Skessuhorn - 11.04.2006, Qupperneq 15
SSESSUHÖIEK
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 2006
15
Bændadeildamemamir á Hvanneyri í heimsókn. Brynjólfur bóndi lengst til hægri meó bamabam sitt ífanginu. Ami B Bragason
kennari við LBHI stendur honum við hlið.
Fjölguðu fé til að geta lifað af búinu
Skyggnst inn í störf bændanna á Ytra Hólmi I
Hjónin Brynjólfur Ottesen og
Kristín Armannsdóttir reka sauð-
fjárbú á jörð sinni Ytra-Hólmi I í
Innri-Akraneshreppi. Innan tíðar
mun það sveitafélag heyra undir
nýtt sameinað sveitafélag hrepp-
anna íjögurra svmnan Skarðsheið-
ar. Það er ýmislegt sem að þau hjón
hafa fýrir stafni auk þess að vera
sauðfjárbændur. Hross eru á bæn-
um en synir þeirra sinna þeim að
mestu en fjölskyldan reynir að fara
í eina góða hestaferð með fleirum
úr fjölskyldu Kristínar á hverju
sumri á milli slátta. Einnig er
Kristín formaður Verkalýðsfélags-
ins Harðar en það er um 40% starf.
Brynjólfur sinnir ýmsum félags-
störfúm og hefur m.a. unnið fýrir
Sláturfélag Suðurlands á svæðinu
en hann var sláturhússtjóri á Laxá
tvö haust áður en sláturhúsið var
úrelt og slátrun hætt þar.
Búið stækkað
Sumarið 2000 réðust Brynjólfur
og Kristín í stækkun á fjárhúsum
sínum. Þau urðu að gera það upp
við sig hvort þau vildu halda bú-
skapnum áfram og þá að stækka
eininguna eða að snúa sér alfarið
að vinnu utan bús. Þau afféðu að
stækka hjá sér fjárhúsin og að
breyta vinnufýrirkomulagi þannig
að hagræðið ykist. Gömlu fjárhús-
in rúmuðu um 400 fjár en eftir
breytingarnar, sem fólust í að
breyta fýrrum kálfafjósi og hlöðu í
fjárhús, rúma þau nú um 800 fjár á
fóðrum. I húsunum eru þau bæði
með gjafagrindur ffá Vírneti og
garða sem gefið er á daglega. En
fjölgun fjárins hefur orðið til þess
að þau hjón hafa að mestu getað
hætt vinnu utan búsins en þau hafa
farið í ýmsa verktöku samhliða bú-
skapnum t.d. slátt og túnþökusölu.
Þrátt fýrir að vinnuaðastaðan hafi
breyst mikið til hins betra þá er það
greinilegt að á bænum er nóg að
gera og sérstaklega nú þegar að
stór törn er rétt við það að hefjast;
sauðburður.
Sauðburður og réttir
Á álagstímum eins og í sauð-
burði og í réttum fá þau mikla að-
stoð ffá börnum sínum og fjöl-
skyldu. Ekið er með megnið af
lambfénu um 80 km leið á affétt,
þar sem víðátta Botnsheiðar, syðsti
hluti Skorradals og Hvalfjarðar-
strönd rennur saman. En Biynjólf-
ur og Kristín eiga jörðina Efstabæ í
Skorradal ásamt bróður Kristínar
og hans fjölskyldu. Jörðina keyptu
þau til þess að geta nýtt hana til
upprekstrar. Smalað er á tveimur
dögum ffá Eiríksvatni og Hval-
vatni til Svarthamarsréttar í Hval-
firði. Svo tekur það fjölskylduna
ásamt raungóðum vinum góðan
dag, ffá birtingu til svarta myrkurs
að koma fénu heim um 30 kíló-
metra leið, en þau reka heim á
hrossum. Leið þeirra liggur út
Hvalfjarðarströndina, niður í
gegnum land Miðfells og sunnan
megin við Akrafjall í fylgd lögreglu
meðffam þjóðveginum. Að sögn
Brynjólfs eru vegfarendur mjög til-
litssamir við fjárreksturinn þegar
þeir aka framhjá þessum stóra hópi
af kindum, hrossum og mönnum
sem eru á röltinu heim.
Fræðst um
hagræðingaraðgerðir
Töluvert er um heimsóknir í fjár-
húsin á Ytra-Hólmi eftdr breyting-
amar. Gestir þangað hafa komið
lengst að úr Eyjafirði. Þegar blaða-
mann bar að garði vom þau hjón að
taka á móti hópi búffæðinema á
Hvanneyri sem leggja stund á
áfangann Sauðfjárrækt II. Vora þeir
að skoða aðstæður á bænum ásamt
kennara sínum Ama B. Bragasyni.
Fyrr um daginn höfðu nemendum-
ir farið í Skorholt, Eystri-Leirár-
garða og að Bjarteyjarsandi. Til-
gangur ferðarinnar var að kynna sér
mismunandi aðstæður og vinnu-
brögð bænda við búskapinn og að
sjá hvað bændur væra að gera sér til
hagræðingar bæði vinnulega og af-
komulega séð. Að sjálfsögðu var
mikið rætt um sauðfjárrækt og
sagði Brynjólfur bóndi gestunum
frá þeim breytingum sem hann
hafði gert á húsum sínum, hvemig
vinnubrögð höfðu breyst og þar
með afkoman og hvað kynbætur
breyta miklu í afkomunni.
„Eg er alltaf tilbúinn að taka á
móti gestum sem þessum, þetta era
bændur framtíðarinnar og það
skiptir miklu máli að við sem
reyndari erum miðlum reynslu
okkar og hugmyndum til þessa
tmga fólks“, sagði Brynjólfur að
lokum. SO
Kindumar á Ytri Hólmi við gjafagrindur frá Vímeti.
b—MODSl
STILLHOLT116-18 • AKRANESI
SÍMI431 3333 ■ model.ak@simnet.is
Varmalandsskóli í Borgarfirði
Varmalandsskóli
auglýsir lausar
stöður við skólann
Um er að rœða kennslu ó unglingastigi,
ss. í íslensku, dönsku, ensku, samfélagsfrceði
og stœrðfrœði, en einnig er um að rœða
kennslu ó öðrum stigum.
Líttu inn ó heimasíðu skólans
www.vamnaland.is
Upplýsingar gefur Flemming Jessen
í síma 840-1520,
netfang: fjessen@varmaland.is
Afgreiðslu-
og skrifstofustarf
Við leitum að fjölhæfum starfsmanni, helst
með þekkingu é landbúnaði.
1. Almenn afgreiðsla og þjónusta við bændur.
2. Skráning a innkaupum, verðlagning og almenn
aðstoð við verslunarstjóra.
Reynnsla af verslun og þjónustu æskileg.
Nánari upplýsingar
gefa Unnsteinn
eða
Guðsteinn
í síma
430-5500 BUREKSTRARDEILD
mmmmm
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga
rUorið x sveitinaiO
- í ÍReykholtskirkju
Framtakssjóður með tvær íjár-
festingar á Akranesi
Framtakssjóður Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins hefur fjárfest í
tveimur fýrirtækjum í Norðvestur-
kjördæmi og era bæði þeirra á
Akranesi. Þetta kemur ffarn í svari
viðskiptaráðherra á Alþingi við
fýrirspurn Kristjáns L. Möller
þingmanns Samfýlkingarinnar.
A sínum tíma lagði ríkisstjórnin
einn milljarð króna til sjóðsins og
var það hluti af söluverði Fjárfest-
ingabanka atvinnulífsins hf. I lög-
um um sjóðinn segir að hann skuli
stuðla að nýsköpun og atvinnu-
uppbyggingu með áherslu á lands-
byggðina, einkum á sviði upplýs-
inga- og hátækni. Alls hefur sjóð-
urinn fjárfest í 27 fýrirtækjum og
þrátt fýrir þessa áherslu á lands-
byggðina era flest þeirra, eða 15
talsins, í Reykjavík. Aðeins tvö
þeirra er að finna í Norðvestur-
kjördæmi og era þau bæði á Akra-
nesi. Annars vegar er það Bergspá
ehf. sem vinnur að gerð hugbún-
aðar til greiningar á steinefnum og
hins vegar Foxhall ehf. sem þróar
og framleiðir eldvarnarfamað.
H3
Karlakórinn Lóuþrælar og Sönghópurinn
Sandlóur úr Húnaþingi halda tónleika í Reykholtskirkju
síðasta vetrardag, miðvikudaginn 19. apríl kl. 21:00
Söngstjóri Lóuþræla er Guðmundur St. Sigurðsson.
Undirleikarar eru Elinborg Sigurgeirsdóttir, Þorvaldur
Pálsson og Guðmundur Helgason.
Þetta eru sjöttu tónleikar kóranna á starfsárinu.
Lagaval er fjölbreytt, eftir innlenda og erlenda höfunda.
"X.
Aðgangseyrir er kr. 1500.
IKvcðjum vdurinn með hressilegum hcdti
- syngjum vorið i svdtina.
% :j
jLÓujrrœlar oy Sandlóur.