Skessuhorn - 11.04.2006, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006
a>C33UhUK.
■Mret-Ji/ff/ ('(/'/(/i/t«r
Fylling 1: Fjarlægið efstu skum-
ina af eggi og skerið af hatt, saltrið
og komið laxaneið fyrir ofan í eggi
þannig að standi upp úr því eins og
skraut. Skreytið með dillstöngli.
Fylling 2: Veiðið 1/2 tsk af
eggjarauðu uppúr eggi þegar hatt-
ur hefúr verið skorinn af. Komið
dálitlu af majónesi fyrir ofan í egg-
inu ásamt fint söxuðum kóríander
og saltið. Komið þar næst humar-
hala fyrir í egginu.
Fylling 3: Skerið ítalskt brauð eða
franskbrauð í mjóar smttar ræmur,
ristið í ólífuolíu á pönnu ásamt
smá salti og hvítlauk. Veltið svo
uppúr blöndu af tímían og ferskri
steinselju og stingið 2 brauðstöng-
um ofan í hvert egg.
Fylling 4: Sjóðið græna ferska
spergilstöngla „al dente“. Skerið 6
toppa af (ca. 5-6 cm). Rífið ögn af
parmesnosti ofan í eggin og kom-
ið svo einum aspastoppi fyrir ofan
í hverju eggi.
Egg
páskanna
Þessi uppskrift er í boði
www.matarlist.is. Og hvað er
meira við hæfi en að hafa ekta
páskaegg í forrétt á páskunum,
súkkulaðieggin geta þá verið í eft-
irrétt í staðinn!
Hefðin fyrir því að skreyta og
gefa egg í tilefni páskanna er
ævaforn. Rómverjar til foma mál-
uðu eggin rauð og grófu í jörðu til
að tryggja sér ff jósemi á meðan að
Bretar geymdu eitt egg til næsta
árs, en það átti að vera fyrir gæfu
og góðu gengi á nýja árinu. Arið
1100 var hefðin fyrir því að menn
skiptust á blessuðum eggjunum
um páska orðin mjög útbreidd í
Evrópu. Hefðarfólk tók einnig
upp siðinn og fór að gefa egg úr
gulli og dýrmætum steinum í til-
efni páskanna. I upphafi 16. aldar
hlaut Francesco 1. Frakklandskon-
ungur eggjaskurn að gjöf sem
innihélt áletrun. E.t.v. var þetta
fyrsta eggið sem
innihélt óvæntan
glaðning og eins og
við sjáum í dag á
öllum fylltu
súkkulaðieggjunum
hefur sú hugmynd
átt ómældrar vel-
gengi að fagna allar
götur síðan. Dýr-
mætusm og falleg-
ustu eggin era þó
ættuð frá Rússlandi
og eru þau mörg
hver sett gimstein-
um og úr gulli. Það
ffægasta er líklega
eggið sem Alexand-
er þriðji lét lista-
manninn Fabergé
hanna handa keis-
araynjunni. Það var
gullegg sem iimihélt hænu úr gulli
sem svo innhélt gullkórónu hlaðna
gimsteinum.
Páskaforréttaegg
Linsoðin egg, sett í fallega
eggjabikara (jafiivel heimatilbúna)
fyllt með alls kyns góðgæti sem
hugmyndaflugið segir til
um, era fallegir, táknræn-
ir og síðast en ekki síst
gómsætir forréttir á há-
tíðarborðið um páskana.
Fyrir 6:
6 linsoðin egg (2 mín. fyrir
lítil egg, 3 mín. fyrir miðl-
ungs egg og 4 mín. fyrir
stór egg)
reyktur lax eða silungur
ferskt dill
ferskur kóríander
1 msk majónes
6 léttsoðnir humarhalar
6 grænir sperglar
ítalskt brauð
tímían
steinselja
ólífuolía
hvítlaukur
Sjötta sýning miðvikudaginn 12. apríl kl 21:00 (Jppselt
Sjöunda sýning laugardaginn 15. apríl kl 21:00
Áttunda sýning mánudaginn 17. apríl kl 21:00
Síðasta sýning miðvikudaginn 19. aprfl kl 21:00
Skopleg
stríðsádeila
Siðus.tu sy#ning7fr >
Sýnt í félagsheimilinu Brai^^ftngujlundarreykjadal
m: ___i__: ___ i— i r o r r *_ .1 r- h a r
Midapantanir í síma|5§'7 6866i©g 435 1316
Samkomulagið undirrituðu Magnús Guðmunsdson frá Landmælmum íslands, Þórhall-
ur Ólafsson frá Neyðarlínunni, Jón Gunnarsson frá Slysavamarfélaginu Landsbj'órgu,
Haraldur Johannessen ríkislögreglusljóri og Georg Lárusson frá Landhelgisgæslunni.
Landupplýsingar
við björgunarstörf
Nýlega var undirritað sam-
komulag milli Landmælinga Is-
lands og Björgunarmiðstöðvarinn-
ar í Skógarhlíð í Reykjavík um
aukna notkun á landupplýsingum
við björgunarstörf. Til þessa hafa
venjuleg landakort verið notuð, en
með samkomulaginu er stefnt að
því að auka notkun á stafrænum
kortum, gervitunglamyndum og
öðrum landupplýsingum sem
Landmælingar Islands hafa yfir að
ráða. Gögnin munu þannig nýtast
þeim sem kallaðir eru út vegna
slysa, eldsvoða, löggæslu, leitar,
björgunar og náttúruhamfara
hvort sem er á landi, sjó eða í loffi.
Samstarf þetta er þróunarverkefni
í þágu almannaöryggis og stendur
yfir í 6 mánuði.
Þeir sem að samkomulaginu
standa munu vinna að því að inn-
leiða kort og aðrar stafrænar
landupplýsinga ffá Landmælingum
Islands til notkunar í gagnagrunn
Neyðarlínunnar 112, Fjarskipta-
miðstöðvar lögreglu, Vaktstöðvar
siglinga, Samhæfingarstöðvarinnar
og Slysavarnarfélagsins Lands-
bjargar. Markmið þessa er að bæta
og auka upplýsingar til viðbragðs-
aðila auk þess sem viðbragðsaðilar
skuldbinda sig að miðla til Land-
mælinga Islands athugasemdum
sem berast vegna gagnanna svo
sem um ömefhi, vegi eða mann-
virki.
MM
Þessi mynd var tekin afskipinu í Færeyjum og erþað nokkuó breyttfrá upphaflegu útliti.
Mynd: Ljósmyndasafn Akraness.
...
Kemur
Höfrungur heim?
Færeyska blaðið Sosialurinn
sagði frá því í ffétt í gær að til
standi að selja strandferðaskipið
Barsskor til Islands. Skipinu var
lagt fyrir nokkru og er í slæmu
ásigkomulagi. Kristian Davidsen
segir í viðtalið við blaðið að „hann
er illa farin og má pumpast hvonn
dag fyri ikki fara til botns.“ Þá
kemm ffam að fyrirspurnir hafi
komið um skipið og nokkur
kauptilboð. Hins vegar hafi sú póli-
tíska ákvörðun verið tekin að selja
skipið á safn á Akranesi fyrir eina
krónu. Endanleg ákvörðtm um söl-
tma sé hins vegar í höndum Lög-
þingsins.
Skipið var smíðað á Akranesi árið
1929 og er 17,75 metrar að lengd
og 4,24 metrar að breidd og hét þá
Höfftmgur og var í eigu Haraldar
Böðvarssonar þar til hann slitnaði
frá bryggju í Lambhúsasundi 1946
og rak upp í kletta. Gert var við
bátinn og hann seldur til Færeyja.
Astvaldur Bjarnason var lengst
skipstjóri á Höffungi. I Færeyjum
var skipið notað til flutninga á pósti
og farþegum til og ffá Klakksvík.
Gísli Gíslason fyrrverandi bæjar-
stjóri á Akranesi er einn þeirra sem
unnið hafa að málinu á Akranesi.
Hann segir það hafa verið áhuga-
mál bæjaryfirvalda á Akranesi lengi
að ná þessu söguffæga skipi heim.
„Við sendum formlegt erindi af
hálfu bæjarins í fyrra þar sem við
óskuðum eftir því að fá að kaupa
skipið. Það er því mjög ánægjulegt
að heyra að frændur okkar skuli
vera sammála okkur.“ Gísli segir
engar ákvarðanir hafi verið teknar
um með hvaða hætti skipið verður
varðveitt eftir að það kemur til
Akraness að nýju.
HJ