Skessuhorn - 29.03.2006, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006
Karfí fíakaður á þrísldptum vöktum
Önnum kafnar í snyrtingunni.
Þessar pökkuSu í erg og gríð og höfðu
hara gaman af.
Karfaveiðiskipin voru öll í höfn í Grundarfirði um síðustu helgi. Frá vinstri Hringur, Helgi og Harðbakur, en þau lönduðu samtals
241 tonnum í síðustu viku.
Hjá Guðmundi Runólfssyni hf. í
Grundarfirði er nú unnið við karfa-
flökun á þrískiptum vöktum allan
sólarhringinn. Efrir það eru flökin
snyrt og þeim pakkað á átta tímun-
um, segir Móses Geirmundsson
verkstjóri. „Við erum með þetta um
40 manns í vinnshmni og afköstin
hafa verið um 40 - 45 tonn á dag að
------------------------------------
jafhaði en farið mest upp í 50 tonn.
Afköstin fara nú svolítið efrir stærð-
inni á karfanum,“ sagði Móses og
bætir því við að þetta séu afbragðs
afköst hjá starfsfólkinu. Flökin eru
síðan fryst í 6 kg pakkningum og
seld mest til Þýskalands og einnig á
Frakklandsmarkað. „Eftirspurnin
hefur farið vaxandi og verðin verið
hagstæðari upp á síðkastið svo við
höfum varla tmdan að framleiða,"
bætir Móses við. Auk togaranna
Hrings og Helga sem fyrirtækið á
og gerir út landar Akureyrartogar-
inn Harðbakur EA karfa til vinnsl-
unnar að jafnaði einu sinni í viku.
GK
Hann Paivel rétt gafsér tíma til að líta upp frá flökunarvélinni.
Atök rnn skipan lista Framsóknarflokksins á Akranesi
Talsverð átök urðu í Framsóknar-
flokknum á Akranesi við samþykkt
á framboðslista flokksins fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar í vor. Efa-
semdir eru um að löglega hafi verið
staðið að samþykkt listans. Einn
þeirra sem gerð var tillaga um til
setu á listanum hafnaði sætinu.
Forsaga málsins er sú að á sínum
tíma var skipuð uppstillingarnefhd
sem skila skyldi tillögu að skipan
framboðslistans. Formaður hennar
var Valdimar Þorvaldsson. Fundur
var haldinn þann 18. mars þar sem
tillaga uppstillingarnefndar var
lögð ffam. Samkvæmt henni var
gerð tillaga um bæjarfulltrúana
Guðmtmd Pál Jónsson og Magnús
Guðmundsson í fyrstu tvö sæti list-
ans og var það samþykkt. I þriðja
sæti gerði nefndin tillögu um
Guðna Tryggvason varabæjarfull-
trúa. Fram kom breytingartillaga
um að Margrét Þóra Jónsdóttir
varabæjarfulltrúi skipaði sætið.
Gengið var til atkvæða og hlaut
Margrét Þóra 10 atkvæði en Guðni
9 atkvæði.
Eftír að þessi niðurstaða lá fyrir
var fundi frestað svo kanna mætti
hug annarra á listanum til þessarar
breytingar. Var stjórnum Fram-
sóknarfélags Akraness og félags
ungra framsóknarmanna falið að
ganga frá endanlegri tillögu að
skipan listans og leggja fyrir félags-
fund. Lauk stjórnin við þá vinnu og
var að nýju boðað til fundar í gær-
kvöldi. Svo virðist sem búist hafi
verið við átakafundi því Sigurður
Eyþórsson framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins var fenginn til
þess að stýra fundinum. A fundinn
mættu um fjörtíu manns eða mun
fleiri en á fyrri fundinn.
Samkvæmt heimildum Skessu-
homs gerðu stjórnir félaganna til-
lögu um að niðurstaða fyrri fundar,
að Margrét Þóra skipaði þriðja sæt-
ið, stæði. I upphafi fundarins í gær-
kvöldi lagði Valdimar Þorvaldsson
ffam tillögu um að greidd yrðu at-
kvæði að nýju um þriðja sætið. Taldi
Valdimar að þar sem listinn hefði
ekki verið afgreiddur í heild á fyrri
fundi væri skipan hans í heild opin.
Féllst fundurinn á þessa tillögu
Valdimars. I framhaldinu lagði
hann til að atkvæðagreiðsla um
þriðja sætið yrði endurtekin og var
það gert. Hlaut Guðni 21 atkvæði
en Margrét Þóra 17. Þremur fund-
armanna var meinuð þátttaka í at-
kvæðagreiðslunni þar sem reglur
kveða á um að félagsmenn geti ekki
tekið þátt í atkvæðagreiðslum fyrr
en viku efrir inngöngu í flokkinn.
Eftir að niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar lá fyrir hafhaði Jóna
Adolfsdóttir sæti á listanum en gerð
hafði verið tillaga um að hún skip-
aði 11. sæti listans. Gerð var tillaga
um að Margrét Þóra skipaði 8. sæti
listans og þáði hún það. Þegar átök-
in um þriðja sætið vora að baki og
Margrét Þóra hafði tekið áttunda
sæti listans var hann borinn upp í
heild sinni og samþykktur með
þorra greiddra atkvæða gegn tveim-
ur.
Framsóknarmenn sem Skessu-
horn ræddi við efrir fundinn vildu
ekkert láta hafa eftir sér undir nafhi
um þau átök sem áttu sér stað á
fundunum tveimur og dagana á
milli þeirra og því síður hvort þessi
átök myndu draga einhvern dilk á
efrir sér. Flestir þeirra sem rætt var
við töldu að þarna hefðu tekist á
sjónarmið yngra fólks, sem vildi
breyttar áherslur, og þeirra sem
mótað hafa stefhu þá sem unnið
hefur verið eftir undanfarin ár.
Sumir sögðu að þarna hefði flokk-
urinn í raun gengið gegn eigin sam-
þykktum og ábendingum um kynja-
hlutföll og hafnað því að bæta stöðu
kvenna á listanum. Er þar vísað til
þess að á flokksþingi árið 2005 hafi
verið samþykkt tillaga um að við
röðun á ffamboðslista skuli hlutfall
kynja vera sem jafnast og að árið
2007 verði hvorki hlutur karla né
kvenna í trúnaðar- og ábyrgðar-
stöðum á vegum flokksins lakari en
40%. Aðrir segja að þarna hafi í
raun tekist á stuðningsmenn
tveggja varabæjarfulltrúa sem unrúð
hafa ötullega á vettvangi flokksins
undanfarin ár. Ekki sé ástæða til að
kvíða afleiðingum þess því báðir
þessir varabæjarfulltrúar hafi tekið
sæti á listanum og Margrét Þóra
hafi lýst því yfir á fundinum að eng-
in eftirmál yrðu af átökunum af
sinni hálfu.
Ymsir fundarmenn sem rætt var
við vora efins um að það stæðist al-
menn fundarsköp að endurtaka at-
kvæðagreiðslu með þessum hætti.
Aðrir segja, eins og Valdimar, að á
meðan listinn hafi ekki verið end-
anlega afgreiddur sé hægt að breyta
honum.
HJ
PISTILL GISLA
Krónan
Þegar ég lagðist til svefhs í
gærkvöldi tæmdi ég buxnavasana
þar sem buxur gærdagsins voru
komnar í umalsverða þörf fyrir
að eiga náin samskipti við þvotta-
vélina á bænum, ágætis maskínu
sem er af þýsku bergi brotin, þó
það komi þessu máli ekkert við.
Innihald buxnavasanna lagði ég á
náttborðið en þar kenndi að
vanda ýmissa grasa. Meðal ann-
ars má hefha stjörnuskrúfjárn,
vasahníf, vírspotta úr hljóðnema-
snúru, kveikjara, minnismiða af
ýmsum stærðum og gerðum,
bindisnælu gullslegna, úrhjallinn
minn með biluðu keðjunni,
hulstur utan af myndbands-
snældu og ýmislegt fleira fágæti.
Einnig komu upp úr vasanum fá-
einar krónur, þær fáu sem til-
heyrðu mínu lögbúi eftir við-
skipti gærdagsins. Þegar allt
þetta var komið á náttborðið var
orðin þar nokkur þröng á þingi.
Segir síðan ekki meira af gögn-
um þessum fyrr en ég vaknaði í
morgun. Þá hafði sá fáheyrði at-
burður átt sér stað að fýrrnefnd-
ar fáeinar krónur höfðu hratað
frarn af náttborðinu og lent á
gólfinu. Þar með hafði krónan
fallið um heila fimmtíu sentí-
metra á einni nóttu!
Mér varð að sjálfsögðu hugsað
til ummæla hæstvirts forsætisráð-
herra ffá því deginum áður þegar
hann lagði til að það yrði skoðað
í fullri alvöru að taka upp evruna
og kasta krónunni í staðinn. Eg
tek heilshugar undir skoðanir
ráðherrans, forsætis, í þessu máli
enda er ég þess fullviss að ef ég
hefði átt evrur þá hefðu þær ver-
ið enn á sínum stað á náttborðinu
þegar ég vaknaði í morgun. Evr-
an mun nefnilega vera mun
traustari gjaldmiðill en krónan,
þessi ómerkilegi sveitagjaldmið-
iU.
I vikunni var það tilkynnt að
tortryggnir og illa innrættir
bankastjórar í útlenskum pen-
ingamiðstöðvum treystu ekki ís-
lensku bönkunum fyrir horn. Því
fengju íslensku bankarnir gömlu
skuldabréfin sín í hausinn aftur.
Alveg ótrúleg ffamkoma hjá
þessum bankastjórum sem
greinilega hafa ekki hundsvit á
peningum. Svo er búið að púkka
upp á þetta lið með því að bjóða
því í lax í Langá og ffían umgang
á Goldfinger. Hámarks vanþakk-
læti svo ekki sé meira sagt.
Eg efast svosem ekki andartak
um að íslenskir bankar nái á nýj-
an leik að sannfæra erlenda spari-
sjóði um að íslenskir bankar eru
bestir í heimi og þó víðar væri
leitað. Eg ætla rétt að vona það
svo við getum haldið áfJam upp-
kaupum á útlenskum fyrirtækjum
og fyrirbærum. Ég er nefnilega
búinn að hlakka svo mikið til að
sjá íslenska skjaldarmerkið á
Buckinghamhöll og annað við
Niagarafossa og á fleiri góðum
stöðum sem eflaust eru falir fyrir
rétta upphæð.
Þangað til þetta kemst í lag
þurfum við venjulega og lítilfjör-
lega fólkið að vísu að greiða eitt-
hvað hærri vexti en það er hjóm
eitt.
Okkur er líka alveg sama þó
bankaútibúum á landsbyggðinni
sé fækkað og þjónustan minnkuð
svolítið. Alheimsfrægð skiptir
meira máli. Eg tel allavega ekki
eftir mér að borga nokkrar krón-
ur ef ég fæ í staðinn að sjá mynd-
ir í Séð og heyrt af íslenskum
bankastjórum í viðhafnar-
stúkunni á Stamford Bridge.
Þetta er nefinilega spurning um
þjóðarstolt en ekki peninga.
Hinsvegar má kannski velta því
fýrir sér hvort það er ekki ágætt,
ef menn ætla á annað borð að
sigra heiminn, að byrja í tún-
garðinum heima.
Gísli Einarsson,
fjármálaspekingur.