Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 11
..■.KWIIH1.LÍ MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2006 11 Nýi Baldur komiun til heimahafnar í Stykkishóhni Nýr Baldur siglir inn í höfnina í Hólminum í blíðskaparveHri. Ljósm. JTA Baldur, nýtt skip Sæferða ehf. kom til heimahafnar í Stykkishólmi laugardaginn 15. apríl eftir um fimm sólarhringa siglinu frá Hollandi. Fjölmenni tók á móti skipinu í blíð- skaparveðri enda hátíðarsmnd í bænum. Nýja skipið hét áður „Oost Vh- eland" og var í ferjusiglingum um frísnesku eyjamar í Hollandi. Skipið sem er byggt 1974 var allt endumýj- að árið 1994 og er stærra en gamh Baldur eða um 20 metrum lengra og 3 m breiðara. Nýja ferjan styttir leiðina milli Stykkishólms og Brjánslækjar um tæpa klukkustund en skipið leysir af hólmi smærra skip með sama nafni sem selt var til Finnlands og sigldi utan á dögunum. Baldur fór í sínar fyrstu ferðir síð- asthðinn mánudag. Blaðamaður brá sér um borð efrir seinni ferðina og tók Pétur Agústsson, skipstjóra á Baldri og framkvæmdastjóra Sæ- ferða tah og ffæddist lítillega tun nýja skipið. Veðjað á aukningu Löng hefð er fyrir ferjusiglingum við Breiðafjörð og hafa bátar og skip með Baldurs nafriinu sirmt ferju- flutningum um fjörðinn frá árinu 1924. Aherslur hafa í gegnum tíðina breyst úr því að þjónusta eyjaskeggja um nauðsynjar í að ferja bíla og fólk yfir fjörðinn. „Sæferðir ehf. hafa um fimm ára skeið sinnt rekstri Breiða- fjarðarferjunnar en samkvæmt nýj- um rekstrarsamningi fyrirtækisins við Vegagerðina munu styrkir til ferjunnar minnka næstu fimm ár og loks leggjast af,“ segir Pémr. Hann segir að í ljósi þessara breyttu for- senda í rekstri ferjunnar hafi verið ákveðið að ráðast í kaup á nýju skipi. Pétur segir tvo kosti hafa verið í stöðunni: ,Annarsvegar hefðum við þurft að halda rekstri gamla skipsins áffarn og draga saman seglin sam- fara minnkandi ríkisstyrkjum. Gamh Baldur var orðinn afar óhentugur á þessari leið, hann hafi ekki annað sumartraffikinm og ekki hafi verið grundvöllur fyrir rekstri hans án rík- isstyrkja. Hinsvegar var sá kostur sem varð ofaná, þ.e. að festa kaup á stærri ferju sem gæti annað aukinni umferð að sumarlagi og staðið und- ir sér í lok samningstímans við Vegagerðina.“ Pétur hefur ákveðnar hugmyndir um hlutverk og gagnsemi þessarar ferjuleiðar og kveðst ekki telja ferju vera tímaskekkju. Þvert á móti hafi umferð yfir sumartíman verið að aukast og Vestfirðingar séu mjög áhugasamir um nýju ferjuna, viðtök- umar hafi í raun verið ffábærar. Góð samvinna Til að anna páskaumferðinni fór Baldur tvær ferðir á mánudag og flutti í þeim um 300 manns og 90 bíla og hafa líklega aldrei verið flutt- ir fleiri bílar yfir Breiðafjörð á einum degi. Það fer vel um farþegana því nýja skipið tók áður allt að 110 manns en nú flytur það mest um 300 manns í hverri ferð. Aðstaðan fyrir farþegana er því öh hin besta. Aðspurður segir Pétur að lengi hafi staðið til að fá nýja ferju. „Þetta er búin að vera 5 ára barátta við ýmsa aðila,“ segir hann. Að lokum bætir hann við að svona nokkuð væri ekki hægt nema að hafa gott fólk í kringum sig. Ahöfriin á Baldri og starfsfólk Sæferða væm samheldin og hefðu reynst ómetanleg í þessu öllu saman. „Þetta byggist allt á samvinnu. Eg væri ekki kominn mjög langt ef ég væri einn að kúldr- ast í þessu,“ sagði Pétur að lokum. Eins og áður segir styttist sigl- ingatíminn frá Stykkishólmi til Brjánslækjar um hátt í eina klukku- stund og verður nú rúmir 2 tímar en auk þess tekur einhvem tíma að koma við í Flatey. Brottfarir ffá Stykkishólmi í sumar verða klukkan 9 og 16 og ffá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30. Hlýjar móttökur á Brjánslæk Það vom hlýjar móttökur sem áhöfri Baldurs fékk þegar skipið lagðist að bryggju á Bránslæk í sinni fyrstu ferð þangað á mánudaginn. Fjöldi fólks var mættur niður við höfii til að taka á mótinu skipinu. Margir vom búnir að bóka far með þessari fyrstu ferð nýja skipsins og vora þau Pétur og Svanborg Sig- geirsdóttir, eiginkona hans og mark- aðsstjóri Sæferða hæstánægð með móttökurnar sem skipið og áhöfri fékk. Bæjarstjóri Vesturbyggðar, Guðmundur Guðlaugsson færði á- höfriinni dýrindis tertu í tilefrii dags- ins. Einnig færði Oddi hf. á Patreks- firði skipinu mynd að gjöf. JTA/GA A Brjánslcek beiS hópurfólks eftir skipinu á mánudag. Ljósm: GA Sigfúsarhátíð á sumardaginn fyrsta Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður þess minnst á Reykhólum að í ár em liðin tíu ár ffá andláti Sig- fusar Halldórssonar tónskálds. Þann dag verður haldin svokölluð Sigfúsarhátíð. Tónlistardagskrá verður í íþróttahúsinu á Reykhól- um og þar ber hæst söngur Alfta- gerðisbræðra sem syngja munu nokkur lög eftir tónskáldið. I upp- hafi dagskrárinnar mun Gunnlaug- ur Sigfusson flytja ávarp og segja ffá föður sínum. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni dvaldi Sigfús nokkuð á Reykhólum og samdi þar meðal annars eitt þekktasta lag okkar „Litlu fluguna“. Fyrr um daginn verður haldinn að venju á Reykhólum svokallaður „Barmahlíðardagur“. Þar er um að ræða handavinnusýningu, hluta- velm og kaffisölu á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reyk- Reykhólar. hólum. Geta íbúar kynnt sér starf- semi heimilisins um leið og þeir njóta þess sem heimilismenn bera á borð fyrir þá. Þetta er í fjórða sinn sem Reyk- hólahreppur stendur fyrir menn- ingardagskrá á sumardaginn fyrsta. Barmahlíðardagurinn á sér hins vegar lengri sögu. HJ ------------------------1 Akraneskaupstaður Bæjarstjórn Akraness Útvarpað er frá bæjarstjórnarfundum á FM 95,0 1011. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, 3. hæð, þriðjudaginn 25. apríl 2006 og hefst hann kl. 17:00. Bæjarmálafundir stjórnmálaflokkanna verða sem hér segir: Akraneslistinn - Samfylkingin í Hvíta húsinu, Skólabraut 9, mánudaginn 24. apríl 2006 kl. 18:00. Framsóknarflokkurinn í Framsóknarhúsinu, Sunnubraut 21, mánudaginn 24. apríl 2006 kl. 20:00. Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 3, mánudaginn 24. apríl 2006 kl. 20:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Bæjarstjóri. FÉLAG IÐN- OG TÆKNIGREINA Minnum á aðalfund FIT laugardaginn 22. maí kl:10:00 í Akóges-salnum Sóltúni 3. Félagið veitir ferðastyrk til þeirra félagsmanna sem búa í meira en 40 km. fjarlægð frá fundarstað. | Óskum félagmönnum og fjölskyldum þeirra I gleðilegs sumars Stjórn Félags iðn- og tæknigreina Verkalýðsfélag Akraness - AÐALFUNDUR - Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl kl. 20:00 að Kirkjubraut 40, 3. hæð. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu. 3. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs. 4. Kosningar sem þurfa að fara fram á aðalfundi samkvæmt 28. grein laga félagsins. 5. Ákvörðun félagsgjalda. 6. Önnur mál. Á aðalfundi verða ekki afgreiddar með atkvæðagreiðslu aðrar tillögur og ályktanir en þær sem borist hafa til skrifstofu félagsins 5 dögum fyrir aðalfund eins og 28. grein laga ; félagsins kveður á um. Ársreikningur félagsins mun liggja I frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund. Komi tillögur • eða ályktanir fram þá munu þær liggja frammi á skrifstofu | félagsins og verða einnig kynntar á heimasíðu félagsins. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta. Kaffiveitingar Verkalýðsfélag Akraness • Sunnubraut 13 • sími 430-9900

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.