Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Qupperneq 7

Skessuhorn - 11.01.2006, Qupperneq 7
 MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 2006 7 Gamla smurstöSin við Suðurgötu. Vilja kaupa gömlu smurstöðina Bæjarráð Akraness hafhaði ósk Planka ehf. og Byggingafélagsins Trausts um kaup á gömlu smur- stöðinni við Suðurgötu. Ráðið fól hins vegar bæjarstjóra að ræða við fyrirtækin um málið. I bréfi sem fyrirtækin sendu bæj- arráði kemur fram að þau vilji kaupa smurstöðina, ásamt öllum tilheyrandi byggingum og lóðar- réttindum. Fyrirhugað var að rífa húsin og deiliskipuleggja lóðina „í náinni samvinnu við skipulagsyfir- völd bæjarins,“ eins og segir orð- rétt í bréfinu. Þá segir að hentugt þyki að koma fyrir fjölbýlishúsi sem myndi styrkja íbúabyggð í miðbæ kaupstaðarins. Fyrirtækin hafa að undanförnu komið að byggingu nokkurra húsa á Akranesi og sem dæmi má nefna að Traust ehf. er nú að reisa þríbýlishús að Suðurgötu 107 á Akranesi. HJ S.Ó. húsbyggingar bjóða lægst í bílgeymslu S.O. húsbyggingar sf. áttu lægsta tilboð í byggingu bílgeymslu við Heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Alútboð fór ffam á dögunum og bárust þrjú tilboð. Eftir að tilboðin voru opnuð fór fram tæknilegt mat á þeim og að því loknu var tilboð S.O. húsbygginga hagstæðast. Verðtilboð fyrirtækisins var að upphæð rúmar 16 milljónir króna. Tilboð Nýverks ehf. var að upphæð rúmar 18,6 milljónir króna og til- boð Loftorku Borgarnesi ehf. var að upphæð tæpar 22,5 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Fram- kvæmdasýslu ríkisins var að upp- hæð tæpar 16,2 milljónir króna. Þegar tæknilegt mat hafði farið ffam minnkaði munur bjóðenda nokkuð. Þá var verðtilboð S.O. húsbygginga metið tæpar 15,7 milljónir, tilboð Nýverks ehf. að upphæð rúmar 16,9 milljónir og Loftorku Borgarnesi ehf. rúmar 21,2 milljónir. HJ • • • Spuming vikuimar Strengdir þú áramótaheit? Pála S. Geirsdóttir Nei, en e'g gerði það ífyrra ogþað var í eina skiptið sem e'g hef staðið við a'ra- mótaheit. Þurðiður Óskarsdóttir Jú, gerði það og að sjálfsögðu er mark- miðið að standa við það. Hrafnhildur Hannibalsdóttir Nei, ífyrsta sinn núna sem éggerði það ekki, alvegfrá því að ég bytjaði á þvífyrir mörgum árum. Valey Björk Guðjónsdóttir Nei, ífyrsta skipti sem éggeri það ekki. Valdimar Hjaltason Nei, hef aldrei strengt slíkt heit. Veggjald innheimt með álagi Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, innheimtir veggjald með 3.000 króna álagi hjá þeim sem aka um áskriftarhlið við gjaldskýlið norðan fjarðar án þess að hafa gildan viðskiptasamning við Spöl. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi félagsins 9. desember 2005 og gildir frá og með 1. janúar 2006. Nokkur brögð eru að því að ökumenn fari um gjaldhliðið á merktum akreinum áskrifenda án þess að hafa veglykil í bílum sínum og tilheyrandi samning um ferðir. Sömuleiðis eru brögð að því að veglyklar séu lausir í bílum og menn flytji þá jafnvel með sér milli bíla. Slíkt er brot á samningi enda skuldbinda áskrifendur sig þar til að festa veglykilinn innan á framrúðu tiltekins ökutækis. Með breytingum á eftirlitskerfi ganganna var gert mögulegt að skrá upplýsingar um bíla sem hér um ræðir og á grundvelli þeirra upplýsinga verður nú innheimt veggjald með álagi hjá forráðamönnum viðkomandi bíla. Rétt er svo að vekja athygli á að Ökumenn án samnings við Spöl aka gegn rauðu Ijósi í gjaldhliðinu. Þessi Ijós hafa stöðu venjulegra umferðarljósa samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra nr. 289/1995, sbr. breytingu á þeirri reglugerð nr. 458/2001. Þeir sem brjóta af sér á þennan hátt geta því búist við að fá fjársekt og refsipunkta í ökuferliskrá sína, auk veggjalds með innheimtuálagi. Á heimasíðu Spalar, spolur.is. er meðal annars að finna gjaldskrá Hvalfjarðarganga og upplýsingar um hvar unnt er að skrá sig fyrir ferðum um göngin og um réttindi og skyldur áskrifenda. Meðal annars ber seljanda bifreiðar með veglykil að taka lykilinn úr bílnum við eigendaskiptin eða tilkynna Speli um nýjan eiganda bíls/veglykils. Nýr eigandi verður síðan að gera áskriftarsamning við Spöl. Trésmiöjan AKUR ehf. : % Smiðjuvöilum 9 * 300 Akranes * Sími: 430 8600 * Fax: 430 6601 i | Netfang: akur@akur.is • Veffang: www.akur.is v _____________________ iiesiitiujanhrui uyyyn tvu (jamus viu ouuun i*m-i‘*u og 16a-16b á Hvanneyri, Húsin afhendast fullbúín að utan með grófjafnaðri íóð og óeinangruð að innan. Áætlað er að afhenda húsin í maí 2006. Ailar nánarí uppiýsingar og sölubækiing er hægt aö fá á skrifstofu Akurs. ÍBÚAPING - Framtíð í þínum höndum - Hvalfjarðarstrandarhreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur munu standa fyrir íbúaþingi, laugardaginn 14. janúar nk. að félagsheimilinu Hlöðum. Húsið opnað kl. 10.45 en formleg dagskrá hefst kl. 11.00. Allir íbúar hreppanna sunnan Skarðsheiðar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu nýs sveitarfélags. Undirbúningsnefndin

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.