtýr. Eins og áður sagði fundust eng- in fíkniefhi og segir Valtýr það mjög gleðilegar fréttir í ljósi um- ræðunnar um mikla neyslu í fang- elsrun. Hins vegar fannst lítilræði af steram hjá einum fanga og mun mál hans hljóta hefðbundna með- ferð. HJ Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaöir • Hafnarfjöröur • Húsavík • ísafjöröur • Neskaupsstaður • Njarövík • Ólafsfjöröur • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 12 - 15. jan.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.