Skessuhorn


Skessuhorn - 29.03.2006, Page 7

Skessuhorn - 29.03.2006, Page 7
„.t.vMimi..; MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 7 Vilja sam- ræma smalanir Landbúnaðarnefnd Borgar- byggðar vill að samræmd verði smölun á milli afrétta og þegar fé er í heimahögum skuli fjár- eigendur leitast við að hafa það í vörslu í sínu landi. Þetta kom fram á fundi nefndarinnar á dögunum þegar fjallað var um ályktun aðalfundar Sauðfjár- ræktarfélags Alftaneshrepps í síðasta mánuði. Þar lýsti aðal- fundurinn yfir áhyggjum sín- um að ekki skuli hafa tekist að hreinsmala á eðlilegum tíma á vissum svæðum t.d. Ystu- Tungu og víðar. Kom fram að þegar fé gengur úti á þessum svæðum getur það runnið yfir á aðra afrétti og því töldu menn ólíðandi að fé gangi úti fram eftir vetri. Einnig kom fram óánægja fundarmanna að ekki skuli hafa náðst sam- komulag við Dalamenn um samsmölun til fyrstu réttar og skoraði fundurinn á yfirvöld að fylgja fast eftir að hreinsmalað verði samkvæmt fjallskila- reglugerð og minna jarðeig- endur á að sinna skyldum sín- um gagnvart smölun. Alyktun Sauðfjárræktarfé- lagsins var tekin fyrir í bæjar- ráði Borgarbyggðar sem sendi málið til umsagnar landbúnað- arnefndar. Eins og áður sagði vill nefhdin að samræmd verði smölun milli afrétta og einnig tók nefndin undir ályktun fjall- skilanefndar Mýrasýslu frá 24. febrúar s.l. þar sem óskað var eftir því að Bæjarstjórn Borg- arbyggðar gangist fyrir fundi með sveitarstjórn Dalabyggðar og þess freistað að samræma smalamennskur milli sýsln- anna þannig að tryggt sé að samsmölun verði í fyrstu og annarri leit skv. fjallskilareglu- gerðum þ.e. leitum verði ekki frestað eða færðar til nema með samþykki beggja aðila. HJ Stefiit að þremur bændamörkuðum í sumar í framhaldi af ályktun formanna- fundar hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands sl. haust hafa samtökin ákveðið að stefna á að koma á fót svokölluðum bændamörkuðum í sumar, ef næg þátttaka fæst. Bændamarkaðir af þessu tagi hafa verið að ryðja sér til rúms víða um land og notið vinsælda. Þar mynd- ast oft góð stemning og eru mark- aðirnir skemmtilegur hluti af lífi bæði framleiðenda og neytenda, eru tilbreyting og koma t.d. ferða- þjónustunni vel. Skemmst er að minnast markaðar sem íbúar hreppanna sunnan Skarðsheiðar stóðu fyrir sl. haust á Laxá en þangað kom mjög margt fólk bæði til sölu á ýmsum varningi og ekki síður áhugasamir kaupendur. „Með þessu framtaki vilja Bún- aðarsamtök Vesturlands auka möguleika lítilla framleiðenda á því að koma vörum sínum á fram- færi beint til neytenda og stuðla að auknum tekjumöguleikum í tengslum við hefðbundna mat- vælaframleiðslu. Bændamarkaðir geta einnig gert matarmenningu á Vesturlandi sýnilegri,“ segir m.a. í nýjasta fréttabréfi Búnaðarsamtak- anna. Gert er ráð fyrir að settir verði upp 3 markaðir í sumar. Þeir hafa ekki enn verið tímasettir eða stað- settir. Þar geta smáir framleiðend- ur leigt sér bás gegn vægu gjaldi og selt sína framleiðsluvöru. Gerðar verða kröfur til framleiðenda um að þeir selji einungis gæðavörur sem þeir framleiða sjálfir, eða a.m.k. að hluta. Einnig þarf fram- leiðandi eða einhver sem hefur komið að framleiðslunni að selja vöruna. Skoða þarf í tilfelli hvers framleiðanda fyrir sig, hvort hann uppfylli þær kröfur sem heilbrigð- iseftirlitið gerir til framleiðenda á slíkum markaði. Framleiðnisjóður styrkir verkefnið og nánari upplýs- ingar um það munu verða birtar á heimasíðunni buvest.is eða verða gefnar í síma 437-1215. MM Rektor vill sparkvöll Runólfur Agústsson, rektur Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur með bréfi til bæjar- stjórnar Borgarbyggðar óskað eftir því að komið verði upp upphituðum gervigrasvelli á Bifröst. I bréfinu staðfestir hann vilja skólayfirvalda og íbúa á Bifröst til þess að ráðist verði í gerð slíks sparkvallar. Telur hann að völlurinn myndi nýtast fullorðnum, unglingum og börnum, en engin aðstaða er á staðnum til þess að leika fótbolta eða aðrar boltaíþrótt- ir. Bæjarráð Borgarbyggðar fjallaði um málið og fól bæjar- verkfræðingi að ganga frá skipulagsmálum við lóð leik- skólans Hraunborgar áður en hafist verður handa við gerð sparkvallar á staðnum. HJ mftifi 11| Breiðirmi, Akranesi sunndaginn 2. apríl klukkan 20:00 2. Stofnun félags 3. Kjör stjórnar 4. Önnur mál Velferð - Nýsköpun - Umhverfi www.xf.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.