Skessuhorn


Skessuhorn - 29.03.2006, Qupperneq 10

Skessuhorn - 29.03.2006, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 Aldís Amardóttir er glæsilegur fulltrúi Vesturlands í keppninni um Ungfirú Island Fegurðarsamkeppni Vesturlands fór ffam í Bíóhöllinni Akranesi sl. laugardagskvöld að viðstöddu fjöl- menni og var keppnin hin glæsileg- asta. Stúlkurnar, 10 talsins, voru all- ar fallegar og glæsilega til hafðar. Það var Aldís Arnardóttir, 19 ára gömul Skagamær, sem var krýnd sú fegursta að þessu sinni. Aldís var einnig kjörin ljósmyndastúlka keppninnar. Elísa Guðrún Elísdóttir hafnaði í öðru sæti en þriðja sætið hreppti Lilja Hlín Ingibjargardóttir. Þá var Olöf Sigríður Magnúsdóttir valin Sportstúlkan, Heiða Rós Ní- elsdóttir fékk titilinn Oroblustúlkan, Maren Lind Másdóttir var valin Netstúlka keppninnar en hún var einnig vinsælasta stúlkan að mati keppenda. Skessuhorn fékk ný- krýnda fegurðardrottningu í heim- sókn til að forvitnast aðeins um hagi hennar og ffamtíð. Sigurinn kom mér á óvart „Það var virkilega skemmtileg reynsla að taka þátt í svona keppni. Hópurinn var líka svo góður og samstilltur en við þekkjumst margar úr skólanum og héðan af Akranesi," segir Aldís. Aðspurð um aðdraganda að þátttöku hennar í keppninni seg- ir hún Silju Allansdóttur ffam- kvæmdastjóra keppninnar hafa kom- ið til sín í febrúar og beðið sig að taka þátt. „Mér leist bara vel á það og ákvað að slá tdl. Mig langaði að prófa að fara í svona keppni þó þetta hafi aldrei verið neinn sérstakur draumur minn og sé ég alls ekkert eftír því. Urslitin komu mér samt nokkuð á óvart og ég átti ekki von á að vinna titilinn því við áttum allar jafna möguleika,“ segir fegurðar- drottningin. Elísa Guðrún Elísdóttir, sem hafhaði í öðru sæti í keppninni mun ásamt Aldísi fara sem fulltrúi Vestur- lands í keppnina um Ungffú Island sem haldin verður í maí á Broadway. „Eg og EHsa erum góðar vinkonur svo þetta verður bara mjög gaman. Hópurinn sem fer í þessa keppni ætlar að hittast núna um helgina og leggja línurnar að undirbúningi hennar en svo byrjum við að æfa al- veg á fúllu í byrjun maí. Ungffú ís- land er miklu stærri keppni og vinn- an sömuleiðis meiri en við erum báðar vel stemmdar og tmdirbúnar eftír Vesturlandskeppnina," segir Al- dís. „Það verður svolítið öðruvísi að taka þátt í þessari kepprú því við þekkjum ekki hinar stelptnnar en jafnffamt verðtn mjög spennandi að fá að kynnast þeim öllum. Eg hef verið að fylgjast með hinum keppn- unum á landinu og kynnt mér þessi andlit sem munu taka þátt í Ungfirú Islandi. Þær eru allar mjög sætar en ég verð að trúa því að ég hafi ein- hverja möguleika á að vinna þann titdll“ segir hún og brosir. Fjölskyldan er stolt af mér og styður mig Aldís sem er í námi á félagsfræði- braut við Fjölbrautaskóla Vestur- lands hefur ekki miklar áhyggjur af skólanum.“Ég verð í prófum þegar æfingar standa yfir og þarf því bara að nýta tímann vel núna og nota páskafríið til að lesa en í versta falli þyrfd ég að fá að breyta eitthvað próftöflunni," segir hún áhyggju- laus. Aldís mun klára stúdentspróf næsta vor og stefnir hún þá á há- skólanám. „Eg hef áhuga á svo mörgu, en fjölmiðlaffæði, landffæði, lífffæði og næringarffæði get ég nefht meðal þess sem ég gæti hugs- að mér að læra. Þó er ég ekki búin að ákveða neitt og mun því tíminn einn leiða það í ljós hvar ég enda. Kærast- irm minn er að fara í nám við Há- skólann í Reykjavík í haust og það getur vel verið að við flytjmn þangað á endanum,“ segir Aldís sem vel get- ur hugsað sér að búa í höfúðborg- inni. Hún er fædd og uppalin á Sel- fossi en hefur búið hjá kærasta sínum á Akranesi í hálft annað ár. „Eg kann mjög vel við mig á Skaganum og mér líður mjög vel hér. Það kemur samt oft fyrir að maður sakni vin- anna og fjölskyldunnar og þau sjá svolítið eftir mér, en vita að ég hef það gott og það skiptir öllu máli. Fjölskyldan mín er mjög stolt af mér og styður mig í þessum fegurðar- keppnum og ég er þakklát fyrir það,“ segir Aldís. Aldís og Haukur. Frá vinstri: Elísa Guðrún, Aldís og Lilja Hlín. Kærastinn krýndi mig Þess má geta að kærasti Aldísar, Haukur Armannsson, var Herra Vesturland 2004 og lenti í öðru sæti í keppninni um Herra Island sama ár. Það er því óhætt að segja að þetta myndarlega par hafi eitthvað sam- eiginlegt. „Það var einmitt kærastinn minn sem afhenti mér sprotann við krýninguna og um leið kyssti mig og óskaði mér til hamingju,“ segir hún og fer ekki leynt með hvaða hug hún ber til hans. „Þetta var allt svo skemmtilegt og ég fékk fullt að flott- um verðlaunum eins og kjól að eigin vali ffá Prinsessunni, skartgripi frá Dýrfinnu, úr frá Guðmundi B. Hannah og margt fleira. Eg hef fengið góð viðbrögð ffá flestum og það er ffábært ef fólk samgleðst manni en maður heyrir stundum neikvæða umfjölltm og ég nenni ekki hlusta á það. Eg vil koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem studdu mig og keppnina í heild, þetta væri ekki hægt án þeirra, segir Aldís ánægð að lokum. KÓÓ/ Ljósm. Hilmar Oroblu stúlkan var Heiöa Rós Níelsdóttir. Heiöur Halljreðsdóttir fegurðardrottning Vesturlands 2005 krýndi Aldísi. Maren Lind Másdóttir var valin Net- stúlka keppninnar en bún var einnig vin- sælasta stúlkan að mati keppenda. Ólöf Sigríður Magnúsdóttir var valin Sportstúlkan.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.