Skessuhorn - 29.03.2006, Qupperneq 12
Stefna Alcoa Fjarðaáls er að fjárfesta til framtíðar
í öflugu þekkingarsamfélagi bæði innan og utan
fyrirtækisins. Nú þegar hefur fyrirtækið lagt um
140 milljónir króna til samfélagsmála. Slík fjár-
festing skilar sér í verðmætum mannauði sem
aftur styrkir samfélagið enn frekar. Starfsmenn
eru hvattir til að sinna samfélagsmálum og
Fjarðaál greiðir styrki með þeim starfsmönnum
sem vinna í þágu góðgerðarsamtaka. Þannig á
samfélagið allt að njóta góðs af.
Nemendur í Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Þjálfun starfsmanna getur verið margþætt.
Sálfræðingurinn og fræðslustjórinn, Steinþór Þórðarson,
er hér ásamt leiðbeinanda á reykköfunaræfingu f Kanada.
Hluti af mannauðs- og samfélagsteyminu, við
Upplýsingamiðstöð Fjarðaráls, með álverið í baksýn.
Aðalheiður Vilbergsdóttir með
son sinn, Birki Inga Óskarsson.
Aðalheiður stýrir skrifstofu
Fjarðaáls á Reyðarfirði.
Kyn og aldur
Starfsmenn Fjarðaáls eiga að endurspegla
og efla samfélagið. Æskilegt er að
kynjahlutfall verði sem jafnast og
öll störf í álverinu henta jafnt
konum sem körlum. Jafnframt er
stefnt að góðri aldursdreifingu og
eðlilegri endurnýjun í fyrirtækinu.
Ferli og teymi
í álverinu í Fjarðabyggð verður unnið
samkvæmt verkferlum í sjálfstýrðum
teymum með víðtæk verksvið. í teym-
unum verða leiðtogar sem styðja liðs-
menn og sjá til þess að þeir búi yfir
nauðsyntegri þekkingu. Kjarnateymum
verður skipt upp í álframleiðslu, málm-
vinnslu og framleiðsluþróun. Stoðteymi
og þekkingarsetur veita kjarnateymum
stuðning. Stöðugt verður leitast við að
styrkja teymin og bæta verkferlin.
Teymin munu sjálf koma að ráðningu
nýrra liðsmanna þegar störf losna.
Fjölbreytni og fjölhæfni
Öll störf í álverinu eru fjölbreytt og munu
allir starfsmenn takast á við ólík viðfangs-
efni. Að auki verður árlega boðið upp á
nokkur starfsþjálfunartækifæri, þar sem
áhugasamir starfsmenn fá þjálfun og
reynslu á nýjum starfsvettvangi í 12
mánuði. Slík starfsþjálfun verður til
dæmis á sviði öryggis-, umhverfis,
mannauðs- og gæðamála.
Menntun og reynsla
Margvísleg og spennandi
störf verða í boði hjá
Fjarðaáli. Við ætlum
að mynda sam-
hentan hóp fólks
með fjölbreytta
menntun og
reynslu. Tæplega
40% starfs-
manna verða
með háskóla-
menntun eða
iðnmenntun.
Öll störf í
fyrirtækinu
verða góð
störf.