Skessuhorn


Skessuhorn - 29.03.2006, Page 1

Skessuhorn - 29.03.2006, Page 1
VIKUBLAÐ ÁVESTURLANDI 13. tbl. 9. árg. 29. mars 2006 - Kr. 300 í lausasölu Nýtt hús KG fiskverkunar við Melnes 1 í Rifi. Stórhýsi KG fiskverkunar íRifi Þessa dagana er unnið hörðum hönd- um að byggingu nýs og glæsilegs fisk- vinnsluhúss fyrir KG fiskverkun í Rifi. Húsið, sem stendur við Melnes 1, verð- tn 2700 fermetrar að grunnfleti og alls um 16000 rúmmetrar. Það er byggt úr staðsteyptum einingum en burðarvirki er úr stáli. Þessa dagana er beðið eftir hagstæðu veðri til reisingar á þaksperr- um hússins, en nauðsynlegt er að vind- ur sé hægur eða enginn þegar þær verða reistar. Að sögn Hjálmars Kristjánssonar, forstjóra fyrirtækisins er stefht að því að vinnsla hefjist í húsinu 14. ágúst í sum- ar. Daginn áður gerir Hjálmar ráð fyrir að húsið verði vígt með viðhöfii. Oll tæki úr núverandi fiskvinnslu fyrirtækis- ins á staðnum verða nýtt í nýja húsinu og bætt við nýjum eins og tæknin og að- stæður leyfa. MM Ólöglegur dráttur Lögreglumenn á Akranesi sem voru á eftirlitsferð í liðinni viku veittu athygli biffeið sem dró bát á vagni. Heldur þótti lögreglu dráttartækið lítið miðað við það sem dregið var. Bát og vagni var því skellt á hafharvogina og reyndist þunginn vera 1580 kíló, en bifreiðin var með skráða dráttarþyngd að hámarki 500 kíló. Sennilega hefði ekki mátt mik- ið bera út af til þess að ökumaður hefði misst stjórn á öllu saman með ófyrirséð- um afleiðingum. MM ATLANTSOLIA Disel *Faxabraut 9. Aldís Amardóttir vard Fegurðardrottning Vesturlands 2006 um liðna helgi. í öðru sœti varð Elísa Gutirún Elísdóttir og íþvíþriðja Lilja Hlín Ingihjargardóttir. Sjá myndirfrá keppninni og viðtal við fegurðardrottninguna á hls. 10. Ljósm: HS Fjárskortur háir eðlilegu viðhaldi á Heilsugæslunni í tilefni af 30 ára afmæli Heilsu- gæslustöðvarinnar í Borgarnesi var opinn dagur í stöðinni á mið- vikudag í liðinni viku þar sem gestir gátu komið í heimsókn, K <5 a v *. Aðgengi fatlaðra um húsnœði heilsu- gæslustöðvarinnar er allsendis ófidlnœgj- andi. Bakvið þilið áþessum vegg var upphaflega gert ráðfyrir lyftu í húsið, en hún hefur aldrei komið. Að sama skapi eru útidyrahurðir óferarfólki í hjólastól- um, þröskuldar eru víða og áfram nuetti telja. Astand sem vart telst viðunandi fyrir heilsugœslustöð. skoðað starfsaðstöðuna og þáð veitingar. Allmargir gestir nýttu sér þetta. Starfsfólk stöðvarinnar sýndu húsakynnin og starfsemina og greindu gestum ffá því helsta sem óskað hafi verið eftir á undanförn- um árum til fjárlaga, svo sem stöðu fjórða læknis allt árið vegna langra vakta og ekki síður vegna mikillar aukningar á svokallaðri dulinni búsetu í á þriðja þúsund sumar- og heilsárshúsum í hérð- inu. Einnig skortir mikið upp á viðhaldsfé til stöðvarinnar. Að sögn Guðrúnar Kristjánsdóttur, ffamkvæmdastjóra er nauðsynlegt að gera gagngerar endurbætur innan- sem utandyra á húsnæðinu. „Þar ber að sjálfsögðu hæst að- gegni fyrir fadaða sem er því mið- ur ekki til staðar. Einnig er nauð- synlegt að koma í veg fyrir vatnsleka," segir Guðrún. Nýlega fékk Heilsugæslustöðin afhentan nýjan sjúkrabíl eins og greint var ffá í síðasta Skessuhorni. Stöðin hefur því tvo sjúkar- bíla til umráða en að- eins er einn maður á vakt á sjúkrabíl. Segir Guðrún að ekki hafi fengist fjárveiting til að ráða annan mann á bakvakt og sé það vissulega bagalegt. Segir hún að nokkuð vanti uppá að fjár- ff amlag ff á hinu opin- bera til stöðvarinnar dugi fyrir eðlilegum rekstrar- og viðhalds- kosmaði. „Samkvæmt opinberum töltun og lauslegum verðsaman- burði milli fjárframlaga til heilsu- gæslustöðva á nokkrum stöðum á landinu finnst okkur sem hér erum í forsvari að Heilsugæslu- stöðin í Borgarnesi fái of lága fjár- veitingu miðað við íbúafjölda til reksturs stöðvarinnar.“ Guðrún Hér er ekki verið að sprauta lögregluþjónana niður, eins og einhver gæti ætlað. Hinsvegar erþað hluti af staifi lögreglumanna aðfá bólusetningarsprautur gegn lyfrar- bólgum A og B.A opnu húsi sl. miðvikudag nýttuþeir Trausti Freyr Jónsson og Kristján Ingi Hjöivarsson heimsóknina til aðfá slíkar sprautur hjá Rósu Marinós- dóttur, hjúkrunaforstjóra. segist nýlega hafa sent heilbrigðis- ráðherra athugasemd vegna þessa og óskað leiðréttingar á ffamlagi til reksturs stöðvarinnar. Bíði hún svars við því erindi. MM FRiSSl Wstei & . f NáUÚru ' > m í'aisll' Bayonneskinka \ I Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjörður • Húsavík • ísafjörður • Neskaupsstaður • Njarðvík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 30. mars - 2. apríl

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.