Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 22.02.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 SgRSSgiHfflSSl Hátækni víkingaskip í smíðum hjá Sldpavík Sólarpönnsur í Snæfellsbæ Það var mikill hugnr í Kvenfélagskonum í Olafsvík sl. þriðjudag erþœr komu til að baka pönnukökur t tiléfni sólarkomu í Ólafsvík. Þetta er árlegur og skemmtilegur siður hjá þeim kvenfélagskonum ogjafnframt góð fjáröflun. Alls voru bakaðar á þriðja þúsund pönnsur sem bœði var sett á sulta og rjómi og einnig voru þœr sykraðar. Þeim var síðan ekið til viðskiptavina í Sn<efellsb<e sem voru að vonum mjög ánægðir enda uppskriftin fullkomin. PSJ um að þetta verði merkilegasta skip í heimi,“ segir Sigurjón sem reiknar með að skútan verði tilbú- in á þessu ári. Sldpavík, sem er einn stærsti at- vinnurekandinn í Stykkishólmi, hefúr um 60 manns á launaskrá og er fyrirtækið með mjög fjölbreytta starfsemi. Asamt því að byggja vík- ingaskip, eru í byggingu íbúðarhús og sumarbústaðir í Stykkishólmi og í næsta nágrenni, rekin er bygg- ingavöruverslun, slökkvitækja- þjónustu og sér fyrirtækið auk þess um almennt viðhald á skipum. Þeir félagar Sævar og Sigurjón segja næg verkefni ffamundan og eru því bjartsýnir á ffamtíð fyrirtækisins. KÓÓ Félag Vinstri grænna stofiiað á Bifiröst Stofnfundur Grábrókar, félags- deildar Vinstrihreyfingar - græns framboðs í Viðskiptaháskólanum á Bifröst var haldinn fimmtudags- kvöldið 16. febrúar á Kaffi Bifröst. Gestir fundarins voru þeir Og- mundur Jónasson þingflokksfor- maður VG ogjón Bjarnason þing- maður VG í NV - kjördæmi. Að sögn fundarmanna tókst fundurinn vel og var hann vel sótt- ur, en um 25 - 30 manns mættu á stofnfundinn, bæði nemendur skólans, starfsmenn og íbúar á svæðinu. Markmið Grábrókar, fé- lagsdeildar VG í Viðskiptaháskól- anum á Bifröst er að vera vett- vangur umræðna um samfélagsmál af ýmsum toga með áherslu á fé- lagshyggju, viðskipti, efnahags-, atvinnu- og umhverfismál. Formaður var kosinn Einar Árni Friðgeirsson og með honum í stjórn voru kosin þau Arni Hjart- arson, Jónína Sólborg Þórisdóttir, Stefán Steingrímur Bergsson og Þorsteinn Newton. Varamaður í stjórn er Davíð Örvar Hansson. Vefstjóri heimasíður Grábrókar, www.vg.is/bifrost, var kosinn Finnbogi Vikar Guðmundsson. MM Magnús Jánsson og Asgeir Amason, skipasmiðir að störfum. Abúendur á Furubrekki í Staðarsveit; jyrr og nú. Blótað á Nesinu Þorrablót Breiðvíkinga og Staðsveitunga var haldið í Lýsu- hólsskóla laugardaginn 11. febrúar síðastliðinn. Þar voru um 200 manns samankomin yfir góðum mat og ffábærri skemmtun. I ár sáu Breiðvíkingar um blótið og stóðu að því með glæsibrag en löng hefð er fyrir því að blótið sé haldið til skiptis af íbúum hvorrar sveitar sem geri þá góðlátlegt grín af grönnum sínum. BG í Stykkishólmi er nú í smíði rúmlega 16 metra löng víkinga- skúta sem skipasmíðastöðin Skipa- vík hf. stendur fyrir. Skrokkur skútunnar verður með sama lagi og Gauksstaðaskipið sem var vígt í Noregi árið 1882 og er því stuðst við yfir 100 ára gamlar teikningar. „Þó skipið verði byggt með gam- alli kunnáttu mun það búa yfir öll- um þeim nútímaþægindum og besta hátæknibúnaði sem völ er á,“ segir Sævar Harðarsson fram- kvæmdastjóri og annar eigandi Skipavíkur í samtali við Skessu- horn. I skipinu verða þrjár káetur, hver með baðherbergi, tveir litlir raf- mótorar í stað hefðbundinna dísel- véla, ásamt ljósavél og þversegls að hætti víkinga, en með hátæknilegri útfærslu. Skipið er hannað til út- hafssiglinga og getur hæglega siglt í kringum jörðin. „Við stefnum á Ferðamálasamtök Snæ- fellsness álykta vun vega- og fjarskiptamál A fundi í stjórn Ferðamálasam- taka Snæfellsness fyrir skömmu var efdrfarandi ályktun um vega- og fjarskiptamál samþykkt: „Stjórn Ferðamálasamtaka Snæfellsness fagnar þeim samgöngubótum sem hafa orðið á Snæfellsnesi á liðnum árum og hvetur til þess að hugað verði að áffamhaldandi uppbygg- ingu vega. Þar má telja fram- kvæmdir á Útnesvegi, uppbyggðan veg með bundnu slitlagi um Fróð- árheiði og uppbyggingu vegar um Skógarströnd. Þessar ffamkvæmd- ir eru hagsmtmamál allra Snæfell- inga og hafa jákvæð áhrif á ferða- þjónustu á öllu Snæfellsnesi en ekki aðeins hagsmunamál þeirrar byggðar sem er næst ffamkvæmd- unum. Stjórn Ferðamálasamtaka Snæfellsnes fagnar einnig fyrirhug- uðum bótum á fjarskiptasambandi og Internettenginum á öllu svæð- inu samkvæmt nýrri fjarskiptaáætl- un og bendir á að þessar úrbætur er allri ferðaþjónustu á svæðinu nauð- synlegar og mjög mikilvægar." MM framleiðslu og höfum við fulla trú á að markaður sé fyrir svona skip,“segir Sævar. Meðeigandi Sævars, Sigurjón Jónsson segist lengi hafa haft þessa hugmynd en undirbúningur að byggingu skipsins hefur staðið yfir í um þrjú ár. Sigurjón, sem sjálfur á skútu, mun fjármagna þetta að mestu sjálfur en áætlar að kostnað- ur við smíðina verði á bilinu 70 - 100 milljónir króna. Skipið, sem er byggt úr Mahony og Iroko, var límt saman með einu tonni af Epoxy og voru notaðar 250 þving- ur við smíðina en þær þurfti að losa og herða á hverjum degi í 4 mánuði meðan smíði grindarinnar í bátinn stóð. „Eg er sannfærður Sigurjón Jónsson annar eigandi Skipavtkur er hér að reka kjölbolta í skipið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.