Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Qupperneq 4

Skessuhorn - 11.01.2006, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 2006 ^kissunui. Stækkun Kvíabryggju boðin út GRUNDARFJÖRÐUR: Fram- kvæmdir við stækkun fangelsisins á Kvíabryggju verða boðnar út innan tíðar og er stefiit að því að þeim verði lokið í september á þessu ári. Að sögn Valtýs Sig- urðssonar, forstjóra Fangelsis- málastoftiunar mun fangarýmum fjðlga úr 14 í 22 við stækkunina. Stækkunin var lögð til í áætlun fr á stofnuninni sem samþykkt var í ríkisstjóm í mars á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmd- imar verði fjármagnaðar með ó- notuðum fjárheimildum ffá fýrri árum. -hj Réttindalausir ökumenn AKRANES: Lögreglan á Akra- nesi þurfri að hafa afskipti af 30 ökumönnum vegna hinna ýmsu umferðarlagabrota í liðinni viku. I þeim hópi var einn sem stöðv- aður var á 96 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 70. Sá ffamvísaði ökuskírteini á vett- vangi en reyndist þegar betur var að gáð ökuréttindalaus. Ferð annars ökumanns var stöðvuð vegna ungs aldurs. Sá var 16 ára gamall og augljóslega ekki kom- inn með ökuréttindi. Eldur kviknaði í fjórum bílhræjum, sl. mánudag, sem flutt höfðu verið á geymslusvæði. Slökkvilið var kallað út og greiðlega gekk að slökkva eldinn. Allnokkrar kvart- anir bárust lögreglu á Akranesi vegna sprenginga í vikunni sem leið. Oftast voru á ferðinni ungir piltar sem komist höfðu yfir flug- elda og kínverja. Allir virðast þó hafa sloppið heilir ffá sprenging- um áramótanna og er lögreglu ekki kunnugt um meiðsl af völd- um flugelda. -mm Útboð á stálþili GRUNDARFJÖRÐUR: Aug- lýst hefur verið effir tilboðum í stálþil fyrir Grundarfjarðarhöfh. Það er Rikiskaup sem stendur að útboðinu. Um er að ræða um 320 tonn af stáli sem fara í stálþil nýrrar bryggju í Grundarfjarðar- höfn. -hj Skrugguveður á þrettándanum STYKKISHÓLMUR: Mjög óvenjulegt veður gerði um há- degisbilið í Stykkishólmi á föstu- dag, þrettándanum. Skyndilega fóru drunur miklar að heyrast og himininn lýstist upp. Hrukku margir við, enda mjög sjaldgæft að á staðnum geri þrumuveður af þessu tagi. En það var enginn vafi á að svo var. Var mikill skruggu- gangur og eldingar sem fylgdu með. Stóð þetta veður yfir í all- langan tíma, eða í um 30-50 mínútur. Voru þrumurnar svo magnaðar að mörgum varð veru- lega bilt við, rúður titruðu og eins og hrikti í húsum. -dsh Ungmermafélagið Eldborg 90 ára Ungmennafélagið Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi varð 90 ára á síðliðnu ári og í tilefni af því bauð félagið öllum íbúum hreppsins til afrnæliskaffis að Lindartungu þann 7. janúar sl. eftir þrettándabrennuna. Reyndar var brennunni ffestað eins og víða annarsstaðar um landið sökum veðurs. Fjölmenni var við brennuna og í afmælis- kaffinu á eftir, en áætlað er að um 120 mans hafi komið í kaffið. Ungmennafélagið Elborg hefur í gegnum árin staðið ötullega að íþrótta- og félagsmálum í sveitafélag- inu og einnig hefur það stutt Laugargerðisskóla og sam- komuhúsið Lindarttmgu í tækjakaupum. ÞSK Stjóm Umf. Elborgar. Frá vinstri: Albert Guómundsson á Heggs- stöóum, Gubnundur SigurSsson í Hraunholtum og Kristján Magnússon á SnorrastóSum. Brýn þörf á breytingum á aðalskipulagi í Borgamesi Umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar telur brýna þörf á breytingum á aðalskipulagi í Borg- arnesi með tilliti til breyttrar legu Snæfellsnesvegar og þannig verði umferðaröryggi aukið við athafna- svæði Loftorku. Málið hefur verið rætt nokkuð undanfarið í kjölfar mikils vaxtar á starfsemi Loftorku sem meðal annars varð til þess að fyrirtækið er með starfsemi beggja vegna Snæfellsnesvegar. Forsvarsmenn fyrirtækisins mættu á fund nefndarinnar á dög- unum og kynntu hugmyndir sínar að breyttri legu vegarins. Að sögn Páls Brynjarssonar, bæjarstjóra voru kynntar tvær hugmyndir að færslu vegarins. Kjarninn í tillög- unum er að vegurinn færist niður fyrir lóð Loftorku og Landflutn- inga við Engjaás 1. Páll segir hug- myndirnar ekki hafa verið útfærðar nákvæmlega. „Lega þjóðvegar 54 og ýmis önnur skipulagsmál í Borg- arnesi er farin að kalla á endurskoð- un aðalskipulags enda eru liðin níu ár frá samþykkt skipulagsins. Því samþykkti bæjarráð á fundi sl. fimmtudag að fela bæjarverkffæð- ingi að afla tilboða í skipulagsvinnu í Borgarnesi,“ segir Páll. HJ Stxætó vel nýttur fyrstu dagana Pétur Fenger, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Strætó bs. segir starf- semina hafa farið vel af stað frá því fýrirtækið hóf reglubundinn akstur á Akranes á nýársdag. „Við rennd- um blint í sjóinn með þetta verkefni en enn sem komið er hefur þetta gengið vonum framar. Vagnarnir sem keyra eru heldur stærri en gengið var útffá í byrjtm en svo virðist vera að ekki veiti af. Það eru þetta 10-15 manns að fara með hverri ferð, annars er erfitt að áætla hvað verður þar sem skólarnir eru að hefjast um þessar mundir,“ segir Pétur um nýju áætlunarleið strætó uppá Akranes. Pétur neftiir einnig að verið sé að fínpússa ýmislegt; „Við erum að setja upp merkingar við stoppistöðvar vagnsins, þá aðal- lega þar sem vagninn fer útúr Akra- nesi því engar merkingar voru þar fýrir. Þetta lofar allt góðu og tel ég að þessi þjónusta sé komin til að vera, það þarf eitthvað mikið að ganga á til að svo verði ekki.“ Eins og greint var ffá í Skessuhorni í lið- inni viku er verkefnið skilgreint sem tilraunaverkefni til tveggja ára með stuðningi samgönguráðuneyt- isins og Akraneskaupstaðar en báð- ar þessar stofnanir niðurgreiða ferðirnar til að hægt sé að bjóða sama verð og annarsstaðar á leiðum sem Strætó ekur. BG Ovarðir grunnar eru miklar slysagildmr Einn grunnurinn sem nú stendur opinn og óvarinn viS ÞjóSbrautina, fullur af vatni. Nú eru nokkrir verktakar búnir að hefja framkvæmdir við blokkarbygg- ingar meðffam Þjóðbraut á Akra- nesi. Þegar ljósmyndari Skessuhoms átti þar leið um í gær var búið að taka grunna að þrernur byggingum og stóðu allir grunnamir fullir af vatni og án nokkurra girðinga til að koma í veg fýrir að t.d. gangandi fólk færi sér þar að voða. Gunnar Sigurðsson, oddviti sjálfstæðis- manna í bæjarstjóm hugðist á bæjar- stjórnarfundi í gærkvöldi leggja fram tillögu þess eftiis að byggingar- fulltrúi Akraness veiti hér með ekki graftrarleyfi fýrir nýbyggingar fjöl- býlishúsa og annarra stærri bygginga fýrr en öryggis- atriðum samkvæmt bygg- ingarreglugerð, þ.m.t. girðingar umhverfis gmnna, séu uppfyllt. Gunnar sagði í samtali við blaðamann að verktakar í bæjarfélaginu standi afar misvel að verki við ffágang byggingarlóða áður en ffamkvæmdir hæfust. Sumir þeirra hefðu öll öryggisatriði í stakasta lagi meðan aðrir sniðgengju öryggis- reglur með öllu og við slíkt væri ekki hægt að una. „Sambærilegt hættuá- stand og það sem nú er við Þjóð- brautina heftir áður komið upp og það er kominn tími til að fastar verði tekið á þessum málum,“ sagði Gunnar. MM Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi Undirbúningur er hafinn að byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar, fýrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, en fýrirhugað er að hún rísi á Hell- issandi. Akveðið hefur verið að efna til opinnar samkeppni um hönnun hússins og hélt dóm- neftidin sinn fýrsta fund þann 6. janúar síðastliðinn. Aætlað er að úrslit keppninnar verði kunn í maí. Húsið verður staðsett á fallegum stað við þjóðveginn, við hlið Sjó- mannagarðsins, með útsýni til Jök- ulsins og út á haf. I húsinu er m.a. gert ráð fýrir gestastofu, upplýs- ingaþjónustu, veitingasölu og vinnuaðstöðu fýrir starfsfólk þjóð- garðsins. MM I dómnefndinni sitja taliS frá vinstri: Baldur Ó. Svavarsson arkitekt, Kristinn Jónasson bcejarstjóri, Þórarinn Þórarinsson arkitekt sem er trúnaöarmaöur nefndarinnar, Stefán Benediktsson frá Umhverfisstofnun en hann er formaSur nefndarinnar, Elín G. Gunn- laugsdóttir arkitekt og GuSbjörg Gunnarsdóttir jjóSgarSsvörður. Ritari nefndarinnar verdur Guörún Lára Pálmadóttir sem var nýlega ráöin sérfneöingur viö jjóðgarðinn. Hjördís hætt AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur tilnefnt Pétur Svanbergs- son sem formann tómstunda- og forvarnarneftidar Akraness. Jafnframt hefur Geir Guð- jónssson verið tilnefndur sem varamaður Péturs í neftidinni. Pétur tekur við formennsku af Hjördísi Hjartardóttur sem flutt hefur búferlum tímabund- ið til Færeyja. Hún var í fjórða sæti Akraneslistans við síðustu bæjarstjórnarkosningar og hef- ur því verið fýrsti varabæjarfull- trúi listans. Það sæti tekur nú Björn Guðmundsson. -hj íbúafundur framundan SNÆFELLSBÆR: Bæjar- stjórn Snæfellsbæjar samþykkti á dögunum að boða til íbúa- fundar. Hann verður haldinn á næstunni samhliða kynningu á fjárhagsáætlun ársins. Það voru bæjarfulltrúar J-lista þeir Gunnar Orn Gunnarsson, Kristján Þórðarson og Pétur Jóhannsson sem lögðu fram til- lögu um fundinn. I henni segir að á fundinum verði leitað eftir hugmyndum og tillögum frá íbúum „hvað varðar mikilvæg- ustu málefni. Gæti það verið hið þarfasta hjálpartæki fýrir komandi framboð í bæjar- stjórnarkosningum í vor,“ sagði orðrétt í tillögunni. Tillagan var samþykkt samhljóða. -hj Þrír skólar í Gettur betur VESTURLAND: Hin sívin- sæla spurningakeppni fram- haldsskólanna, Gettur betur, hefst í næstu viku á Rás 2. Dregið hefur verið í fýrstu um- ferð keppninnar og taka að þessu sinni þrír skólar af Vest- urlandi þátt. Starfsmennta- brautin á Hvanneyri mætir í fýrstu umferð liði Menntaskól- ans við Sund sem ávallt hefur náð langt í keppninni. Þessi lið mætast þann 13. janúar. Lið Fjölbrautaskóla Snæfellinga mætir liði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þann 17. janúar og þann 19. janúar mæt- ast lið Fjölbrautaskóla Vestur- lands og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. -hj Bætt aðstaða til raungrebia- kennslu AKRANES: Tvær nýjar kennslustofur, sem sérstaklega eru útbúnar til kennslu í efna- fræði og eðlisfræði, voru teknar í notkun á dögunum í Fjöl- brautaskóla Vesmrlands. Þá er einnig unnið að frágangi kennslustofa sem ætlaðar eru til kennslu í líffræði. Að því er kemur fram á heimasíðu skól- ans mun aðstaða til kennslu og náms í þessum greinum batna mjög við þessar breytingar. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjamarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mibvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á ab panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þribjudögum. Blabib er gefib út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverb er 1000 krónur meb vsk. á mánubi en krónur 900 sé greitt meb greibslukorti. Verb í lausasölu er 300 kr. SkRIFSTOfUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi:jSkessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og átm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blabamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Gubrún Björk Fribriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.