Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2006, Page 1

Skessuhorn - 19.04.2006, Page 1
Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettð alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ A VESTURLANDI 16. tbl. 9. árg. 19. apríl 2006 - Kr. 300 í lausasölu Fyrsta skóflustungan tekin að gatnafram- kvæmdum i Krosslandi. Fram- kvæmdir hafnar á Krosslandi I síðustu viku var fyrsta skóflustung- an tekin að gatna- og veitufram- kvæmdum í Krosslandi í Innri Akra- neshreppi. Þar er fyrirhugað að reisa um 400 íbúa byggð. Það er fyrirtækið Stafha á milli ehf. sem stendur fyrir framkvæmdunum en jarðvinnu- og lagnaframkvæmdir annast Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar. Að sögn Þor- geirs Jósefssonar, framkvæmdastjóra Stafna á milli verður nú u.þ.b. helm- ingur svæðisins í Krosslandi gert bygg- ingarhæft. „Við byrjum á gatna- og veituframkvæmdum og ráðgerum að ljúka þeim í október í haust. I júní eða júlí verður þó hægt að hefja fram- kvæmdir við fyrstu lóðirnar á svæð- inu.“ Þorgeir segir að í þessum áfanga verði byggt á 24 einbýlishúsalóðum, þ.a. 12 hús á einni hæð og 12 á tveim- ur. Fjórar lóðir verða undir 42 íbúðir í tveggja hæða raðhúsum eða á sérhæð- um. Þá verða þrjár lóðir undir tveggja hæða fjölbýlishús með alls 58 íbúðum þannig að allt í allt er nú gert ráð fyrir 124 íbúðum í þessum áfanga. Þorgeir segir að lóðirnar verði auglýstar til sölu í maí og sett fast verð á hverja lóð mið- að við fjölda íbúða á hverri fyrir sig. Inni í lóðaverðinu verða gatnagerðar- gjöld en ekki tengigjöld vegna veitu- framkvæmda og kostnaður vegna byggingafulltrúa. MM ATLANTSOLIA Dísel *Faxabraut 9. Njarðvíkingar urSu sl. mánudag lslandsmeistarar í körfu eftir að hafa lagt „spútniklið“ þessa leiktímabils, Skallagrím í Borgamesi íjjórða úrslitaleik mótsins ogþar með sigrað 3:1 í einvígi liðanna. Borgnesingar mega þó una glaðir við árangur sinna manna því aldrei í sögu félagsins hefur liðið náðjafn langt. A myndinni eru liðsmenn Skallagríms að óska nýkrýndum Islandsmeisturum til hamingju eftir leikinn í Borgamesi. Sjáfrétt bls. 4. Laun sveitastj ómarmanna fylgja stærð sveitarfélaga í könnun sem gerð var á vef Skessuhorns fyrir skömmu svar- aði meirihluti aðspurðra því ját- andi að launa ætti betur sveitar- stjórnarstörf og laða þannig fleiri til þátttöku í pólitík. I framhaldi af þessari könnun óskaði Skessuhorn eftir upplýs- ingum frá nokkrum sveitarfélög- um um laun sveitarstjórnar- manna. Ekki var leitað til allra sveitarfélaga á Vesturlandi held- ur einungis reynt að endurspegla mismunandi stærð þeirra. Af könnuninni má ráða að launin eru mjög misjöfn og fylgja þau að nokkru leyti stærð sveitarfélaganna, það er að laun- in eru hærri í stærri sveitarfélög- unum. Hvort þau eru nægilega há eða of há verður hver og einn lesandi að meta. Þó má ljóst þykja að sveitarstjórnarmenn virðast hafa borið sig saman í landshlutanum. Þannig eru laun sveitarstjórnarmanna á Snæfells- nesi mjög svipuð og grunnlaun í Borgarbyggð og á Akranesi eru einnig svipuð. I flestum tilfellum taka launin mið af launum al- þingismanna. Akranes og Borgarbyggð I þessum sveitarfélögum er kjörnum fulltrúum greidd föst laun og ekki er sérstaklega greitt fyrir hverja fundarsetu. Föstu laurdn eru þau sömu í bæjarfélög- unum. A Akranesi er til viðbótar greiddur ýmiss kostnaður hvort sem hann er útlagður eða ekki. Má þar nefna að bæjarfulltrúar fá greitt fyrir 300 kílómetra aksmr á mánuði og bæjarráðsmenn fá greidda 400 km. Einnig eiga bæj- arfulltrúar rétt á því að sækja nám- skeið eða ráðstefnur innanlands sem erlendis og leggur bæjarsjóð- ur til allt að 35 þúsund krónur á ári á hvern bæjarfulltrúa. I Borgar- byggð fá bæjarfulltrúar greiddan akstur gegn framlögðum reikn- ingum sé fjarlægð frá heimili þeirra að fundarstað meiri en 5 km. Þá fá bæjarfulltrúar í Borgar- byggð greiddar 1.500 - 2.500 krónur á mánuði í símakostnað. Föst laun bæjarfulltrúa í þessum sveitarfélögum er 63.643 krónur á mánuði. Sitji bæjarfulltrúi í bæjar- ráði bætast 77.785 krónur við. Forseti bæjarstjórnar fær greiddar 89.571 krónu á mánuði og for- maður bæjarráðs fær greiddar 87.214 krónur. Með aksturskostn- aði fær því formaður bæjarráðs Akraness 194.257 krónur á mán- uði og forseti bæjarstjórnar 171.814 krónur. Formenn al- mennra nefnda fá greiddar 11.698 krónur á hvem fund og almennir nefhdarmenn fá greiddar 6.139 krónur á hvern fund. Bæjarfulltrú- ar sitja að jafhaði í nefhdum og bætast því nefridarlaunin við föst laun þeirra. Snæfellsnes Laun sveitarstjórnarmanna í Snæfellsbæ, Grundarfirði og í Stykkishólmi em mjög svipuð en hæst era þau þó í Stykkishólmi ef miðað er við fundatíðni. I öllum þessum sveitarfélögum em föst laun bæjarfulltrúa 30.693 krónur á mánuði og að auki era 9.208 krón- ur á hvem fund. Forseti bæjar- stjórnar fær í þessum sveitarfélög- um greiddar 46.040 krónur í föst laun og að auk fær hann greiddar 9.208 krónur í Snæfellsbæ og Gmndarfirði en 13.812 krónur í Stykkishólmi. Formaður bæjar- ráðs fær greiddar 23.020 krónur á mánuði í SnæfeUsbæ og í Grand- arfirði en 30.693 krónur í Stykkis- hólmi. Greiðslur fyrir hvern fund era þær sömu og hjá forseta bæjar- stjórnar. Ef miðað er við fundar- tíðni bæjarstjórna þessara staða í fyrra hefur formaðtu- bæjarráðs í Snæfellsbæ fengið greiddar rúmar 72 krónur á mánuði í Stykkis- hólmi, rúmar 81 þústrnd krónur í Grundarfirði og rúmar 89 þúsund krónur á mánuði í Stykkishólmi. I þessum sveitarfélögum era for- menn nefnda að fá greiddar tæpar 10 þúsund krónur á hvem fund og almennir nefhdarmenn fá greidd- ar tæpar 7 þúsund krónur á hvem fund. Dalabyggð Hreppsnefndarmaður í Dala- byggð fær í föst laun 7.673 krónur á mánuði og 6.139 krónur á hvern fund. Oddviti hreppsnefndar hef- ur 15.347 krónur á mánuði í föst laun og 9.208 krónur að auki á hvern fund. Formaður byggðaráðs fær greiddar 9.208 krónur á hvern fund og byggðaráðsmenn fá greiddar 6.139 krónur á mánuði. HJ Fliigger Hörpuskin, Hörpusilki og Utitex fást nú hjá KB Búrekstrardeild Egilsholt 1-310 Borgarnes Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.