Skessuhorn - 29.03.2006, Qupperneq 13
Vinnutilhögun og vinnutími
Störf í áliðnaði eru örugg og vinnutíminn
yfirleitt fyrirsjáanlegur. Álið verður að fram-
leiða allan sólarhringinn, allt árið um kring.
í boði verða einnig hlutastörf fyrir fólk sem
á erfitt með að vinna á vöktum eða vera í
fullu starfi.
Stefán
Guðjónsson,
kerfisfræðingur,
mun vinna við
eitt af stærstu og
öflugustu upp-
lýsingakerfum á
íslandi.
Mannauðs-
fræðingurinn,
Sigurður
Ólafsson, í Aflhúsi
lceland Spa &
Fitness á
Reyðarfirði.
samfélag
■
i
til
Rekstrarhagfræðingurinn, Bob Roy, ætlar að miðla starfs-
mönnum Fjarðaáls af langri reynslu sinni næstu tvö árin.
Þjálfun og fræðsla
Fræðslusetur verður starfrækt í álverinu og
allir starfsmenn fá víðtæka þjálfun og
fræðslu. Margir munu fá þjálfun í öðrum
álverum Alcoa og um 40 erlendir sérfræð-
Hollusta og heilsuvernd
Starfsmönnum Alcoa Fjarðaáls á að líða vel í
vinnunni. í álverinu verður heilsusetur með
hjúkrunarfræðingi og öðrum heilbrigðis-
sérfræðingum. í mötuneyti verður boðið upp
á hollt og gott fæði undir ieiðsögn næringar-
ráðgjafa. Fjarðarál styður einnig heilsurækt
starfsmanna.
Jafnvægi vinnu og einkaiífs
Alcoá Fjarðaál á að vera fjölskylduvænn
vinnustaður. Hvað í því felst nákvæmlega
verður starfsmanna að ákveða í samein-
ingu. Hluti af þjónustu við starfsmenn mun
einnig standa fjölskyldum þeirra til boða.
Samstarf og samráð
Áhersla verður lögð á að starfsmenn
þekki sem best allar hliðar starfseminnar.
Teymin munu hafa með sér náið samstarf
og samráð um mál sem varða allt fyrir-
tækið og umhverfi þess. Allt að fimmt-
ungi vinnutíma síns munu framleiðslu-
starfsmenn vinna í hópum að ýmsum
sameiginlegum málum, svo sem
umhverfis-, samfélags- eða gæðarriálum.
Birkir Einar
Gunnlaugsson
mættur á knatt-
spyrnuæfingu í
Fjarðabyggðar-
höllinni,kannski
fullsnemma.
ingar munu aðstoða við gangsetninguna.
Þekking og starfsþróun
Allir starfsmenn Fjarðaáls eiga að fá
tækifæri til að leysa fjölbreytt og
krefjandi verkefni og vaxa og dafna
í starfi. Starfsmenn munu öðlast
verðmæta þekkingu sem á að
nýtast til frambúðar bæði
innan og utan
fyrirtækisins.
Kaup og kjör
íslenskur áliðnaður hefur
greitt samkeppnishæf laun
og starfsmannavelta í
greininni hefurverið lítil.
Sören Kristinsson.sonur
Ellenar Sæmundsdóttur,
starfsmanns Fjarðaáls.
Við tökum vel á móti þér
Við leggjum mikið upp úr því að finna rétt fólk í rétt störf. Rétta fólkið getur
haft mjög ólíka menntun og reynslu. Menntun getur verið fengin úr skóla
lífsins og fólk getur hafa öðlast mikilvæga reynslu í gegnum uppeldis- eða
félagsstarf. Ráðningarferlið er staðlað og allir umsækjendur eru boðaðir í
viðtal. Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá. Svæðisvinnumiðlun Austurlands
aðstoðar umsækjendur á Austurlandi við að gera ferilskrá.
Viltu vera í liðinu okkar?
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Fjarðaáli. Fæst
okkar hafa starfað áður í álveri. Við tökum öll þátt í að móta nýtt fyrirtæki
frá grunni. Við ætlum að vinna saman og læra hvert af öðru. Við ætlum að
fara nýjar leiðir í stjórnun og skipulagi. Allir starfsmenn verða í lykilhlut-
verki. Styrkur fyrirtækisins verður í liðsheildinni.
www.alcoa.is
Alcoa Fjarðaál
0
ALCQA