Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Page 6

Skessuhorn - 11.01.2006, Page 6
6 aa£99Unu>. MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 Gestir hlýSa ájýrirlestur Kristínar Óladóttur. Vestlendingar hálfii öðru tonni léttari Prógram íslenskra vigtarráðgjafa skilar góðum árangri Janúar er tími heita og mark- miða, þá oft tengdum heilsu og heilsuátaki. Margir setja sér það markmið að ná af sér þeim kílóuin sem jólasteikin skildi eftir á skrokknum og oft gott bemr en það. Flestum er það ljóst að það sem við borðum endurspeglast í líkama okkar og líðan og er því rétt matarræði því lykilatriði ef vel skal takast. En fyrsm skrefin em oft erf- ið. Hvað skal maður borða og hvað ekki? Hversu mikið af þessu og hversu mikið af hinu? Blaðamaður Skessuhorns heyrði af hópi fólks á Vesturlandi sem fylgir matar- prógrammi íslensku vigtarráðgjaf- anna (þekkt sem Danski kúrinn), sem hafa undir leiðsögn þeirra náð hreint ótrúlegum árangri sem skilar sér í léttari og hraustari líkama. Islensku vigtarráðgjafarnir er hópur sérfræðinga með faglega reynslu sem aðstoðar fólk við að öðlast breyttan lífsstíl hvað varðar mat og matarvenjur. Kristín Oladóttir er upphafsmaður prógrammsins á íslandi. Eftir að hafa tekið þátt í því sjálf með góðri raun ákvað hún að taka það með sér til íslands árið 2002 ffá Danmörku þar sem það var þróað og verið notað í 25 ár. Þónokkuð margir einstaklingar hafa takið þátt í prógrammi ráðgjafanna á Vestur- landi með góðri raun og hefur Skessuhom áður flutt fféttir af góð- um árangri þeirra sem tekið hafa sér tak með aðstoð danska kúrsins og ráðgjafa á hans vegum. Hlutföllum breytt Prógrammið felst í því að breyta matarvenjum einstaklingsins, þá hlutföllum þess sem borðað er án þess að sleppa úr einni einustu mál- tíð eða borða minna. Borða á allan almennan mat, en taka út sykur og auka hlutfall grænmetis og ávaxta. Rúmlega 19 tonn af fitu hrundu af þátttakendum um land allt á síðasta ári og þar af eitt og hálft tonn af Vestlendingum. Prógrammið er nú á fullum gangi í Jónsbúð á Akra- nesi. Þar hitta þátttakendur ráð- gjafa sinn, aðstoðarfólk og aðra þátttakendur í annarri hverri viku. Þar er stigið á vigt og árangur skráður, hlýtt á ffæðsluefni og mál- in rædd og þannig móralskur stuðningur veittur á báða bóga. Námskeið var haldið í Borgames og í Gmndarfirði í haust og lét ár- angurinn þar síður en svo á sér standa. Betri heilsa í hraustari líkama Sigrún Sólmundardóttir, hús- ffeyja í Belgsholti í Melasveit er ein þátttakanda sem hefur náð góðum árangri með aðstoð prógrammsins og nýtir hún nú reynslu sína til að- stoðar öðram. Blaðamaður leit við hjá Sigrúnu og vildi svo til að hún var nýkomin úr verslunarferð og, viti menn, þar stóðu fullir pokar af gimilegum og hollum mat á eld- húsborðinu hjá henni. „Aður borð- aði ég lítdð af grænmeti en það er mér ómissandi í dag. Allt snýst þetta um að tileinka sér nýjan lífs- stíl,“ segir Sigrún. En það er einmitt þessi nýi lífsstíll sem ekki er svo auðvelt að venja sig á eftir svo og svo mörg ár í ákveðnum venjum. „Frá fyrsta degi var slagorð mitt, - ég ætla, ég vil, ég get. Eg hef aldrei litið á prógrammið sem tímabund- inn kúr, heldur sem tækifæri til breytts lífsstíls. Líkamsástand mitt breyttist ffá því að vera vel yfir offitumörkum, heilsan á hraðri nið- urleið, með of háan blóðþrýsting til 20 ára og á lyfjum við því, með of hátt kólesteról og á lyfjum við því líka og svo með gigt ofaná allt sam- an, í það að vera 25 kílóum léttari og 10 fatastærðum minni eftir 14 mánuði í prógramminu, með eðli- legan blóðþrýsting og kólesteról úr 9 í 3, gigtin farin og er alfarið lyfja- laus. í dag er ég mjög ffísk og með meira þol, meiri orku og ég er meira að segja farin að fara í leik- fimi sem ég gat ekki áður. Þetta er bara allt annað líf,“ segir Sigrún um árangur sinn. Nú notar Sigrún reynslu sína til aðstoðar þeim sem vilja gera slíka breytingu á eigin lífi. „Mér finnst gaman að geta hjálpað öðrum með sömu vandamál og miðla til þeirra ffá minni eigin reynslu. Stuðningur er afar mikil- vægur og er svo sannarlega til stað- ar fyrir alla þá sem vilja. Einnig era margir einstaklingar sem skrifa á heimsíður og er mörgum mikill smðningur í því; að finna sig í hópi fólks sem vinnur að sama verkefni og þau, að öðlast betri heilsu í sprækari líkama." BG Samið um 18 biðlista- aðgerðir á Akranesi Jón Kristjánsson, heilbrigðis- málaráðherra hefur gert samning við Heilbrigðisstofnunina á Akra- nesi (SHA) um 18 biðlistaaðgerðir á árinu 2006. Er það hluti af samn- ingi við fjórar heilbrigðisstofnanir um 600 aðgerðir. Samningurinn er gerður til að stytta biðtíma sjúk- linga sem bíða eftir tilteknum læknisaðgerðum og stofnanirnar sem í hlut eiga era Landspítali - háskólasjúkrahús, Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, St. Jósefs- spítali í Hafnarfirði og Heilbrigð- isstofnunin á Akranesi. Guðjón Brjánsson fram- kvæmdastjóri SHA segir þennan samning ekki skipta neinum sköp- um í starfsemi stofnunarinnar því í árangurstjórnunarsamningi við stofnunina séu 80 liðskiptaaðerðir lagðar til grundvallar. „Undanfar- in tvö ár höfum við hins vegar gert ríflega 120 aðgerðir á ári. Við höfðum kynnt það í heilbrigðis- ráðuneytinu að vegna hagræðing- arkröfu 2005 sem óbreytt stendur, þá myndum við draga úr þessari þjónustu á þessu ári vegna rekstr- arhalla síðasta árs þar sem í reynd ekkert dró úr þessum aðgerðum á því ári. Við ítrekuðum það oft- sinnis að við þyrftum aukalega peninga ef við ættum að halda rekstri í jafnvægi og halda jafn- framt dampi í liðskiptaaðgerðum. Niðurstaðan er því þessi að fjölga þessum aðgérðum um 18,“ segir Guðjón. HJ Vilhjálmur Pétursson lætur af störfum á Kvíabryggju Vilhjálmur Pétursson, forstöðu- maður fangelsisins á Kvíabryggju hefur sagt starfi sínu lausu og læt- ur af störfum 1. apríl. Þá lætur einnig Rósa Geirmundsdóttir, eig- inkona Vilhjálms, af störfum sem matráðskona fangelsisins. Það verða tímamót í sögu Kvíabryggju þegar þau hjón láta af störfum. Vilhjálmur hóf störf þar sem fangavörður árið 1971 og hefur verið forstöðumaður síðan árið 1981. Rósa hefur verið starfsmað- ur síðan 1980. Valtýr Sigurðsson forstjóri Fangelsismálastofnunar segir þau hjón hafa starfað af mik- illi mannúð og umhyggju og þau hafi í raun sinnt störfum sínum langt út fyrir það sem skyldur þeirra kveða á um. Hann segir að starf forstöðu- manns verði auglýst laust á næst- unni en ekki verði neinar breyt- ingar gerðar á því. Þau hjón hafa verið búsett á Kvíabryggju en við starfslok þeirra verður húsnæðið tekið undir aðra starfsemi fangels- isins. HJ PISTILL GISLA Fœreysk jyrirmynd Síðustu daga hef ég dvalist í Færeyjum mér til mikillar ánægju enda Færeyingar höfð- ingjar heim að sækja eins og þeir vita sem reynt hafa. Þar skorti heldur ekki viðurgern- inginn, bæði vott og þurrt veitt ótæpilega. Þar höfðaði sérstaklega til mín svokallaður „djurasnafsur“ (í lausl. þýð- ingu dyradrykkur) sem er rót- sterkt ákavíti framreitt í lambshorni af mislitu. Voru heimamenn ósparir á sinn „djurasnafs“ og komst maður vart hjá því að drekka hann í hverjum einustu dyrum sem gengið var í gegnum. Þá kunni ég einnig vel að meta skerpikjötið og grind- hvalaketið þrátt fyrir viðvaran- ir frá mörgum þeirra sem til þóttust þekkja. Þótti mér það mun nærri því að vera manna- matur en flatbökur þær sem innfluttir flatbökumeistarar eru að reyna að venja eyja- skeggja á. Það er iðulega sagt að Fær- eyingar séu einhverjum ára- tugum á eftir okkur Islending- um og er það frekar sagt í niðrandi merkingu. Það sem átt er við að Færeyingar hafa verið seinni til en við að til- einka sér ýmsa tækni og siði. Vissulega má það til sannsveg- ar færa að það sé að vera á eft- ir. Hinsvegar myndi ég um leið orða það þannig að Fær- eyingar væru okkur fremri einmitt vegna þess að þeir eru á eftir eins og það er orðað. Færeyingar hafa ekki verið að flýta sér að taka upp erlenda siði og þar með ósiði. Þeir hafa haldið nokkuð fast í sína menningu og um leið sveita- mennsku sem ég myndi telja kost miklu ffemur en löst. Þeir dansa sinn hringdans af mikilli innlifun og láta sig ekki muna um að kveða 300 erindi hvíld- arlaust. Þeir drepa sinn hval og éta af honum spikið, stunda kappróður af sama kappi og við stundum golf og álíka kerl- ingasport. Þeir rækta sín yfir- skegg og halda við gömlum og glæsilegum byggingum. Það sem síðan er hvað mest um vert er að þeir eru ekki það uppteknir af því að gleypa heiminn að þeir gefa sér tíma til að taka til hjá sér. Hvort sem farið er um sveit- ir eða bæi, hvar mörkin eru reyndar óljós, er snyrti- mennskunni viðbrugðið. Rúlluplast á gaddavírsgirðing- um eða tómar bjórdósir og sælgætisbréf á götum eru sjaldgæf sjón í Færeyjum. Fær- eyingar eru nýtnir og henda hlutum ekki fyrr en þeir eru orðnir ónýtir og þá henda þeir þeim ekki á næsta götuhorn eða út á hlað. Færeyingar eru á undan okkur að því leyti að þeir eru ekki að rembast við að vera stórþjóð eða leika eitthvert hlutverk sem þeir passa ekki í. Þeir eru sveitamenn og full- komlega sáttir við það. Raunar stoltir af því enda hafa þeir sennilega uppgötvað það sem við Islendingar erum að forð- ast að skilja, að sveitamennska er auðlind! Þetta er Gísli Einarsson sem skrifarfrá Færeyjum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.