Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Síða 10

Skessuhorn - 11.01.2006, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 ^AtSSUIIUb. Héraðsskjalasafn Borgarjjarðar Mikilvæg þjónustustojnun Borgfirðinga Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar var stofnsett árið 1960 og var þeg- ar hafist handa við söfnun á skjöl- um og gögnum sem tilheyra hér- aðsskjalasöfnum samkvæmt lögum um héraðsskjalasöfn frá árinu 1947. Söfnun í upphafi annaðist Ari Gíslason, kennari, fræðimaður og starfsmaður safnsins. Hann vann þar ómetanlegt starf. A þeim tíma var safninu búinn staður ásamt Byggðasafni Borgarfjarðar í húsnæði Kaupfélags Borgfirðinga, hafði þá samtals til umráða 22 fm. Arið 1970 voru söfnin tvö flutt ásamt Héraðsbókasafni Borgar- fjarðar á eina hæð að Borgarbraut 61 í Borgarnesi og fékk starfsemin í upphafi nafnið Safnastofnun Borgarfjarðar sem var síðar breytt í Safnahús Borgarfjarðar og felur nú í sér starfsemi hinna fimm safna Borgarfjarðar. Þröngt var um söfn- in á Borgarbrautinni og sífellt voru uppi áform um betri aðstæður, jafnvel að nýtt safnahús yrði byggt Kom ýmis staðsetning í Borgarnesi til álita í því tilliti. Árið 1988 flutti öll starfsemi safnanna í núverandi húsnæði að Bjarnarbraut 4-6. Sér- stök fimm manna stjórn var yfir skjalasafnið allt til ársins 1979. Fyrsti forstöðumaður Safnastofn- unar Borgarfjarðar var Bjarni Bachmann. Er ekki á neinn hallað þótt minnst sé sérstaklega á störf hans fyrir skjalasafnið, svo og störf Ingimundar Gíslasonar, fyrrum formanns stjórnar safnsins. Þessir menn lyftu, ásamt fleirum, grettistaki í söfnun skjala og mynda úr Borgarfirði, skráningu á þeim, flokkun og uppröðun á fyrstu árum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar. Margir hafa sýnt frumkvæði að því að gefa safninu merk skjöl, en einnig ber að minna á skilaskyldu skv lögum og nú vísar undirrituð í grein sem birtist í 49. tbl. Skessu- horns 2005 um skilaskyldu á skjöl- um til héraðsskjalasafna. Eru þeir sem málið varðar eindregið hvattir til að gæta þess að skjöl sem skylt er að varðveita berist sem allra fyrst, og jafnóðum, til safnsins. Skjöl og ljósmyndir eru ómetan- legar heimildir um sögu Borgar- fjarðar og nágrennis, sem og þróun menningar á svæðinu. Skráð skjöl á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar eru nú 10.028 talsins og skráðar myndir 5.523. Er þá ó- talið mikið magn sem bíður ná- kvæmari skráningar. Allt frá stofn- un Héraðsskjalasafns Borgarfjarð- ar hefur fjöldi fyrirspurna til safns- ins verið um 150-200 á ári, jafn fjölbreyttar og þær eru margar. Fólk leitar mynda af ýmsu tagi fyr- ir margvísleg tilefni, t.d. fyrir stórafmæli eða aðra merkisdaga til að hafa til sýnis, vegna útgáfu bóka, eða af enn öðrum ástæðum. Margir koma til að leita upprana síns, skoða fundargerðabækur, veiðibækur eða fá einkunnir sínar úr skólum sem hafa verið lagðir niður síðan námi þeirra lauk. Einnig er tíðum spurt um teikn- ingar af húsum, landamerki, sókn- arlýsingar, um störf og dagbækur einstaklinga. Hin merka verslun- arsaga Borgarness er efni í fjölda erinda á skjalasafnið. Glöggir grúskarar rýna í merkar heimildir safnsins svo dögum skiptir fyrir heimildaritgerðir, fyrirlestra eða bækur. Slíkt safn sem er Héraðs- skjalasafn Borgarfjarðar eykur hróður hvers héraðs og styrkir sjálfsvitund íbúanna. Jóhanna Skúladóttir héraðsskjalavörður heldur utan um starfsemina af stakri alúð, flokkar og skráir, veitir skjölum og myndum viðtöku og aðstoðar fólk við upplýsinga- og heimildaleit. Um allar nánari upp- lýsingar er hægt að leita til hennar. Asa S. Harðardóttir, forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar, Borgamesi. Mennimir á myndinni eru óþekktir. Getur einhver gefið upplýsingar um þá? Skar áfjöl, svo mól ég mjöl - meitli ogþjöl ég beitti l/tuiAht’aút} Gleðilegt ár lesendur mínir! Ekki virðist skaparinn alveg vera orðinn vatns- laus ennþá þó nokkuð hafi kom- ið af himnum ofan að undanförnu. Fyrir margt löngu varð lítilli stúlku það fyrir í rign- ingatíð, seinni part vetrar eða að vorlagi, að líta til himins andvarpandi og segja í vorkunnartón: „Aumingja Guð, nú er hún komin með blöðrabólgu.“ Þannig er það nú samt að oft er þessum svokölluðu gæðum mannanna nokkuð misskipt og ýmsir aðrir heimshlut- ar gætu haft fulla þörf fyrir vatn meðan okkur finnst við stundum hafa óþarflega mikið af því eða þá að rigningin er rangt tímasett. Eftir rigningatíð fyrir allnokkram áram komu nokkrir veðurfræðingar ffam, að mig minnir í áramótaskaupinu, og kváðu við raust: Nú er úti veöur vott, varia tii þaö batni, en alllavega er þaö gott aö eiga nóg af vatni. Mörgum finnst þessi misskipting gæð- anna ná einnig til peninganna og vissulega virðast sumir fá í hendurnar meira fjármagn fyrir að vinna ekki en aðrir sem þó puða myrkranna á milli. Þar með era þeir komn- ir í þá stöðu að þurfa að hafa stöðugar áhyggjur af því að tapa þessum auði eða þá að hann ávaxtist ekki sem skyldi og má þá spyrja sig hvort þeim hefði ekki komið að álíka miklu gagni loforð um rýmri gröf eða frátekið pláss á himnum. Líka er hægt að velta því fyrir sér að verðgildi hluta er falið í því sem hægt er að kaupa fyrir þá og því meira sem einhver á, því minna er eftir sem hann getur keypt. Sá sem á allt getur ekkert keypt og á þessvegna ekkert. Sumir gætu jafnvel tekið sér í munn orð Emelíu Sigurð- ardóttur: Herra láttu í himninum hæfan staö mér gera. Eg vil ekki innanum alla þurfa aö vera. Fyrir allmörgum áram vildi svo til við jarðarför umkomulítils manns norður í landi að þegar áttí að fara að láta kistuna síga reyndist gröfin of stutt og varð nokkur töf meðan bætt var úr. Þetta varð viðstaddri konu tilefni eftírfarandi: Sólarlöndin blika björt bak viö dauöahöfin. Þar mun ekki þröngt um Hjört þó aö stutt sé gröfin. Sumir telja að þær hremmingar sem við göngum í gegnum á lífsleiðinni komi okkur til góða hinumegin hvað sem er nú hæft í því. Allavega komumst við að því þegar þar að kemur en Kristinn Pétursson hefur greinilega verið á þeirri skoðun: Svalt er á suöurodda, sjórinn er lagöur ís. En óreyndur enginn veröur aö engli í paradís. Eitt af því jákvæða við að komast yfir miðjan aldur er að þá verður auðveldara að ljúga upp frægðarsögum af sjálfum sér á manndómsáram því þeim fækkar sem geta rekið þær ofaní mann. Gunnlaugur P. Sig- urbjörnsson orti nokkrar vísur sem hann kallaði „Karlagrobb“ og væri kannske við hæfi að skyggnast aðeins í þau fræði: Ungur hló og sótti sjó, seyöi dró aö boröi. Teygöi jó um mel og mó, methögg sló í oröi. Skjótur rann ef skíöi fann, skautaöi hrannarþakiö, yngismanna eöliö brann ástum svanna vakiö. Skar á fjöl, svo mól ég mjöl, meitli og þjöl ég beitti. Reit á skjöl og kleif á kjöl, kjafti sölin veitti. Gœtti fjár er frost og snjár foldarháriö geymdi, þóttist knár um klettagjár, kararár ei dreymdi. Nú veit ég ekki hvort Gunnlaugur sendi Valdimar Benónýssyni þessar vísur beint, sem mér þykir þó líklegt eða hvort Valdi komst í þær eftir öðram leiðum en góð- kunningjar vora þeir og fljótlega sendi Valdimar til baka vísur sem hann nefndi „Karlagrobb (útþynnt)“ en rétt er að taka fram að báðir þessir bálkar eru töluvert styttir, Valdimars þó mun meir enda tölu- vert lengri: Reit ég skjöl og skreytti fjöl, skörpum þjölum beitti, fór úr dölum fram um kjöl, forráö smölum veitti. Kleif ég bjarg viö kríugarg, kœnn í þvargi nauöa. Skaut ég margan skæöan varg, skepnum barg frá dauöa. Söng ég tíöum Ijúfum lýö Ijóö í þýöum tónum. Byggöi fríöa hátt í hlíö höll í víöimónum. Nam ég fræöi forn og ný, fékk einstæöa hylli, mála - skœöum - erjum í átti ég ræöusnilli. Mér ég fleytti fram á sviö frægrar neytti snilli, sundiö þreytti selinn viö, - sást ei neitt á milli. Gekk ég víöa götur hér, gætti tíöum sauöa, þá í hríöum hlíföi mér háraprýöin rauöa. Bernskufarfann enn ég á, oröin þarf ei fleiri, líkur arfa Ólafs Pá, - en þó starfameiri. Bréfinu lýkur svo Valdimar á þessum snyrtilegu vísum enda raunar fátt annað en gott að hafa úr þeirri smiðju: Strýkur glettum blómabeö blærinn léttum höndum, lýkur spretti mínum meö mjúkum sléttuböndum Hljóöabungum Braga hjá berin ungu dafna, Ijóös - þaö - hungur hastar á hans Ormstungu nafna. jafnar þrætur síöur sá svika gætir vitna, safnar kæti, aldrei á aumum lœtur bitna. jólagestur fjarri frá fletum sest aö þínum, óskir bestu ber hann á buröarhestum sínum. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstóðum 320 Reykholt S 435 1367 og 849 2713 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.