Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2006, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 11.04.2006, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 §g!Sj§UII©BKl A myndinni sést Sproti SH-51 dragajakob Einar SH-101 að landi í Stykkishólmi. I baksýn má Já Hannes Andrésson SH-747 semþessa dagana standar hörpuskelsrann- sóknir í Breiðarfirði. Jakob Einar dregiim að landi Báturinn Jakob Einar SH-101 var dreginn stjórnvana að landi í Stykkishólmi 6. apríl síðastliðinn. Sigurjón F. Einarsson skipstjóri á Jakobi Einari sagði í samtali við fréttaritara að engin hætta hafi verið á ferðum þar sem skipverjar hafi verið á veiðum skammt frá Stykkishólmi þegar þeir fengu færi í skrúfuna og nærstaddur bátur hafi strax dregið þá í land. Jakob Einar er ríflega 20 rúm- lesta bátur sem stundar veiðar á beitukóngi frá Stykkishólmi. Beitukóngur er veiddur í þar til gerðar gildrur en þeir skipverjar á Jakobi Einari eru með um 3000 gildrur sem þeir vitja um reglu- lega. Sigurjón segir aflabrögð í vetur hafa verið þokkleg, þetta sé fyrsti veturinn sem veiðar hafi ver- ið samfelldar allan veturinn. Reyndar hefur botninn dottið úr veiðunum nú í apríl og ætla skip- verjar á Jakobi Einari að taka því rólega út mánuðinn og byrja svo veiðarnar af krafti aftur í maí. JTA Sinubrunar verði bannaðir Þrír þingmenn Samfylkingar- innar, þau Jóhann Arsælsson, Þór- unn Sveinbjarnardóttir og Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um sinubrenn- ur og meðferð elds á víðavangi. Ef frumvarpið verður að lögum verð- ur bannað að brenna sinu. Þó ætla megi að frumvarpið komi nú fram í kjölfar sinubrunans mikla á Mýr- um var samhljóða frumvarp flutt fyrir nokkrum árum en hlaut þá ekki afgreiðslu. I greinargerð með frumvarpinu segir að ár hvert verði verulegt tjón á gróðri og mannvirkjum af völdum sinubruna og að hætta á óbætanlegum um- hverfisspjöllum hafi oft vofað yfir bruna af þessu tagi. Þá segir að hætta á umhverfistjóni aukist ár frá ári vegna stækkandi skógar- reita. Einnig hafi hætta á skemmd- um á mannvirkjum aukist mikið vegna fjölgunar sumarhúsa og mannvirkja sem tengd eru notkun þeirra og útivist. Þá kemur fram að menn hafi nokkuð greint á um nytsemi þess að brenna sinu. Rannsóknir á áhrifum sinubruna á gróðurfar hafi ekki verið miklar en þó séu til rannsóknir sem gefa vísbendingar um að einhver jákvæð áhrif verði af sinubruna. Fækkun sauðfjár og þar af leiðandi minna beitarálag á högum hafi dregið úr þörf bænda fyrir því að flýta grassprettu og engin þörf sé fyrir sinubrennur á löndum sem notuð eru til hrossa- beitar. „Hagur bænda af sinu- brennslu virðist ekki vera augljós en hætta sú sem stafar af þeim eld- um sem loga víðs vegar um sveitir landsins á hverju vori er afar mikil og vaxandi. Þess vegna er lagt til að sinubrennur verði bannaðar," segir orðrétt í greinargerðinni. HJ Leiðangursmenn- og konur. Vorferð félags sauðfjárbænda Helga María og Hulda hampa hér verðlaununum jýrir leikinn „Hvað var œrin þung“. Félag sauðfjárbænda í Snæfells- og Hnappadalssýslu fór í sína fyrstu árlegu skoðunarferð á laugardaginn 8. apríl sl. Farinn var hringur á Snæfellsnesi og lagt af stað frá Vegamótum á fótaferðatíma Kol- hreppinga. Fyrsti viðkomustaður var Hjarðarfell. Síðan var skoðuð Múlavirkjun, Hraunháls og Bjarn- arhöfn, en þar bauð áburðarsalan YARA upp á léttar veitingar. Þar var einnig farið í keppnina, „hvað er ærin þung,“ og sigruðu þær Helga María á Fossi og Hulda á Mávahlíð hana með glæsibrag. Svo var lagt af stað aftur og komið við í fjárhúsunum á Berserkseyri og það- an farið í súpu á Krákunni í Grund- arfirði. Þá var hundahótel skoðað, reiðhöll, hesthús og fé á Bergi hjá Onnu Dóru ogjóni Bjarna en það- an var haldið í Mávahlíð áður en farið var fyrir jökul með leiðsögn Ragnhildar á Álftarvatni. Síðasti viðkomustaður var svo ferðaþjón- ustubærinn Langaholt en þar tók Þorkell bóndi á móti hópnum með glæsilegu fiskihlaðborði. Farið var með rútu frá Gunnari Hinrikssyni í Stykkishólmi og Múlavirkjun var svo rausnarleg að taka þátt í ferða- kostnaði. Það voru glaðir ferðafélagar sem kvöddust að kvöldi á Vegamótum eftir að hafa átt saman góðan dag. ÞSK Tíðniheimildir fyrir háhraðaaðgangsnet Póst- og fjarskiptastofnun hefur auglýst eftir umsóknum frá fyrir- tækjum um heimild þeim til handa til að nota tíðnir fyrir háhraða að- gangsnet. Samkvæmt markmiðum fjarskiptaáætlunar samgönguráð- herra 2005 til 2010, sem samþykkt var á Alþingi í fyrra, er gert ráð fyrir að allir landsmenn njóti há- hraðatengingar. Stefnt er að því að allir landsmenn sem þess óska hafi fengið aðgang að háhraðatengingu fyrir lok ársins 2007. Stjórn Fjar- skiptasjóðs hefur unnið að undir- búningi málsins undanfarið og með þessu er stigið fyrsta skrefið í því að hrinda af stað framkvæmda- hlið Fjarskiptaáætlunarinnar. Með auglýsingunni er verið að fá fram hvaða þjónustu fjarskipta- og netþjónustufyrirtækin eru til- búin að veita í þeim byggðum sem ekki njóta háhraðatengingar í dag og er hér fyrst og ffemst um að ræða byggðir sem ekki hafa til þessa notið ADSL háhraðateng- ingar. Skulu umsækjendur því til- greina í hvaða sveitarfélagi eða hluta þess ætlunin er að veita um- rædda þjónustu. Gera má ráð fyrir að fámennustu byggðir falli utan áhugasviðs umræddra fyrirtækja. I þeim tilvikum gerir fjarskiptaáætl- un ráð fyrir því að Fjarskiptasjóður komi til skjalanna og sinni upp- byggingu háhraðatengingar á þeim svæðum. MM 'cnmnn^. Framsóknmfólk ketur verkin tala á Akranesi Það hefur verið ákaflega skemmti- legt verkefni að sitja í meirhluta bæj- arstjómar á Akranesi á því kjörtíma- bih sem nú er að ljúka. Þar hafa verkin verið látin tala eins og bæjar- búar hafa eflaust tekið eftir og hafa síðustu fjögur ár verið eitt mesta uppgangs- og framfaratímabil á Akranesi fyrr og síðar. I upphafi kjörtímabilsins settum við fram- sóknarmenn markið hátt og gáfum meðal annars efdrfarandi loforð: a. Að endurskoða Aðalskipulag Akraneskaupstaðar og móta skýra sýn í uppbyggingu byggðar og at- vinnulífs á Akranesi þar sem leiðar- ljósið er fjölskylduvænt og rólegt vunhverfi. Þetta höfðum við forystu um, nú liggur fyrir nýtt Aðalskipulag til ársins 2017. b. Að hafa fiumkvæði að lækkun gjalds í Hvalfjarðargöng. Þetta höfð- um við forystu um, gjaldið var lækk- að verulega ! c. Að hafa ffumkvæði að endur- skipulagningu almenningssam- gangna innanbæjar og milli Akra- ness og Höfuðborgarsvæðisins. Þetta höfðum við forystu tun, nú ferðast vikulega á annað þúsund manns með strætó á milli Akraness og Reykjavíkur ! d. Að hafa ffumkvæði í að efla samstarf Akraneshafnar og Grund- artangahafhar með möguleikum á hafnarsamlagi við Faxaflóa. Þetta höfðum við forystu um, fyrirtækið Faxaflóahafiúr sf. var stofinað með þátttöku Akumesinga ! e. Að gerðir yrðu upphitaðir gervigrasvellir við grvmnskóla bæjar- ins - Þetta höfðum við forystu um með stuðningi Knattspyrnusam- bands Islands ! f. Að auka fjárffamlög til íþrótta og æskulýðsfélaga og að vinna að stefhumótun í samstarfi við IA um áframhaldandi uppbyggingu íþrótta- mála. Þetta höfðum við forystu um, styrkir til íþróttafélaga hafa aukist verulega og í byggingu er fjölnota íþróttahús ! g. Að vinna nýja fjölskyldustefnu fyrir Akranes til að skapa heildstæða umgjörð utan um fjölskylduna. Þetta höfðum við forystu um, stefnan var samþykkt á eittþúsundasta fundi bæjarstjómar og verður dreift fljót- lega í öll hús á Akranesi! h. Að efla heimaþjónustu fyrir aldraða. Þetta höfðum við forystu um ! Framangreind verkefhi em aðeins brot að því sem ffamsóknarflokkur- inn á Akranesi hefur í góðri sam- vinnu við samstarfsflokkinn í meir- hluta bæjarstjómar komið í fram- kvæmd, öllum bæjarbúum til gagns. Við höfiun áffam verk að vinna á Akranesi og skortir okkur hvorki kjark né reynslu til þess. Magnús Guðmundsson bæjarfulltrúi, skipar 2. sati dfram- boðslista Framsóknarflokksins til bæj- arstjómarkosninga á Akranesi 2006.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.