Skessuhorn


Skessuhorn - 29.03.2006, Síða 8

Skessuhorn - 29.03.2006, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 ^&CNUHu^il Námskeið um byggingu hrossa Nú á vordögum mun Endur- menntunardeild Landbúnaðarhá- skóla Islands, í samvinnu við Félag hrossabænda, bjóða upp á nám- skeið sem fjallar um byggingu kyn- bótahrossa. Markmið námskeiðsins er að veita ítarlega fræðslu um þau atriði sem horft er til þegar metnir eru eiginleikar byggingar hrossa og hvernig þessir eiginleikar eru metnir. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp fyrir byggingardóm. Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en aðal áherslan verður lögð á verk- legar æfingar. Boðið verður upp á námskeiðið á tveimur stöðum á landinu nú í vor; 8. apríl á Miðfoss- um í Borgarfirði og svo 6. maí í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Allar nánari upplýsingar um námskeiðið má fá á heimasíðu skólans (www.lbhi.is) eða hjá Þorvaldi Kristjánssyni í síma: 433-5024. Það er eitt af markmið Endur- menntunardeildar Landbúnaðar- háskólans, í samvinnu við Félag hrossabænda, að bjóða upp á úrval námskeiða í framtíðinni um hrossa- rækt og allt sem við kemur íslenska hestinum. Það er því horft björtum augum til þessa skemmtilega verk- efnis. MM/Ljósm: MHH Opinn dagur á Hesti í Borgarfirði Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri verður með opinn dag í kennslu- og rannsóknafjárhúsun- um að Hesti laugardaginn 1. apríl frá kl. 13 til 17. A opna deginum verða kynnt rannsóknaverkefni í sauðíjárrækt á vegum Lbhí og sam- starfsaðila auk fyrirhugaðra verk- efna á komandi misserum. Þá verða lambhrútar sem eru í afkvæma- rannsókn kynntir með nýstárlegum hætti og auk þess verða ýmsar hressilegar uppákomur yfir daginn. Skólinn hefur auk þess fengið til liðs við sig fjölmörg fyrirtæki og stofhanir sem verða jafnframt með kynningar á vörum og þjónustu fyrir sauðfjárbændur á þessum opna degi. Eru allir sauðfjárbændur og annað áhugafólk um sauðfjár- rækt hvatt til að fara í heimsókn að Hesti og kynna sér starfsemi skól- ans í sauðfjárrækt auk þess að fá kynningu á ýmsum vörum og þjón- ustu fyrir búgreinina. MM Kynningarfundur um framtíð Gamla mjólkursamlagshússins Síðastliðinn föstudag kynnti fyr- irtækið Sólorka, eigandi Gamla mjólkursamlagshússins við Skúla- götu í Borgarnesi, fyrirhugaða end- urgerð og mögulega starfsemi Listamiðstöðvar í húsinu. Páll Björgvinsson, arkitekt er í forsvari fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum við húsið. „Við ætlum okkur að skapa úr þessu gamla og virðulega húsi verðmæti og ætlum því nýtt ffamtíðarhlutverk og veglegan sess í atvinnu- og menningarlegu tilliti í Borgarnesi," sagði Páll meðal ann- ars. Hann sagði að húsið og starf- semi í því hafi gegnt lykilhlutverki í ein 70 ár í atvinnulífi Borgnesinga og vegna sögu þess og þeirrar stað- reyndar að Guðjón Samúelsson, fyrrum húsameistari ríkisins hafi hannað húsið væri það fyrir margt mjög merkileg bygging sem beri að varðveita. Páll flutti ítarlegt erindi um ferð sem hann og Þorbergur Þórsson, atvinnuráðgjafi hjá SSV fóru til Danmerkur og Noregs til að kynna sér rekstur listamiðstöðva sem þar eru reknar. Hugmyndir eru uppi um að Gamla mjólkursamlagið fái hlutverk listamiðstöðvar sem feng- ið hefur vinnuheitið Listnáman. Viðskiptahugmynd Páls og félaga hans gengur út á að húsið þjóni hlutverki fjölþætts menningarhúss og þar verði jafnvel rekið alþjóðlegt og norrænt samstarf aðila á sviði menningar og ferðamála. Þar geti listamenn t.d. fengið aðstöðu til að hafa svokallaðar opnar vinnustofur þar sem gestir geta fylgst með lista- mönntmum að störfum. I húsinu verða auk þess 5 íbúðir sem lista- menn geta fengið afnota af auk sameiginlegra vinnustofa og verk- stæða. Þá er hugmynd um að í hús- inu verði nokkurs konar fjölnota salur þar sem ýmis menningar- tengd starfsemi fari ffam. Nefndi Páll m.a. handverkshús eldri borg- ara, menntasmiðju kvenna, nám- skeiðahald og ýmislegt fleira í því samhengi. Loks er ein hugmynd að í hluta hússins og þá sennilega í kjallara þess verði sett upp mjólkur- iðnaðarsafn. Yfir til þín; Borgarbyggð! Ekki eru síður stórt verk að koma starfsemi af stað í húsinu heldur en að hanna breytingar og endur- byggja húsið. Páll segir í samtali við Ljósmynd af módeli sem unnið hefur verið eftir hugmyndum arkitektanna um breyting- ar á húsinu. Skessuhorn að nú sé komið að ákveðnum þáttaskilum í undirbún- ingi verksins og fleiri aðilar þurfa að koma að málum enda gríðarlega kostnaðarsamt samfélagsverkefhi á ferðinni sem ekki sé á færi einstak- linga. I lok erindis síns á fundinum beindi Páll orðum sínum til fundar- manna og sveitarfélagsins Borgar- byggðar sérstaklega: „Bjart er yfir mögulegri ffamtíð menningar og lista í Borgarnesi en fyrir þá sem þegar hafa ekki gert sér grein fyrir því þá er hér á ferðinni umfangs- mikið og krefjandi samfélagsverk- efni. Hér er líka komin ástæða þess að öllum helstu aðilum innan stjórna og menningar í Borgar- byggð var boðið hingað til kynn- ingar. Hingað til höfum við hjónin sem stöndum á bak við Sólorku og kaupin til bjargar Gamla mjólkur- samlagshúsinu staðið ein og óstudd og jafnframt ólaunuð að hug- myndasmíðinni fyrir nýtt hlutverk og tilgang þessa aldurshnigna húss í bæjarmyndinni í Borgarnesi. Við svo búið verður ekki lengur setið. Okkar hlutverk sem áhugasamir einstaklingar um bjartari mögu- leika Borgarbyggðar innan menn- ingarferðamennsku og lista og auk- inna tækifæra eldri borgara og kvenna í héraðinu er vonlaust og óviðráðanlegt ef ráðamenn jafnt sem listamenn sitja aðgerðarlausir og áhugalausir hjá og engir styrkir fást til framkvæmda. Það er undir ykkur komið hvort undirtektir í samfélaginu verða jákvæðar eða ekki og hvort við hjónin höldum á- ffam með þessar hugmyndir í sam- vinnu við ykkur eða ekki. Eða hvort íbúðirnar í Mjólkursamlaginu enda á sölu sem venjulegar íbúðir strax að endurgerð lokinni. Við hjónin ætlum ekki að halda áffam að berj- ast við þann draug í Borgarbyggð sem ennþá situr í sömu sporum og ergir sig yfir því að húsið var selt en ekki rifið og talar um hugmyndir okkar Sem hverja aðra dægurflugu sem ekkert verður úr. Satt er það að mörg ljón hafa verið á veginum síð- an húsinu var bjargað og ffam- kvæmdum hefur þar af leiðandi seinkað um nokkra mánuði. Það ætti samt ekki að koma verulega að sök eða eyðileggja þá frábæru möguleika sem við höfum séð fyrir húsið svo framarlega sem íbúar og ráðamenn Borgarbyggðar taka höndum saman um að styðja þetta ffamtak í hvívetna og efla trú sína á möguleikum byggðarinnar sem þeir hafa valið að kalla sína heima- byggð með því að halda þar heimili og ala þar upp börrún sín. Trú, von og kærleikur er allt sem þarf og metnaðarfull samstaða um að vilja veg Borgarbyggðar sem mestan. Við segjum því yfir til þín; Borgar- byggð.“ A fundinn mættu um 60 manns. Að lokinn kynningu gengu fundar- menn af hótelinu og í samlagshúsið gamla og fengu kynningu á fyrir- huguðum framkvæmdum. MM A myndinni má sjá þátttakendur á námskeiðinu. Námskeiði fyrir dagforeldra lýkur I síðustu viku lauk í Borgarnesi námskeiði sem haldið var fyrir væntanlega dagforeldra. Nám- skeiðið hófst þann 6. febrúar og hefur kennsla farið fram þrisvar í viku. Samkvæmt reglugerð um dagvistun í heimahúsum er nám- skeið ef þessu tagi skilyrði fyrir leyfi til dagvistunar. Það var Sí- menntunarmiðstöð Vesturlands sem stóð fyrir námskeiðinu og var kennt í gegnum fjarkennslubúnað frá Námsflokkum Hafnarfjarðar. Meðal námsgreina á námskeiðinu má nefna uppeldisfræði, þroska barna, foreldrasamstarf og slysa- varnir. Alls tók tíu konur frá Borg- arnesi og Akranesi þátt í námskeið- inu. HJ Mjög mikill samdráttur í afla og aflaverðmæti Mjög mikill samdráttur varð í árinu 2004 því 48,32% í magni skiptingu aflans milli helstu fiskteg- lönduðum afla og aflaverðmæti á talið og 42,42% í verðmætum talið. unda og verðmæti þeirra: Vesturlandi á síðasta ári miðað við Hér að neðan má sjá tölur yfir árið á undan. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns hefur þróunin verið í þessa átt. Nú liggja hinsvegar endan- legar tölur fyrir hjá Hagstofu Is- lands. A Vestur- landi var landað í fyrra 65.894 tonn- um af sjávarfangi að verðmæti tæpar 2.453 milljónir króna. Nemur samdrátturinn frá Afli í tonnum Aflaverðmaeti, 1.000 kr 2004 2005 % 2004 2005 % Þorskur 16,393 17,081 4.20 1,748,254 1,551,050 -11.28 Ýsa 3,713 2,739 -26.23 236,456 115,639 -51.09 Ufsi 1,780 345 -80.62 94,992 10,955 -88.47 Karfi 4,429 4,004 -9.60 240,035 192,154 -19.95 Úthafskarfi 2,174 0 -100.00 149,165 0 -100.00 Grálúða 3,319 0 -100.00 769,638 0 -100.00 Síld 1,533 1,350 -11.94 57,419 56,741 -1.18 Norsk-íslensk síld 3,274 3,295 0.64 32,042 130,003 305.73 Loðna 49,762 30,081 -39.55 346,736 170,008 -50.97 Loðnuhrogn 678 1,318 94.40 39,525 39,134 -0.99 Kolmunni 36,361 0 -100.00 240,057 0 -100.00 Rækja 1,135 2,865 152.42 113,222 18,333 -83.81 Annar afli 2,950 2,816 -4.54 193,653 169,494 -12.48 Samtals 127,501 65,894 -48.32 4,261,194 2,453,511 -42.42

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.