Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 19.04.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2006 SKESSUHÖRK] 'e/uunn^^ Skipulagsklúður og iimhveifmnál Agætu Akurnesingar ég get ekki orða bundist lengur vegna þess ástands sem orðið er á bænum okkar og næsta nágrenni sem er orðið það slæmt að það er erfitt að ákveða hvar á að byrja í upptaln- ingunni á því sem hefur farið úr- skeiðis og er bæjarfélagi af þessari stærð hreinlega til skammar svo ekki sé sterkara að orði kveðið. Kannski er best að byrja aðeins fyrir utan bæinn okkar og þar er fyrst að nefna ástand veganna sem liggja að og frá bænum bæði inn að göngum og eins vegurinn upp að Lambhaga. Hvar annarstaðar á landinu haldið þið lesendur góðir að fólk láti bjóða sér svona vegi sem eru stórhættulegir vegna þess að þeir eru allir í hólum og dæld- um og er orðnir svo slæmir að þeir virka orðið eins og stökkbretti. Af hverju eiga Skagamenn og aðrir vegfarendur að láta bjóða sér svona vegi og afhverju eru bæjar- yfirvöld ekki búinn að fá vega- gerðina til þess að laga þessa vegi? Þetta er til skammar. Þegar komið er inn í bæjarfélag- ið er manns fyrsta hugsun að eitt- hvað stórslys hafi orðið í skipu- lagsmálum bæði hvað varðar legu aðalvegar inn í bæinn með tilliti til framtíðar skipulags og einnig með tilliti til þess sem fyrir augu ber og gefur fólki sem heimsækir bæinn fyrstu tilfinningu fyrir því hvernig bæ er verið að heimsækja. Sem dæmi má nefna lifrarbræðslu þar sem gríðarlegur draslaraskapur er látinn viðgangast af bæjaryfirvöld- um svo ekki sé minnst á það hverj- um datt í hug að setja fiskvinnslu- fyrirtæki niður við Smiðjuvelli og Kalmansvelli þar sem verið er að byggja upp verslun og þjónustu og á sama tíma þenjast fiskvinnslu fyrirtækin út í hverfinu. Það er ekki hægt að segja annað en að Kalmansvellir og Smiðju- vellir eru sóðalegustu og verst skipulögðu götur bæjarins og taki það til sín hver sem á. Þarna er vöxtur matvöruverslunar áætlaður hvað mestur næstu misserin. Þetta er til skammar fyrir bæinn. Akranes var einu sinni umtalað- ur bær fyrir að hafa allar götur steyptar en í dag er Akranes um- talaður bær fyrir að hafa nánast allar götur ónýtar og ef að keyrt er um bæinn á þessum ónýtu götum og litið í kringum sig með auga aðkomumannsins þá eru um allan bæ illa við haldin hús og líka ófrá- gengin svæði sem ekkert hefur verið gert við í áratugi og má þar nefna malarplan á gatnamótum Suðurgötu og Skagabrautar, svæði við Ægisbraut og Vallholt, svæði við Akursbraut og svo mætti lengi telja. Ekki hef ég enn hitt þann Skagamann sem er sáttur við stað- setningu nýja fótboltahússins við Jaðarsbakka og breytir þá engu hvort menn eru með eða á móti byggingunni sem slíkri. Það er umhugsunarefni hvort hreinlega hefði þurft að kjósa um svona. Þetta er arfaslæmt mál. Mín skoðun er sú að þessi klúbbur sem kallað hefur sig „Bæj- arstjórn" undanfarna áratugi hafi gjörsamlega brugðist íbúum bæj- arins með framkvæmdaleysi á allt of mörgum þáttum í starfsemi bæjarins og er það mín skoðun að reka þurfi bæjarfélagið eins og stórfyrirtæki með hæfa menn sem stýra fyrirtækinu en ekki póli- tíkusa sem jafnvel ekkert vit hafa á rekstri fyrirtækja. En það skal tek- ið ffam að þetta er mín skoðun og þarf ekki að endurspegla skoðanir meirihluta bæjarbúa, en hver veit? Ketill Már Bjömsson Háteigi 16, Akranesi Kjartan í Kirkjuhvoli Næstkomandi laugardag, 22. apríl, hefst í Listasetrinu Kirkju- hvoli á Akranesi málverkasýning Kjartans Guðjónssonar. Þar sýnir hann um 25 olíuverk sem unnin eru á þessu ári og því síðasta. Kjartan er fæddur 21. apríl 1921 og er þetta því nokkurs konar af- mælissýning. Auk þess er minnst að rúm 60 ár eru liðin ffá því hann sýndi verk sín fyrst á Islandi, þá ný- komin úr listaskóla í Bandaríkjun- um. Kjartan nam myndlist í Chicago í tvö ár en sneri aftur heim og fór að kenna við Myndlistar- og handíðaskóla Islands og kenndi þar í mörg ár. Þar kynntist hann öðr- um listamönnum sem höfðu numið erlendis og kynnst stefnum á borð við abstrakt-list. Þar á meðal voru Nína Tryggvadóttir, Þorvaldur Skúlason, Snorri Arinbjarnar og fleiri, sem síðar mynduðu kjarnann í Septemhópnum og um haustdð 1945 héldu þau sýningu í Lista- mannaskálanum sem áttá eftir að hafa effirmál, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Kjartan bjó um skeið í Flórens og París og málaði. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum auk þess að myndskreyta bækur. Sýn- ingu Kjartans í Kirkjuhvoli lýkur 7. maí. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga ffá kl. 15-18. MM T^en/iúui— Sterkara samfélag - allir með! Nú styttist í sveitastjórnarkosn- ingar sem fram fara þann 27. maí næstkomandi og þá gefst bæjarbú- um á Akranesi tækifæri til þess að sýna gildismat sitt í verki. A Akra- nesi hefur Samfylkingin verið í meirihluta síðustu tvö kjörtímabil og lagt traustan grunn að sterku samfélagi þar sem áhersla er lögð á samábyrgð, sjálfræði og samvinnu. Síðustu misserin hefur orðið gríð- arleg endurnýjun í Samfylkingunni, það sést vel á framboðslistanum sem telff er fram að þessu sinni þar sem ungt fólk með sterkar hugsjón- ir og einbeittan vilja til góðra verka skipar veigamikinn sess. Astæðan fyrir þessari miklu endurnýjun er einföld, Samfylkingin hefur sýnt það og sannað síðastliðin átta ár að hún er besti kosturinn þegar að því kemur að kjósa afl til forystu í bæn- um okkar. I Samfylkingunni lifir á- setningurinn um lífsgæði öllum til handa og hver sá sem kynnir sér málflutninginn og fólkið sem fyrir honum stendur finnur að ekki er um innistæðulaust hjal að ræða heldur raunverulegan vilja til þess að hrinda hugsjóninni um jöfnuð og velferð í framkvæmd. Allir sem deila þessum hugsjónum eru vel- komnir í Samfylkinguna og ein- dregið hvattir til þess að taka þátt í að móta skýra stefnu til árangurs í ffamtíðinni. Þetta höfum við, sem erum ný á hinum pólitíska vett- vangi fundið. A okkur er hlustað, virðing borin fyrir skoðunum okkar og okkur treyst fyrir ábyrgðarmikl- um verkefnum. Vlð viljum nota þetta tækifæri til þess að hvetja alla þá sem hafa áhuga á bæjarmálum til þess að taka þátt í starfinu framundan með okkur. I Samfylkingunni ríkir einhugur um markmið sem gerir það að verkum að það er samstilltur hópur sem nú vinnur ötullega að því að fá endurnýjað umboð bæjarbúa til þess að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið síðastliðin átta ár, enda er mikið í húfi. Af bar- áttumálum okkar má nefha aukin tækifæri íbúa á Akranesi til þess að hafa áhrif á stefnumótun og ákvarð- anatöku í mikilvægum málum enda hlýtur velferð okkar allra, sjálfs- virðing og sjálfræði að grundvallast á virkri þátttöku í mótun samfé- lagsins. Hver og einn á að hafa val- frelsi til þess að haga lífi sínu í sam- ræmi við eigið gildismat og tdlfinn- ingu fyrir tilverunni, svo ffarnar- lega sem það gengur ekki á rétt annarra til þess sama, og þessu vali ber að sýna virðingu og skilning. Oll eigum við rétt á því að okkur líði vel í bænum okkar, að við get- um unað sátt við hlutskipti okkar og haft raunveruleg tækifæri og fjárhagslegt svigrúm til að ffam- fylgja vali okkar. Þessi dýrmæta hugsjón grundvallast á því að við tökum öll höndum saman um að byggja sterkara samfélag - allir með! Hrönn Ríkharðsdóttir, skipar 2. sæti á lista Samjylkingarinnar og óháðra. Anna Lára Steindal, skipar 3. sæti. Sigrún Osk Krisljándsóttir, skipar 4. sæti. Hrafnkell A. Proppe', skipar 5. sæti. Ingibjörg Valdimarsdóttir, skipar 7. sæti. Valgarður jónsson, skipar 8. sæti. Guðmundur Valsson, skipar 9. sæti. Framrúður brotnar Ifimm vikur fékk þessi bifreiS með sprungið dekk að standa óáreitt við rætur Hafnarfalls. Einhverjum gœti þótt það langur tími án þess að hann væri skemmdur en þó kom að því að einhvejir óhugulsamir einstaklingar skildu mark sitt eftir á honum. Um páskana voru báðar framrúður btlsins brotnar en þráttfyrir það var ekki að sjá aðrar skemmdir á bílnum. Engu virðist hafa verið stolið enda engu í bílnum að stela svo tilgangur skemmdarverksins virðist vera óljós. Ljósm. BG Tveir Skagamenn kepptu á Islandsmóti í fitness Tvö ungmenni frá Akranesi kepptu um páskana á Islandsmót- inu í fitness sem ffam fór á Akur- eyri. Olöf Sigríður Magnúsdóttir keppti í módelfitness, sem er ný grein og einnig í fitness. I módelfit- ness er leitað eftir íþróttalegum vexti en ekki eins miklum skurði eins og í vaxtarrækt. I fitness keppni kvenna þurfa þær að hlaupa í gegnum hraðabraut, sem inni- heldur meðal annars bíladrátt, dekkjahlaup, axlalyftur, niðurtog, klifurvegg og kaðal sem þarf að kliffa upp. Gunnar Smári Jónbjömsson tók þátt í fimess. Þar byrjar keppnin í samanburði svo dómarar getir skoðað keppendur ffá toppi til táar og síðan er farið í ýmsar þrautir og mótið endað á lokasamanburði. Gunnar Smári varð í þriðja sæti í sínum flokki. Að sögn Gunnars og Olafar er undirbúningur gríðarlegur fyrir svona mót og krefst mikils aga. Þau byrjuðu bæði að undirbúa mótið í byrjun janúar með lyftingaræfing- um, brennslu og ströngu mataræði. Síðusm vikur fyrir mótið æfðu þau tvisvar á dag í þreksalnum á Jaðars- bökkum og borðuðu 6-7 máltíðir á dag sem innihéldu einungis fisk, kjúklingabringur, haframjöl eða grænmeti. Síðusm dagana fyrir mótdð minnkuðu þau síðan vams- neyslu til að fá betri skurð í vöðvana. Þau sögðust bæði mjög stolt af árangrinum og vildu koma þökkum til Akraneskaupstaðar sem stóð vel við bakið á þeim svo og til fjölskyldu þeirra og vina sem einnig smddu þau dyggilega. HJ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.