Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 20

Skessuhorn - 22.02.2006, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 2006 MINNING Minning: Skúli O Kristjónsson Kíeri Skúli; mig langaði tdl þess að þakka þér fyrir ógleym- anlegar samverustundir með ykkur Rósu í yfir 40 ár. Eg man það eins og það hefði gerst í dag, þegar þú komst ríð- andi heim í Ferjukot í byrjun júní á þínum glæstu gæðingum og ég 12 ára stelpan horfði með aðdáunaraugum á hestana þína og hugsaði með mér að svona hesta ætlaði ég að eignast. Þú snaraðir þér af baki og spurðir hvort að foreldrar mínir værum heima, baðst mig um að halda í taumana á meðan þú færir inn og talaðir við foreldra mína um hvort að ég gæti ekki hleypt fyrir þig honum Tilbera á Faxa- borg í júlí. Þú komst út eftir skamma stund með pabba og mömmu og sagðir að þau hefðu samþykkt það og þvílík stund! Allt líf mitt breyttist á þeim degi sem þú tókst mig með þér inn í draumaheim kappreið- anna. Næstu árin fór ég með þér vítt og breitt um landið á kappreiðar oftast ríðandi hvort sem var vestur í Dali, suður til Reykjavíkur eða í Kjósina. Þú kynntir mig fyrir öllum vinum þínum og tóku þeir mér eins og ég væri þín eigin dóttir með vinsemd og gestristni og hafa þeir verið vinir mínir síðan. Þú kenndir mér að meta kveðskap, einkum Steins Stein- arrs sem var í miklu uppáhaldi hjá þér, ég held þú hafir kunn- að öll hans ljóð utanbókar. Þú varst hafsjór af fróðleik um ör- nefni, þekktir öll fjöll og dali. Það var ógleymanlegt að fara með þér inn á Langavatnsdal þar sem þú þekktir hverja þúfu, þú varst óspar að miðla til mín. Þú varst góður bóndi og skepnuhirðir, sagðir alltaf að maður ætti að fóðra búfé sitt svo sómi væri að ef maður ætl- aði að ná árangri. Þú vast brennandi félagsmálamaður og Faxi var þitt uppáhaldsfélag og vildir veg þess allan sem mest- an. Þú smitaðir mig af félags- málaáhuga og hvattir mig alltaf eindregið að láta ljós mitt skína í félagsmálum og studdir mig ætíð eftir að ég fór sjálf að starfa á þeirri braut. Þú varst óspar að láta skoðanir þínar í ljósi þegar ég leitaði til þín þeg- ar taka þurfti stórar ákvarðanir. Ekki get ég fullþakkað þér og Rósu fyrir allan þann stuðning sem þið sýnduð mér og fjöl- skyldu minni eftir að Þorsteinn féll frá síðastliðið haust. Ekki eru margir dagar síðan þú komst og færðir mér fullan vagn af rúllum. En ég veit að nú líður þér vel Skúli minn, hann Móri þinn hefur beðið eftir þér og hann svífur með þig á hinu fasmikla tölti yfir móðuna miklu. Rósu, börnum og fjölskyldum þeirra votta ég innilega samúð mína. Guðnin Fjeldsted Sesselja Pálsdóttir. Sesselja er vissulega afrekskona í Hólminum Stykkishólmspósturinn stóð fyrir vali á Hólmara ársins 2005 nú á dögunum, en það var Sesselja Páls- dóttir sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Blaðamaður Skessu- homs leit við í kaffi til hennar í lið- inni viku til að forvitnast nánar um starf hennar í þágu bæjarbúa. Eins og ffam hefur komið í Skessuhorni hefur hún meðal annars aflað fjár fyrir vefmyndavél sem hefur það hlutverk að sýna veðurfar í Stykkis- hólmi á hverju augnabliki. „Núna eru 160 ár síðan Arni Thorlacius hóf veðurathuganir hér og er Stykkishólmur því elsta veðurat- hugunarstöð landsins. Arni var framsýnn maður og þessi myndavél er ekkert annað en ffamsýni og þannig getum við vottað honum virðingu okkar.“segir Sesselja. Hún segir jafnframt að Snæfellsnes sé stórt svæði og því ekki raunhæff að halda því fram að veður sé það sama á öllu nesinu. „Það er óraunhæft þegar veðurfréttamenn segja að það verði skýjað fyrir vestan. Oft er veður betra hér en annarsstaðar og sólin hefur glatt okkur bæjarbúa á meðan það rignir t.d. í Grandar- firði. Því fannst mér þetta sniðug hugmynd að setja upp myndavél þar sem fólk gæti séð hvernig viðr- ar hverju sinni með því að fara inn á netið.“ En Sesselja hefur gefið til ýmissa annarra góðra verka: „Hljóðtækin tvö sem ég safnaði fyrir og fóru í grunnskólann voru hugsuð bæði fyrir börnin, svo þau heyrðu betur, sem og kennarana sem eiga það til að missa röddina til þess eins að ná athygli barnanna. Ég stefni að því að afhenda þriðja tækið núna í haust og mun það fylgja alfarið ein- um sérstökum bekk með heyrna- skermm nemanda. Eg er handviss um að þessi tæki verði orðinn stað- albúnaður í skólum eftir nokkur ár.“ Aðspurð um framhaldið segist hún hafa heilan helling af hug- myndum en vill ekki segja ffá þeim að svo stöddu. „Ég ætla hinsvegar að leggja nokkra vinnu í dvalar- heimilið. Það er hugmyndin að færa þeim að minnsta kosti eitt hljóðtæki og svo langar mig að sjá hvort áhugi sé fyrir dagsljósalömp- um sem hafa gert mörgum gott í skammdeginu," segir Sesselja. Fær stuðning bæjarbúa Sesselja segir bæjarbúa taka vel á móti sér þegar hún er í söfnunar- átaki og þurfi ekki endilega að selja neinn varning til að fólk styrki góð málefhi. „Ég tel mig hafa góð áhrif á fólk og vonandi get ég smitað mínu jákvæða hugarfari til sem flestra. Ég þoli nefhilega ekki að heyra kvart og kvein og neikvætt tal um það sem betnr má fara og það vill oft gleymast hvað við getum sjálf gert með góðri samstöðu. Við erum mjög vel sett og heppin með margt hérna í Stykkishólmi, t.d eig- um við nýlegan skóla, íþróttahús, sundlaug og margt fleira. Einnig hefur Kvenfélagið, sem ég er með- limur í, unnið frábært starf og gert mikið fyrir bæinn.“ Aðspurð hvort kosningin hafi komið sér á óvart, segir hún: ,Já, tvímælalaust. Þetta kom mér í opna skjöldu. Ég er ekki að þessu til að fá einhverja viðurkenningu, mig lang- ar bara að láta gott af mér leiða,“ segir Sesselja og brosir. „Ég er langt frá því að vera hætt en ég sé svolítið eftir því að hafa ekki byrjað fyrr,“ segir hún að lokum. Ungir Vinstri grænir á Vesturlandi Frá stofnfundinum á Mótel Venusi. Þar mœtti m.a. Jón Bjamason, þingmaSur VG. Hópur ungra Vinstri grænna var á ferð um Vesturland í síðustu viku og heimsótti m.a. Fjölbrautaskól- ann á Akranesi, Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri og Fram- haldsskólann í Grundarfirði. Ung- liðarnir fengu góða leiðsögn og kynningu á starfsemi skólanna. Skólinn á Akranesi hefur mikla þýðingu sem stærsti framhaldsskól- inn á svæðinu og mikilvægt að þar sé fjölbreytt námsframboð, ekki síst á sviði verkmennta. Ahugavert var að koma í nýja ffamhaldsskólann í Grundarfirði þar sem hönnun skól- ans og námsaðferðir eru með held- ur óhefðbundnu sniði. Sú gríðar- lega aðsókn sem verið hefur að skólanum sýnir hversu mikilvæg stofnun hans hefur reynst fyrir byggðarlagið. Einnig var gaman að sjá alla þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á Hvanneyri á síðustu árum og heilsa upp á ánægða nem- endur. Um kvöldið var haldinn stofn- fundur Ungra Vinstri Grænna á Vesturlandi á Mótel Venus í Borg- arfirði. Fundurinn var vel sóttur og umræður líflegar eins og vera ber. Stjórnina skipa: Asmundur Einar Daðason formaður, Jón Orvar Jónsson gjaldkeri, Þórhildur Halla Jónsdóttir ritari og meðstjómendur eru Einar A Friðgeirsson og Katrín Lilja Jónsdóttir. Varamenn eru Þóra Bjartmarsdóttir og Finnbogi Vikar Guðmundsson. Gestir fund- arins voru alþingismennimir Jón Bjarnason og Hlynur Hallsson. Ályktanir fundarins eru svohljóð- andi: Jafhrétti til náms óháð búsetu Ungir Vinstri grænir á Vestur- landi leggja áherslu á jafnrétti til náms óháð búsetu og fjárhag. Alögur á nemendur í formi skóla- gjalda, innritunargjalda og efnis- kostnaðar eru mörgum ofviða. All- ir ættu að geta sótt framhalds- menntun í sinni heimabyggð án þess að flytja búferlum með mikl- um tilkostnaði eða ferðast langar vegalengdir. Auk þess hvetur fund- urinn til átaks í eflingu starfs- menntunar í framhaldsskólum landsins. Fjölbreytt atvinnulíf í stað einhæfðrar stóriðju Við krefjumst þess að ríkisstjórn Islands komi fram með raunhæfa stefnu í byggðamálum þar sem lögð er áhersla á að tryggja fjöl- breytt atvinnulíf í stað einhæfðrar stóriðjustefnu. Ruðningsáhrif af núverandi stóriðjuframkvæmdum hafa bitnað harkalega á atvinnulífi og búsetuskilyrðum víða um land og eiga aðilar í útflutningsgreinum og ferðaþjónustu erfitt uppdráttar af þeim sökum. Fundurinn lýsir þungum áhyggjum af yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar um að halda áfram á þessari braut og krefst þess að hætt verði við frekari álversframkvæmdir og vatnsafls- virkjanir sem byggja á uppistöðu- lónum með tilheyrandi óaftur- kræfum umhverfisspjöllum. I stað þeirra skuli stuðla að frekari rann- sóknum og þróun á sviði jarðhita- tækni og djúpborunum, með það að sjónarmiði að Island verði leið- andi í vistvænni, sjálfbærri orkuöfl- un heima fyrir og erlendis. Viðurkennum rétt Palestínsku þjóðarinnar. Við skorum á ríkisstjórn Islands að viðurkenna nýkjörna stjórn Palestínu og vinna að því að palestínska þjóðin fái fullan rétt yfir eigin landi. Virða ber lýðræð- islega ákvörðun palestínsku þjóð- arinnar í síðasdiðnum þingkosn- ingum, að sniðganga þær niður- stöður verður aðeins til að stuðla að ffekara ósætti og ófriði. Fund- urinn hvetur Alþingi og ríkisstjórn til beita sér fyrir á alþjóðavett- vangi, að þau landamæri milli Isra- els og Palestínu sem Sameinuðu þjóðirnar kváðu á um á sínum tíma verði viðurkennd í reynd og Isra- elsmenn hverfi frá ólöglegum landtökubyggðum. Laufey Erla Jónsdóttir

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.