Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 15
 MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 2006 15 Skagamótið færist fram um hálfan mánuð Frá Skagamótinu sumaríð 2004. Hér eru heima- menn í kröppum dansi við Víkinga. Ljósm: HS Unglingaráð Knatt- spyrnufélags ÍA hefur ákveðið að Skagamótið verði haldið dagana 23.- 25. júní í sumar. Þetta mikla knattspyrnumót yngri knattspyrnumanna hefur dregið til sín fjöl- marga gesti til bæjarins. Undanfarin ár hefur mót- ið farið fram aðra helgina í júlí eða á sama tíma og írskir dagar eru haldnir á Akranesi. Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um þá tímasetningu og kom sú umræða meðal annars fram í skýrslu sem undir- búningshópur vegna írskra daga sendi bæjar- ráði Akraness fyrir skömmu og sagt var ítar- lega frá í Skessuhorni. Það voru hins vegar tímasetn- ingar annarra móta yngri flokka sem urðu til þess að unglingaráð ÍA tók ákvörðun um hina nýju tímasetningu. Mótið er að þessu sinni haldið með dyggum stuðn- ingi Coke og KB banka. HJ Gallerý Ozone opnuð formlega Stoltir eigmdur verslunarinnar Gallerý Ozone við Kirkjubraut ú Akranesi buðu starfs- fo'lki, velunnurum, iSnaðarmönnum og öllum þeim sem d einhvem hútt hafa lagt hönd á plóg við opnun nýju verslunarinnar íformlega opnunarveislu fýrir skömmu. He'r eru þau Hugi og Elsa í nýju búðinni. Kátt varyfir Magnúsi, Jóhönnu og Rósu. Atvinna Samkaup úrval Borgarnesi Lagerumsjón Vinnutimi 08:00 -18:00. Starfið felst í að sjá um vörumóttöku og skipulag á lager, vöruskil og pantanir. Pantanir og sala á stærri raftækjum sem og móttaka raftækja til viðgerða. Önnur tilfallandi störf í verslun . Áfyliingar og pantanir Vinnutími 8:00 -16:00 Starfið felst í almennum verslunarstörfu. Afyllingar, pantanir og þrif. Viðkomandi þarf að geta leyst af við afgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum eða í síma 430-5530. Pálmi íþróttamaður Akraness 2005 Pálmi Haraldsson knattspyrnu- maður var valinn íþróttamaður Akraness árið 2005. í öðru sæti varð Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sundkona en hún hefur oft hamp- að titlinum. Hólmsteinn Valdimars- son frá Badmintonfélagi Akraness hlaut þriðja sæti. Allir þeir sem til- nefndir voru fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í sinni íþrótta- grein á líðandi ári. Þá var Karatefé- lag Akraness valið félag ársins fyr- ir öflugt og gott félagsstarf. íþróttabandalag Akraness stendur fyrir kjöri íþróttamanns ársins. Það fer þannig fram að að- ildarfélög ÍA tilnefna hvert um sig íþróttamann ársins í sínu félagi. Síðan fá tíu manns það verkefni að gefa þremur af þessum einstak- Allir fuiitrúar íþróttaféiaganna sem hluti tilnefningar. Páimi Haraldsson íþróttamaður Akraness 2005. lingum stig. Þessir tíu einstakling- ar eru úr framkvæmdastjórn ÍA, bæjarstjóri Akraness, full- trúi frá KB banka, sem er helsti styrktaraðili ÍA, sviðsstjóri fræðslu-, tóm- stunda- og íþróttasviðs, rekstrarstjóri íþróttamann- virkja og einn úr fjölskyldu Helga Daníelssonar en Helgi gaf á sínum tíma verðlaunabikarinn, sem fylgir þessari nafnbót. Peir sem nú voru tilnefndir eru: Badmintonmaður ársins 2005: Hólmsteinn Valdimars- son Fimleikamaður ársins 2005: Ester María Ólafsdóttir Hestaíþróttamaður ársins 2005: Guðbjartur Þór Stefánsson íþróttamaður Þjóts 2005: Lindberg Már Scott Kylfingur ársins 2005: Stefán Orri Ólafsson Karatemaður ársins 2005: Guðrún Birna Ásgeirsdóttir Keilumaður ársins 2005: Magnús Sigurjón Guðmundsson Knattspyrnukona ársins 2005: Helga Sjöfn Jóhannesdóttir Knattspyrnumaður ársins 2005: Pálmi Haraldsson Körfuknattleiksmaður ársins 2005: Vésteinn Sveinsson Sundmaður ársins 2005: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir Blakfélagið Bresi, Skotfélag Akraness og Ungmennafélagið Skipaskagi tilnefna ekki neinn í kjörið að þessu sinni. HJ/BG Trimm 2006 Ný 8 vikna ÍA Trímm námskeið hefjast 16. janúar og standa til 10. mars. Skráning fer fram í íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum (ekki í síma). Nánari upplýsingar í síma 8951278 eða á www.ia.is t Námskeið 4 skipti í viku kr. 12.700 Námskeið 3 skipti í viku kr. 9.900 Námskeið 2 skipti í viku kr. 6.700 Námskeið 1 skipti í viku kr. 3.500 10 Tíma kort ÍA Trimm & Þrek kr. 4.800 Stakur tími kr. 800 Mælingar: Þeir sem áhuga hafa á vigtun, fitu- og ummálsmælingum geta sett sig í samband við Ellu í síma 867 4310. Hver mæling tekur um 15 mín. og kostar kr. 500 • Innifalið í námskeiðsgjaldi er sund og gufa eftir trimmtímana. • Fyllist námskeið þá ganga þeir fyrir sem skrá sig oftar í viku. • Lágmarksfjöldi skráðra þátttakenda í tíma er 10 að öðrum kosti kann tímanum að vera aflýst. • Námskeiðin fást ekki endurgreidd nema um veikindi sé að ræða og þá gegn framvísun vottorðs. | íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum Stundaskrá 2006 Morguntrimm 06:30 - 07:30 Elsa og Hugi Morguntrimm 06:30 - 07:30 EisaogHugi Morguntrimm 06:30 - 07:30 Elsa og Hugi BodyPump 11:55 - 13:00 Matti BodyPump 11:55-13:00 Matti Styrirur og þol 17:30- 18:30 HelgaMaría BodyPump 17:30 - 18:45 Matti Styrkurogþol 17:30 -18:30 Helga Maria BodyPump 17:30-18:45 Matti Spinning 17:30 -18:30 Matti Spinning 18:30-19:30 Helga María Spinning 17:30 - 18:30 HelgaMaría _ Pallabrennsla 18:30 - 19:30 Halldóra Pallabrennsla 18:30 - 19:45 Halldóra Þrekhringur 18:45-19:45 Ýmslr þjálfarar Fjölþjátfun 19:30-20:30 Ella Karlapúl /ala Slökkviliðiö 20:00 - 21:00 Ellý Fjölþjálfun 19:30-20:30 Ella Kariapúl /ala Slökkviiiðið 20:00-21:00 Ellý Laugardagur 10:00-11:15 BodyPump - Matti Vegna anna getur Dean Martin því miður ekki verið með áður auglýsta BodyCombat tíma. Hreyfing fyrír líkama og sál!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.